Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Hver er maðurinn?

1.2 2011 | 16:23 | 13 ummæli

Mér áskotnaðist þessi mynd á dögunum. Hún er úr fórum Skúla Skúlasonar sem var einn af frumkvöðlum í ferðamennsku á Íslandi. Skúli tók þátt í starfi Ferðafélags Íslands frá stofnun en starfaði einnig með Nafnlausa félaginu sem var fyrirrennari FÍ frá 1916 til 1926.
Ég held að maðurinn lengst til vinstri sé Björn Ólafsson síðar ráðherra, við hlið hans stendur Einar Viðar, þá kemur óþekktur maður en næstur honum áminnstur Skúli Skúlason blaðamaður og fararstjóri. Maðurinn lengst til hægri gæti verið Helgi Jónasson frá Brennu en ég er samt ekki alveg viss.
Myndin er  tekin í einhverri ferð með Nafnlausa félaginu og má sjá merki félagsins á bílnum. Hún er ekki merkt með neinu ártali en freistandi að halda að hún sé tekin 1920-25 eða þar um bil. Ef einhver ber kennsl á manninn í miðjunni, vill votta að Helgi frá Brennu sé lengst til hægri eða yfirhöfuð leggja orð í belg verður því fagnað. Hvaða bíltegund er þetta t.d.?

Uppfært:

Ég er orðinn sannfærður um að maðurinn lengst til hægri er Tryggvi Magnússon og sennilega er „maðurinn“  í miðjunni Katrín Viðar, eiginkona Einars.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (13)

  •   Skjálgur // 1.2 2011 kl. 16:41

    Er ekki óþekkti maðurinn kona?

  •   Lára Hanna // 1.2 2011 kl. 16:47

    Þriðji maður frá vinstri er kona. Hún er í sams konar yfirhöfn og Einar Viðar og hallar sér upp að honum svo ég giska á að þetta sé konan hans.

    Bara ágiskun.

  •   Hlynur Þór Magnússon // 1.2 2011 kl. 17:35

    Bíllinn er af gerðinni Overland. Tegundarheitið er vel passandi í þessu tilviki!

  •   Páll Ásgeir // 1.2 2011 kl. 18:54

    Kona Einars hét Katrín Viðar. Ég held að þetta sé ekki hún. Einar dó 1923 sem er vísbending um aldur myndarinnar.

  •   Berentzov // 1.2 2011 kl. 19:51

    Mikið fágæti svona myndir. Það vekur athygli manns hversu myndin er skýr, góður fókus á viðfanginu. Vonandi tekst ykkur að finna svör við spurningunum.

  •   Páll Ásgeir // 1.2 2011 kl. 20:15

    Þeim fjölgar stöðugt dulnefnum þínum Berentzov.

  •   Hlynur Þór Magnússon // 2.2 2011 kl. 01:35

    Overland:
    http://clubs.hemmings.com/clubsites/wokr/gallery/o_107.htm

  •   asi // 4.2 2011 kl. 22:25

    „Þeim fjölgar stöðugt dulnefnum þínum Berentzov.“

    Þú gefur í skyn að þú veist meira en manneskjuna á bak við ip- tölunnar, en við hin — og um leið gerirðu lítið úr málflutningi þeirra.

    Sennilega er þetta röng hugsun.

    Vertu góður við fólk.

  •   Páll Ásgeir // 5.2 2011 kl. 08:17

    Ég veit vel hver er á bakvið dulnefnið Berentzov. Það bætist við 19 önnur „nikk“ sem viðkomandi hefur notað á þessu athugasemdakerfi. Ég veit líka hver „asi“ er.

  •   Kristján Sig Kristjánsson // 5.2 2011 kl. 12:48

    „………frá Brennu“ Ert að tala um Bergstaðastræti 12?

  •   Páll Ásgeir // 5.2 2011 kl. 18:16

    Já ég held að Brenna hafi staðið við Bergstaðastræti

  •   Einar Thoroddsen // 11.2 2011 kl. 23:30

    C´mon, þetta er ekki Ammakat, Jón og Einar Thoroddsen.

  •   Einar Thoroddsen // 11.2 2011 kl. 23:34

    Þessi þaddna er ekki einusinni líkur Einari Viðar. Hann leit út dolltið eins og Einar Steinn Valgarðsson og náttúrulega mamma okkar Nonna o. fl(og við þekktum hana).

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og tveimur? Svar: