Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Að vakna með flær

14.2 2011 | 11:04 | 10 ummæli

Sá sem sefur með hundum vaknar með flær segir máltæki eitt allgott.
Í síðustu viku festi vefmiðillinn Pressan kaup á Eyjunni eða keypti upp samkeppnina eins og íslenskir viðskiptamenn hafa oft þurft að gera því þeir geta í raun ekki starfað í samkeppnisumhverfi heldur kjósa fákeppni og einokun sé þess nokkur kostur.
Í eigendahópi Pressunnar/Eyjunnar má nú kenna fríðan flokk. Þar er fremstur Björn Ingi Hrafnsson fyrrum stjórnmálamaður sem starfaði ötullega að eigin hag um árabil á kostnað Reykvíkinga. Þar er blaðafulltrúi Framsóknarflokksins og fótgönguliði Steingrímur Ólafssonog Rúnar Hreinsson náinn samstarfsmaður Björns Inga og kosningastjóri. Aftar í fylkingunni glittir svo í kámug trýnin á fyrrum útrásarvíkingum bakvið slæður eignarhaldsfélaga. Ég geri fastlega ráð fyrir því að nýr og stærri  vettvangur geri þeim kompánum kleift að verja þá sem lögðu Ísland í rúst, af meiri atorku en áður og ná til enn fleiri auðsveipra sálna sem vilja trúa því að glæpamenn séu rangindum beittir.
Ljóst er að rekstur vefmiðla skilar litlum hagnaði eins og tíðindi af miklum taprekstri Pressunnar hafa sýnt og ljóst að kennitöluskipti, annað þrautreynt ráð viðskiptasnillinga, er skammt undan ef ekki þegar hafið. Menn vilja eiga fjölmiðla til þess að hafa áhrif, ljúga skipulega og verja hendur sínar. Um þetta eru þegar nokkur dæmi á Íslandi dagsins í dag og samruni Pressu og Eyju er dapurlegur áfangi á niðurlægingartímum fjölmiðla.
Bloggferill minn hefur staðið með hléum frá ársbyrjun 2004 og hér á Eyjunni  frá mars 2009. Með vísan til orðatiltækisins í upphafi pistilsins læt ég þessu samstarfi lokið. Ég óska þeim sem eftir verða velfarnaðar í störfum því hér er margt sómafólk vel pennafært með heilbrigða sýn á samfélagið. Það verður hver og einn að finna sína aðferð til að losna við óbragðið úr munninum.
Ég er farinn.

Hér eftir munu bloggskrif mín birtast á þessari gömlu slóð: undir fyrirsögninni: Um þetta vil ég segja eftirfarandi:

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (10)

  •   Mandla // 14.2 2011 kl. 11:51

    Áður en þú ferð, svarar þú kannski spurningu minni á öðrum þræði, Ekki hæft til birtingar án skætings eða birtingar persónulegs mats þíns á mér

  •   Hlynur Þór Magnússon // 14.2 2011 kl. 12:03

    Vistaskipti Páls Ásgeirs eru mikill skaði fyrir Eyjuna.

  •   einsi // 14.2 2011 kl. 13:15

    Hlynur Þór…..ditto

  •   Páll Ásgeir // 14.2 2011 kl. 13:19

    Mandlan heimtar svar. Ég hef afar takmarkaða þolinmæði gagnvart nafnleysingjum. Allir sem skrifa athugasemdir á Eyjunni eru beðnir að gefa upp netfang. Hinir huglausu nafnleysingjar laumast í kringum það með því að gefa upp röng eða stolin netföng. Mandlan er þar engin undantekning en hún segist hafa netfangið: stefs@hi.is. Þetta netfang er ekki til. Nú kann að vera að mandlan hafi misstigið sig á lyklaborðinu en þar til leiðrétting kemur fram verður möndlukvikindið ekki virt svars.

  •   Jón B G Jónsson // 14.2 2011 kl. 14:02

    Takk fyrir góða pistla Páll. Hlutverki Eyjunnar sem fréttamiðils er lokið . Þeir sem nú hafa eignast miðilinn eru ekki traustsins verðir og því miður verður hér eftir að líta á Eyjuna sem tæki til áróðurs fyrir dólga eins og pressan er að mínu mati.
    Eyjan var góð tilraun sem því miður mistókst.

  •   Einar K Haraldsson // 14.2 2011 kl. 15:42

    Ég mun sakkna þín :-)
    Ekki það að ég sé allatf sanmála þér, sennilega meira að segja sjaldan þegar kemur að útivist, en finnst þú skemtilegur penni.

    Sagði ekki eitthver líka að kosturinn við slæmar hugmyndir að þær ykju svo á tærleika þeirra góðu.

    Mun kíkja við á nýja spjallið. :-)

    E.Har
    Einar K Haraldsson

    Skil hinnsvegar ve´að þér líki ekki flærnar.

  •   Guðmundur // 14.2 2011 kl. 18:29

    Segi sama og Einar Har, það er eitthvað stundum við skrif sem maður er ósammála sem dregur mann til lesturs. Meira vit að gagnrýna góða penna en slæma. Kv Guðmundur.

  •   Páll Ásgeir // 15.2 2011 kl. 15:40

    http://hateigsvegur.wordpress.com/2011/02/15/aftur-i-timann/

  •   Þór Einarsson // 19.2 2011 kl. 17:54

    Tek undir hvert orð í þessum pistli.

    Fyrst verk þessara trúða var að eyðileggja Eyjuna og þær umræður sem þar voru. Ég fór inn á eyjuna til þess eins að taka þátt í þeim umræðum sem þar voru. Að nota það að nokkrir svartir sauðir voru inn á milli sem létu frá sér eitthvað skítkast finnst mér hæpið. Mjög auðvelt er að fjarlægja þannig komment og banna viðkomandi.
    En nei, notað var tækifærið og lokað á athugasemdir. Athyglisvert verður að sjá hve langt verður í að opnað verði aftur og þá fyrir þá sem skrifa undir með fullu nafni, kt. og skónúmeri.

    Takk Björn Ingi og co fyrir að eyðileggja þennan góða vettvang skoðannaskipta. Þú hefur ekkert breyst litli maður.

  •   Jón Gunnar Benjamínsson // 22.2 2011 kl. 14:59

    Heill og sæll Páll.

    Ég hef ekki alltaf verið þér sammála varðandi stefnur og strauma í útivistar og ferðamálum þar sem ég þarf að nota fjórhjól til ferðalaga vegna fötlunnar eftir bílslys. Hérna hittir þú hinsvegar naglann algjörlega á höfuðið.

    Hafðu góðar þakkir fyrir þessi skrif.

    Bestu kveðjur,

    Jón Gunnar Benjamínsson

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og sex? Svar: