Þriðja tölublað annars árgangs Fréttatímans kom hér inn um lúguna í morgun líkt og aðra föstudaga. Fréttatíminn er nýtt vikublað sem ég les oftast mér til skemmtunar og fróðleiks því margt í efnisvali og framsetningu blaðsins fellur mér vel. Þar vinna nokkrir langreyndir blaðamenn og fréttasnápar og sumir þeirra hafa skipað sér í fremstu röð í sínu fagi og það með réttu.
Í þessu þriðja tölublaði er viðtal við Þór Gunnlaugsson meintan læknamiðil. Hann er lögregluþjónn á eftirlaunum sem virðist hafa snúið sér að því að heilun og lækningastarfsemi. Hann markaðssetur starfsemi sína af talsverðri útsjónarsemi í viðtalinu með því stilla sér upp við hlið þekkta vörumerkja á þessu sviði á borð við Þorleif frá Bjarnarhöfn og Einar Jónsson frá Einarsstöðum sem voru hvor á sinni öld rómaðir fyrir meinta hæfileika sína.
Hinn fyrrum löggæslumaður segist ferðast eftir hugboðum þvert um heiminn til að lækna fólk og klykkir svo út með því að segjast hafa fengist talsvert við ofvirk börn.
Fólki er auðvitað frjálst að trúa því sem það vill en mér finnst ekki fallegt að blekkja foreldra veikra barna til sín með þessum hætti. Fjölmiðlar sem vilja láta taka sig alvarlega eiga ekki að tala við skottulækna eins og hæfileikar þeirra séu raunverulegir. Með því er verið að ala á hjátrú og vekja fólki falskar vonir.
Anna Kristine blaðamaður sem skrifar umrætt viðtal bítur svo höfuðið af skömminni með því að fullyrða í lok viðtalsins að loddarinn hafi læknað hana af verk í baki. Mér finnst þetta vera andstyggileg sölumennska og blekkingar af verstu tegund.
Á Íslandi í dag þurfum við mjög að halda á fjölmiðlum sem við getum treyst og Fréttatíminn hefur fram til þessa getað sagst vera án tengsla við þá sem steyptu landinu í glötun og fyrir vikið notið meira trausts en önnur blöð. Þetta traust má blaðið ekki misnota með því að bera svona þvætting á borð fyrir lesendur sína.
Ekki hæft til birtingar
21.1 2011 | 23:03 | 39 ummæli
Flokkar: Óflokkað
Ummæli (39)
Jóhannes Laxdal // 21.1 2011 kl. 23:22
Ég hélt að þú værir víðsýnni en þetta Páll
Teitur Atlason // 21.1 2011 kl. 23:33
Heyr Heyr!!
Kuklarar, gjaldmiðlar, árunuddarar og handanlæknar eiga að vera afhjúpaðir en ekki uppádubbaðir.
Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson // 21.1 2011 kl. 23:33
Þetta snýst ekki um víðsýni. Þetta snýst um að að blaðamenn eru að bera á borð þvætting sem á sér enga stoð í raunveruleikanum. Þetta er bara mjög svipað og völvan sem Stöð2 ber á borð fyrir áhorfendur sína á áramótum og er stöðinni til skammar. Mér þykir undarlegt að það sé einu sinni hægt að kalla þetta skemmtiefni.
Þorbjörn // 21.1 2011 kl. 23:35
Allt satt og rétt og „lækað“. Langar að benda á fyrirlestur Kens Robinsons, þar sem kemur fram að ovirkni gæti verið ofmetið vandamál: http://www.youtube.com/watch?v=zDZFcDGpL4U
En fyrirlestrar Kens eru yfirleitt mjög skemmtilegur vinkill á skólamál. Mæli með honum.
Kristján Sig Kristjánsson // 21.1 2011 kl. 23:47
„……………….meintan læknamiðil“.
Eftir þessu er það skoðun síðuhöfundar að læknamiðlar séu til. Fylgir hann þar í fótspor Morgunnblaðsins sem skrifaði árið 1940 þess efnis að Lára hefði verið „falsmiðill“ og „svikamiðill“. Hvorki dómstólar eða Morgunnblaðið útskýra hvaða hæfileikum miðill þarf að vera til að öðlast löggildingu.
Líka man ég eftir grein í nefndu blaði þar sem verkfræðingur Vegagerðarinnar hæðist að fólki fyrir að trúa að í ákveðnum steini, sem Vegagerðin ætlaði að sprengja, hefðu búið álfar. Í greinarlok kemur upp úr dúrnum að í þessum ákveðna steini hefðu aldrei búið álfar.
Það er svo sem ekkert að þessu.
Gönnsó // 22.1 2011 kl. 00:13
Hvað um trúarbrögðin almennt og alla þá steypu sem þeim fylgir? Að skammast út í blað útaf viðatali við gamalmenni, sem er líklega með alzheimer á byrjunarstigi, er að skamma Albaníu fyrir það sem Kína gerir.
gunnur // 22.1 2011 kl. 00:41
Ég hvet þig til að fara á fund hjá honum og segja okkur síðan frá reynslu þinni.
Jón Frímann // 22.1 2011 kl. 00:46
gunnur, Svona menn segja bara það sem þú vilt heyra. Það er vísindalega sannað.
Enda eru svikahrappar þeirrar gerðar að þeir vita hvað þú vilt heyra.
Kári Ævarsson // 22.1 2011 kl. 00:50
Er þetta bara orðið fastur liður í Fréttatímanum? Ógagnrýnið yfirnáttúruhorn Önnu Kristine?
Ýmigustur // 22.1 2011 kl. 00:50
En hvernig veit Páll Ásgeir að hér sé um blekkingar og svikamiðil að ræða sem vekur upp falskar vonir?
Afskrifar hann möguleikann vegna þess að hugmyndir hans um heiminn bjóða honum ekki annað eða hefur hann einhverja vitneskju umfram aðra um viðkomandi mann og hæfileika hans?
Ég fæ ekki betur séð en að hinn margreyndi blaðamaður sé hér að fara fram á ritskoðun af ákveðnu tagi.
GH // 22.1 2011 kl. 01:09
Meira fjör hér:
http://heilun.blogcentral.is/
Hólmfríður Bjarnadóttir // 22.1 2011 kl. 01:17
Páll Ásgeir
Orka hugans er einhver sterkasta orka sem til er í veröldinni. Það er til fullt af fólki sem trúir því að hægt sé að senda slíka orku manna á milli með jákvæðum árangir.
Það er ekkert til sem heitir falsvon – það er aðeins til VON.
Þó þú trúir ekki á þessa hluti, þá er ekki þar með sagt að þeir séu EKKI til. Fagna því að sem flest sjónarmið fái inni í Fréttatímanum.
Eiríkur // 22.1 2011 kl. 01:47
Hólmfríður
„Það er til fullt af fólki sem trúir því að hægt sé að senda slíka orku manna á milli með jákvæðum árangir.“
Það er líka til fullt af fólki sem trúir því að það læknist af eyðni við að hafa samfarir við börn.
„Fullt af fólki“ er ekki endilega hið gullna viðmið.
Gunni gamli // 22.1 2011 kl. 02:13
Fjöldi læknamiðla hafa starfað á Íslandi gegnum árin.
Sumir hafa „sannað sig“svo um munar og ber þar hæst Einar Jónsson á Einarsstöðum. Ég trúi að hann hafi verið nánast óumdeildur og ég veit reyndar um nokkra fleiri. Sammerkt þessum manneskjum hefur verið að taka ekki fé fyrir þjónustuna. Hún var veitt af mannkærleik en ekki til fjáröflunar.
En nú er öldin önnur í flestum skilningi og fólk farið að taka gjald fyrir þjónustuna. Það má segja þeir sem leituðu til Einars vonuðu að lækningar hans kæmu að gangi og voru þakklátir þegar svo var.
En þegar farið er að selja þjónustuna eru sjúklingarnir orðnir viðskiptavinir sem eigi sinn rétt.
Hver sá réttur er eða hvernig á að framfylgja honum er flóknara en svo að ég treysti mér í þá umræðu.
Jakob Bjarnar // 22.1 2011 kl. 02:30
Þetta eru sérkennileg skrif frá manni sem skrifaði í síðustu færslu sinni: „… umbúðalaus skrif hafa þó þann kost að lesendur sjá lóðbeint inn í hugskot höfundar“. Og sérkennileg skrif frá manni sem tók merkilegt viðtal við nýnasista nokkurn sem talaði eitthvað á þá leið um svarta manninn í Afríkunni að þar færu negrar með prik sem væru svo latir að þeir nenntu ekki að berja flugurnar af sér. Eitthvað sem dæmir sig sjálft. En nú á fjölmiðillinn skyndilega, að mati Páls, að fara að hafa vit fyrir lesendum og hleypa alls ekki þar að mönnum sem eru með aðra sýn, eða aðrar skoðanir, en hann sjálfur. Hvernig ber að skilja þetta?
Hólmfríður Bjarnadóttir // 22.1 2011 kl. 03:14
Eiríkur
Það er ekki stórmannlegt að bara saman fólk sem er að gera jákvæða hluti eins og heilun annarsvegar og barnaníðinga hinsvegar. Þegar við brosum hvert til annars hefur það jákvæð áhrif og okkur líðum betur, það er ákveðin heilun. Ég bið gjarnan fyrir fólki og það er ákveðin heilun. Ég sendi fólki líka orku og það er ákveðin heilun. Svona mætti lengi telja.
Svo er líka hægt að senda neikvæða orku, til dæmis með að skrifa neikvæð og niðrandi ummæli á netið. Fyrir þannig orku er nauðsynlegt að kunna að verja sig.
Thor K // 22.1 2011 kl. 05:27
Við eigum ekki að gera minni kröfur til meintra miðla, kraftaverkalækna og „alternativ“ „lækninga“ en við gerum til lækna. Lyf og lækningaraðferðir þurfa að ganga í gegnum strangt prófunarferli til þess öðlast viðurkenningu. Það var einmitt vegna áskóknar kuklara og alls kyns gervilyfjasölumanna að þetta kerfi var sett upp til verndar almennum borgurum á 19 öld. Það kerfi virðist nú vera að molna niður og „víðsýnir“ og „opnir“ borgarar eru aftur orðnir berskjaldaðir fyrir þessum ábyrgðarlausu kuklurum.
Bjarni Tryggvason // 22.1 2011 kl. 07:43
Það ætti að henda honum í grjótið fyrir fjárplógsstarfsemi. Og íslendingar alveg standa í röðum til að lepja delluna og kuklið upp úr honum.
Pétur Maack // 22.1 2011 kl. 11:20
Langlundargeð Íslendinga gagnvart svona hugarburði sætir furðu.
Þegar heilbrigðisvísindi eru annars vegar drita menn samsæriskenningum út og suður og flestir eru tilbúnir að gagnrýna lækna og þeirra störf af minnsta tilefni.
Þegar svo kemur að svona fólki sem gengur fyrir ‘energý og trú’ snýst dæmið við og þeir sem voga sér að gagnrýna húmbúkkið eru sakaðir um þröngsýni.
Þessi oftrú á heilsufalsspámenn er nákvæmlega af sama meiði og oftrúin á að við yrðum öll rík af því að bítta á hlutabréfum. Má ég lýsa eftir gagnrýnni hugsun?
Eiríkur Hinn // 22.1 2011 kl. 11:23
Hólmfríður:
„Ég sendi fólki líka orku og það er ákveðin heilun.“
Hversu mikla orku sendirðu?
Er ekki hætta á að orkan lendi í öðrum en miðað var á, t.d. búsmala?
Bjarnveig Ingvadóttir // 22.1 2011 kl. 11:39
Veit ekki til þess að hægt hafi verið að sanna gagnsemi þessara svokölluðu lækningamiðla.
Sumt lagast nefnilega með tímanum óháð allri meðferð. Almennt var/er það fólk sem telur sig hafa fengið lækningu að handan einnig í meðferð hjá hefðbundnum læknum og hverning er þá hægt að sanna hvað virkaði.
Svo hef ég aldrei skilið hverning læknar sem voru uppi fyrir tugum og hundruðum ár og með litla þekkingu miðað við þekkingu í dag geti bætt heilsu fólks umfram lifandi lækna.
Hlynur Þór Magnússon // 22.1 2011 kl. 11:40
Leyfi mér að taka eindregið undir sjónarmið Páls Ásgeirs.
Guðjón Eyjólfsson // 22.1 2011 kl. 12:51
Hverjir voru það sem steyptu landinu í glötun? Voru það spíritistar eða blaðamenn sem fjölluð á ógagnrýnin hátt um spíritisma? Ég get vel skilið að Páli sé illa við ógangrýnina umfjöllun um spíritisma en það er algjörleg fráleitt hjá Páli að tengja óbeit sína á spíritistum við hrunið.
Hólmfríður Bjarnadóttir // 22.1 2011 kl. 13:17
Eiríkur Hinn // 22.1 2011 kl. 11:23
Hótfyndnin fer þér ekki vel. Jákvæð hugarorka getur eingann skaðað.
Jónas Sigurðarson Lundarbrekku // 22.1 2011 kl. 13:28
Sæll Páll Ásgeir.
Farðu þér svolítið hægar, Einar á Einarsstöðum var Jónsson.
Kveðja til þín og konu þinnar.
Jónas á Lundarbrekku.
Páll Ásgeir // 22.1 2011 kl. 14:06
Takk fyrir þetta Jónas. Hefur verið leiðrétt.
Eiríkur // 22.1 2011 kl. 14:44
Hólmfríður.
Ég var ekki að leggja að jöfnu atferli kuklara og barnaníðinga heldur benda á að það er ekki línulegt samband milli sennileika bulls og fjölda þeirra sem trúa því.
Eiríkur Hinn // 22.1 2011 kl. 15:02
Hólmfríður:
Tali hver fyrir sig.
Ég varð einu sinni fyrir mjög jákvæðri orku frá ömmu minni og brákaðist illa á hjarta. (Ekki líffærinu, heldur, þú veist, tilfinningunni).
Haukur Kristinsson // 22.1 2011 kl. 15:05
Þetta eru leifar af fáfræði fortíðarinnar; draugar, afturgöngur, huldufólk, miðlar, læknamiðlar og allskonar kukl og vitleysa. Það versta er að mikið af þessu er skráð í bækur og það af ritsnillingum. Minni t.d. á Ævisögu Árna, rituð af Þorbergi. En þar er mikið af þessu glórulausa bulli um slíka hæfileika Þorleifs frá Bjarnarhöfn. Og Þorbergur kallinn trúði þessu sjálfur.
Þórður Áskell Magnússon // 22.1 2011 kl. 15:28
Það serm fólk virðist ófært um að skilja er að ef þessi „læknir“ getur sannað að hann lækni fólk, að hann sanni að þetta virki, þá breytist það sjálfkrafa úr því að vera óhefðbundin læknisfræði yfir í að vera hefðbundin læknisfræði.
Ég get haldið því fram hér og nú að ég geti með andakukli læknað hælsæri, grætt útlimi á fólk og læknað mænuskaða. Á meðan ég get ekki sannað það að ég geti þetta með nokkru móti þá er ekki bara hægt að kalla mig fjárplógsmann og kuklara, það er skylda. Svo einfalt er það..
Pétur Maack // 23.1 2011 kl. 10:40
Það er fyndið hvernig heimska og víðsýni hafa orðið að samheitum í hugum sumra. Og það að sanngildi hugmynda geti ráðist af því hversu margir trúa þeim er neyðarlegur brandari. Með þessum rökum hefði jörðin líklega verið flöt fram eftir öldum, síðan orðið að hnetti í sólkerfinu (alheimunum?!) miðju og loks tekið sér stöðu sem reikistjarna eftir að sú hugmynd náði almennri hylli.
Að sjálfsögðu ganga hlutirnir ekki þannig fyrir sig. Hlutir og fullyrðingar eru annað hvort sönn eða ósönn. Þegar skottulæknar fullyrða að þeir geti læknað hina ólíklegustu kvilla fylgir því sú sjálfsagða skylda að sína fram á að þeir hafi rétt fyrir sér. Fjölmiðlar eiga að rukka þá um skýringar en ekki róa undir með vitleysunni.
Að blanda víðsýni í þetta er algerlega óviðeigandi; réttara er að tala um trúgirni og fáfræði.
Skítlegt eðli // 25.1 2011 kl. 18:18
Koma verður í veg fyrir að MAGMA kaupi þessa orku
Jónína Óskarsdóttir // 26.1 2011 kl. 23:21
Við heimtum vísindalegar sannanir fyrir;
ást,
fegurð,
vináttu,
trúarbrögðum
- og öllu heila klabbinu!
Ekki umfjöllun um þessi mál fyrr en þetta allt er vísindalega sannað.
Anna Kristine // 11.2 2011 kl. 22:06
Sæll Páll Ásgeir og þið öll sem hafið svona sterkar skoðanir á þessum manni. Ykkur til fróðleiks þá rukkar Þór Gunnlaugsson ekki fyrir heilunartímana. Og ég bið þig Páll Ásgeir að væna mig ekki um lygar. Þér hefði nú verið í lófa lagið að hringja bara í mig og ræða við mig um þessi mál. En vantrú þín er mikil og svo verður bara að vera. Með kveðju, Anna Kristine.
Tóti // 12.2 2011 kl. 04:21
Það var nákvæmlega þetta sem ég ætlaði að koma inn á, þið ráðist fram og drullið yfir Þór án þess að vita nokkuð um manninn, ég veit ekki til þess að hann hafi nokkurn tíma rukkað nokkur mann fyrir þjónustu sína, samt er hann tilbúinn að aðstoða og hjálpa öllum sem til hans leita.
Það eina sem ég get bent fólki á sem hraunað hefur yfir Þór að þið ættuð kannski að leita til hans og reyna að láta hann hjálpa ykkur að öðlast innri frið í stað þess að fá resept fyrir heilsusamlega læknadópinu hjá læknum ríkisins, og ekki eru þau lyf ókeypis, hvað svo sem þau heita.
Helen. // 12.2 2011 kl. 21:58
Ég vona að þið sem skammist hérna og teljið ykkur hafin yfir allt sem heitir hugarorka, heilun og kærleikur, eigið eftir að ná áttum.
Þór hefur ekki tekið krónu fyrir það sem hann gerir til að hjálpa þeim sem til hans leita. Hann telur ekki eftir sér að heimsækja sjúkrahús til hjálpar þeim sem til hans leita. Það að hann skuli vera með kyrrðar , hugleiðslu , og bænarstundir fyrsta mánudag í hverjum mánuði þar sem fleiri hundruð manns mæta til að fá hugarró, það segir ansi mikið um manninn.
Ekki tekur hann krónu fyrir það frekar en annað. Mér þætti gaman að sjá ykkur hofmóðugu sem hafið verið að rakka Þór niður hérna á síðunni , gefa ykkar dýrmæta tíma endalaust til óskyldra.
Það að Þór skuli vera velkomin í kirkju , segir meira en orð, um“ kukklið.“
Ég skora á ykkur vantrúuðu að mæta í næstu kyrrðarstund í Bústaðarkirkju og upplifa sjálf það sem hann hefur að gefa .
Vonandi fáið þið þar hugarró og frið.
Í Guðs friði.
Páll Ásgeir // 13.2 2011 kl. 16:21
Ég sé að sölumenn gagnslausra engiferdrykkja (Helen) eru mættir hér til að taka upp hanskann fyrir loddarann Þór.
Að selja fólki litað vatn með engiferbragði og ljúga því að það lækni öll þess vandamál er ekkert annað er svikastarfsemi af verstu tegund og ber að taka öllum málflutningi slíkra sölumanna með varúð. Eðlilega vilja þeir ala á hjátrú og hindurvitnum eftir megni því þeir hafa lifibrauð sitt af fáfræði auðtrúa fólks.
Mandla // 14.2 2011 kl. 09:21
Hver ert þú að kalla aðra loddara ? Hefur þú hitt Þór eða notið krafta hans ?
Samt telur þú þig færari öðrum að dæma, hvernig getur þú rökstutt þann dóm?
Helen. // 16.2 2011 kl. 23:13
Gott hjá þér að finna svikara í mér Páll

Ég tel mig alveg manneskju til að standa undir því ámæli, ef það er nóg til að gera mig að svikara
Flott komment hjá þér og sýnir hversu vel þú ert gerður.
Eigðu góða daga og Guð veri með þér
Rita ummæli