Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Í nafni hinnar þöglu þjóðar

14.1 2011 | 16:42 | 17 ummæli

Margir hafa orðið til þess að lýsa áhyggjum sínum af þeirri hörku sem oft gætir í opinberri umræðu hin síðari misseri. Ýmis vefsvæði þar sem menn segja skoðanir sínar umbúðalaust vekja athygli fjölmiðlamanna sem henda ummælin á lofti. Um þetta eru mörg dæmi og nú síðast vakti óhug og skelfingu bréf sem Þórarinn nokkur sendi aðstoðarmanni ráðherra Höllu Gunnarsdóttur.
Bréf eins og það og ýmislegt sem menn skrifa á vefsíður kann að vekja óhug en umbúðalaus skrif hafa þó þann kost að lesendur sjá lóðbeint inn í hugskot höfundar.  Þeir geta síðan dregið sínar eigin ályktanir af því sem höfundur setur fram. Oft á tíðum þarfnast það ekki sérstakrar túlkunar því þegar menn tala beint úr pokanum þá birtist heimsmynd þeirra og viðhorf án mótunar af pólitískri rétthugsun eða kurteisi.

„Við sem erum raunverulega þjóðin og viljum hafa frelsi til að ferðast, frelsi til athafna, frelsi til framkvæmda, frelsi til skoðana, þurfum að standa upp og taka til máls. Við megum ekki láta einhverja menntahópa, listafólk, rithöfunda eða aðra taka okkar málefnalega umhverfi og jafnvel tala í okkar nafni … Við þetta venjulega fólk (þjóðin innan F4x4) sitjum síðan uppi með vandamálið og þurfum að takast á við það.“

Þessar línur hér að ofan urðu á vegi mínum á vef jeppaklúbbsins 4×4. Höfundur þeirra er Guðmundur G. Kristinsson sem er framarlega í félagsstarfi þess klúbbs og formaður nýstofnaðra samtaka sem kalla sig Ferðafrelsi. Mér finnst engin sérstök ástæða til að túlka þennan texta því mér finnst hann varpa afar skýru ljósi á heimsmynd og viðhorf Guðmundar og félaga hans.
Ég hef löngum vitað að vaskir baráttumenn í þessum ágæta klúbbi telja sig vera í stríði við ýmsa embættismenn og náttúruverndarmenn en ég vissi ekki fyrr en ég las þessi orð Guðmundar að flest menntafólk þjóðarinnar, listamenn og rithöfundar væru öfugu megin víglínunnar og teldust ekki til þjóðarinnar.
Sennilega er rétt að taka fram að ekki er víst að allir félagsmenn deili viðhorfum Guðmundar því um líkt leyti skrifar einn félagsmanna, Klemens Klemensson eftirfarandi af öðru tilefni:
„Ég verð að viðurkenna að stundum skammast ég mín fyrir hversu yfirgangur 4×4 er mikill.“
Aðeins fullgildir félagsmenn hafa skrifaðgang að vef klúbbsins og þessum ummælum Klemens mótmælti enginn en einn félagi tók undir þessa skoðun hans.  Af því mætti án efa draga ýmsar ályktanir þótt það verði ekki gert hér.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (17)

  •   Jón Frímann // 14.1 2011 kl. 17:03

    Á Íslandi eru skoðanir barðar niður, með ofbeldi ef þess þarf.

  •   Snorri Ingimarsson // 14.1 2011 kl. 17:13

    Rétt er að benda á að skrif félagsmanna í Ferðaklúbbnum 4×4 eru hér tekin úr samhengi á svipaðan hátt og sorpblaðamenn vinna. Ég hvet fólk til að fara á http://www.f4x4.is og http://www.ferdafrelsi.is til að kynna sér hvaða ógn gegn ferðafrelsi almennings býr að baki þeim skrifum sem vitnað er til.

    Svo bendi ég að pistlahöfundur fer einhverra hluta vegna rangt með nafn hagsmunasamtaka þeirra sem ferðast á eigin vegum á jeppum um landið. Samtökin heita réttu nafni „Ferðaklúbburinn 4×4″ og þau hafa undanfarin 27 ár unnið mikið og árangursríkt starf í þágu náttúruverndar á Íslandi.

  •   Snorri Ingimarsson // 14.1 2011 kl. 17:18

    Ég bendi á að hér eru skrif sem vitnað er til tekin úr samhengi. Ég hvet fólk til að fara á http://www.f4x4.is og http://www.ferdafrelsi.is til að sjá hvaða ógn gegn ferðafrelsi almennings býr að baki þessum skrifum félagsmanna í Ferðaklúbbnum 4×4.

  •   Gunnlaugur Ingvarsson // 14.1 2011 kl. 18:59

    Jón Frímann.
    En hvernig er skoðanakúgun ESB elítunnar í Brussel.

    Þar sem ESB rétttrúnaðurinn er það eina sem leyfist og stanslaust er reynt að kúga og þagga niður í endurskoðendunum sem reyna ítrekað að fletta ofan af ósómanum og siðspillingu valdaelítunnar.

    Þetta 4×4 mál er stormur í vatnsglasi miðað við sorann og viðbjóðinn hjá ESB elítunni í Brussel, mundu það nú kjánaprikið þitt !

  •   Reynir Sigurðsson // 14.1 2011 kl. 19:33

    Gunnlaugur Ingvarsson: Þetta ofstæki þitt er nú svolítið hlægilegt ,trúirðu þessu virkilega sjálfur.

  •   Jón Frímann // 14.1 2011 kl. 19:46

    @ Gunnlaugur Ingvarsson, Þessi bull þitt er sorglegt, sérsatklega í ljósi þess að þú ert búinn að mála þig útí horn með þetta ofstæki þitt.

    Þú átt ennfremur heima í ESB ríki (Spáni) og hefur það gott. Eins og allir vita sem hafa kynnt sér málið. Þá er Spánn aðildarríki að ESB og hefur verið lengi.

  •   Gunnlaugur Ingvarsson // 14.1 2011 kl. 21:44

    „Ofstæki“ segir þú Jón Frímann og Reynir ! Hverjir eru raunverulegu ofstækismennirnir, lítið ykkur nær strákar !

    En endilega skoðið þið bara hvernig soraspillt ESB valdaelítan hefur skipulega og grimmt reynt að þagga niður í heiðvirðu fólki sem jafnvel hefur unnið í áratugi að trúnaðarstörfum innan innri endurskoðunar ESB elítunnar en sér sig nú í nafni réttlætisins knúið til að segja frá og blöskrar sukkið og svínaríið þar á bæ og reynir að segja frá því !

    ESB Spillingar Elítan og þeirra rakkara pakk reyna nú skipulega og skefjalaust að þagga þau niður.

    ÞETTA SIÐSPILLTA OG OFALDA ELÍTUPAKK ESB APPARATSINS MINNIR ALLTAF Æ MEIRA Á HIN HREINTRÚUÐU SOVÉTRÍKI OG HINNAR EINU SÖNNU „ALÞÝÐU“, SEM ALLTAF TÖLDU SIG HANDHAFA STÓRA SANNLEIKANS !

  •   Lana Kolbrún Eddudóttir // 14.1 2011 kl. 22:24

    Ekki safnast þér elegant umræðufélagar, monsjör. Það er nú alveg spurning hvort konu langar að sjá inn í öll þessi hugskot sem hér eru viðruð…

  •   Páll Ásgeir // 14.1 2011 kl. 22:27

    Hástafir eru afar áhrifamikið stílbragð.

  •   Einar Karl // 14.1 2011 kl. 22:36

    Sæll Páll Ásgeir,

    þú minnist á bréfið ógeðslega sem var sent Höllu Gunnarsdóttur. Ef Þórarinn þessi hefði nú skellt inn bréfi sínu sem kommenti við frétt DV í gær um blogg Höllu, hefði slíkt komment átt að fá að standa óáreitt, miðlað til alþjóðar af vef DV?

    Er samfélagið eitthvað bættara ef menn fá óáreitt að tjá skoðanir sínar án þess að „fela“ í kurteisi? Hlýtur ekki að vera einhvers staðar fín lína, hvað má, og hvað á eitthvert erindi í opinbera umræðu?

    Margt af því sem kemur fram í kommentum DV.is-lesenda við fréttina um Höllu er mjög ljótt og meiðandi. (T.d. komment um hvað hún sé ljót, asnalega máluð, hversu mikið hún „sýnir“ af brjóstunum á sér, o.fl.)

    Spurningin til fjölmiðla – og ekki síst DV – er sú, finnst þeim í lagi að búa til og bjóða fólki vettvang til að birta nánast hvaða viðbjóð sem er? Hvar dregur DV línuna? Ber DV enga ábyrgð á því sem birtist á þeirra vef?

  •   Guðbjörn Guðbjörnsson // 14.1 2011 kl. 22:39

    Hreint og beint kostuleg umræða!

    Á maður að hlæja eða gráta?

  •   nn2 // 15.1 2011 kl. 00:03

    Guðbjörn, þú átt að gráta úr hlátri

  •   Jakob Bjarnar // 15.1 2011 kl. 10:55

    „Bréf eins og það og ýmislegt sem menn skrifa á vefsíður kann að vekja óhug en umbúðalaus skrif hafa þó þann kost að lesendur sjá lóðbeint inn í hugskot höfundar.“

    Vel mælt. Menn vilja gleyma því að ýmislegt sem sagt er og skrifað dæmir sig sjálft. Ég fæ ekki séð með góðu móti hvernig á að reisa skorður við því eins og að bölsótast út í DV með að hafa athugasemdakerfi við fréttum opið; jafnvel að slíkar hugmyndir feli í sér vísi af mannfyrirlitningu þá þannig að sú skoðun hlýtur að grundvallast á þeirri trú að helftin kokgleypi allt sem hún sér og heyrir gagnrýnilaust. Tilgangurinn helgar ekki meðalið. Það breytir ekki því að ýmislegt sem maður sér á Netinu vekur furðu en leita má huggunar í því að hvorki efi né sjálfsgagnrýni eru eiginleikar sem finna má í uppskrift að óheftum vitleysingi. Þannig eru slíkir eðli málsins samkvæmt mest áberandi.

  •   Guðmundur G. Kristinsson // 15.1 2011 kl. 12:56

    Þessi tilvitnun mín sem Páll Ásgeir er að vísa til kemur fram í umræðu um texta sem ég setti saman fyrir nokkru. Þar er ég að vísa til þess að fólk (þjóðin) láti ekki einhverja sérhagsmunahópa teyma sig út í eitthvað sem það vill ekki.

    Öfgarnar sem Páll Ásgeir nefnir, er barátta venulegs fólks fyrir því að hafa frelsi til að ferðast um landið og í samtökunum Ferðafrelsi eru þessir aðilar að sameinast um þetta „öfga“ baráttumál sem ferðafrelsi okkar er. Ég hvet fólk til að skoða vefsíðuna http://www.ferdafrelsi.is og mynda sér persónulega skoðun á þessum öfgum sem Páll Ásgeir nefnir.

    Þjóðin sem ég er að tala um eru allt fólkið í samfélaginu, ekki bara þeir sem hafa sig mest í frammi og jafnvel segjast tala fyrir þjóðina. Ég tók þessa hópa sem koma fram í textanum sem dæmi, en hefði eins getað sagt „pípulagningamenn, húsmæður og bókarar“. Ekki má gleyma því sem kemur á eftir hópunum „og aðra“. Allir þessir hópar teljast til þjóðarinnar, því það er til listafólk, rithöfundar, pípulagningamenn, húsmæður og bókarar og aðrir sem ekki endilega koma fram og tala fyrir þjóðina.

    Til gamans þá set ég hér fyrir neðan textann sem ég er að vísa til með ummælum mínum. Ég vill taka það fram að ég tala þar fyrir mig persónulega, en ekki annað fólk, félög eða samtök. Þetta er mín skoðun og það má dæma mig eftir henni!

    NOTA NÁTTÚRUVENDARSINNAR FALIN VOPN?
    - loka þeir hálendinu til að ekki verði byggð álver

    Það hefur verið skondið að fylgjast með umræðu og umfjöllun um náttúruvernd á Íslandi undanfarin ár. Þar hefur farið fremst sjálfskipað baráttufólk með mikla andagift sem segist vera að berjast fyrir sig, mig og alla hina í landinu sem ekki þora eða vilja tjá sig. Þarna má sjá mikið af listafólki, rithöfundum, leikurum og öðrum sem telja sig skapandi fólk með mikla ábyrgðartilfynningu fyrir landinu.

    Maður fylltist stollti á þessu fólki að standa upp og tala fyrir heilagri baráttu um fallegt land til framtíðar sem ekki megi spilla með virkjunum og þeim framkvæmdum sem fylgja stóriðju. Oftar en ekki talar þetta fólk fyrir grænum atvinnuskapandi verkefnum sem eigi að taka upp í staðinn fyrir byggingu álvera. Það sé meira í lagi að byggja orkuver til að skapa grænum verkefnum tækifæri, en hinum megunarmiklu álverum. Því miður finnst mér þessir sömu aðilar líka hafa staðið í veginum fyrir grænu verkefnunum!!

    Bíðum við, þetta hljómar alveg rosalega vel. Meira segja ég keypti þetta lengi vel, allavega að hluta til. Upp á síðkastið hef ég farið að efast um heiðarleika þessara aðila og að kannski sé eitthvað annað á bak við þetta allt! Stækkun á Þjórárverum var það mál sem setti upp hjá mér spurningar um raunverulegan tilgang fyrir náttúruvernd. Voru þessir aðilar kannski bara á móti virkjanaframkvæmdum á svæðinu og voru að misnota baráttu fyrir náttúruverndun með stækkun friðlandsins, til að koma í veg fyrir virkjanaframkvæmdir á svæðinu og þar með að ekki væri hægt að byggja álver.

    Þessi efi um heiðarleika þessara aðila kom líka upp hjá mér varðandi Vatnajökulsþjóðgarð, en þar átti að loka mörgum ferðaleiðum og engin náttúrufræðileg rök virtust liggja þarna að baki. Í grein frá nokkrum þjóðgarðsvörðum fékk ég staðfest að eitthvað skrýtið væri þarna á ferðinni. Þau segja að Vonarskarðleið sem átti að loka, sé eingöngu fær breyttum jeppum. Ég þekki nefnilega fólk sem hefur farið þarna á Subarú, sem varla getur talist breyttur jeppi. Tekið skal fram að Subarúinn var óbreyttur. Vonarskarðsleið hefur verið þjóðleið íslendinga yfir hálendið í hundruði ára.

    Eftir að hafa fengið bakþanka um þessa baráttuglöðu náttúruverndarsinna, held ég að við sem teljumst til hins almenna almúga í þessu umhverfi, þurfum að fara að leggja okkar af mörkum inn í umræðuna í þessum málaflokkum. Við megum ekki láta eitthvað baráttuglatt fólk með einhverja furðulega hug-myndafræði taka okkur og nota sem viljalaust verkfæri í baráttu, sem við viljum kannski ekki taka þátt í.

    Ég er félagi í Ferðaklúbbnum 4×4 og hef mikið ekið um hálendi Íslands, bæði að sumri og vetri. Ég er í nefnd klúbbsins sem stendur fyrir nýliðaferðum fyrir fólk sem er að byrja að ferðast inn á hálendið og þar hafa þúsundir aðila fengið námskeið og kennslu í að ferðast á ábyrgan hátt um hálendi Íslands. Mér blöskraði þegar átti að loka leiðum í Vatnajökulsþjóðgarði með engum haldbærum rökum og banna akstur á snjó í Þjórsárverum. Ég ákvað persónulega ásamt mörgum öðrum að berjast fyrir skynsamlegri stefnu í þessum málum og hætta að láta baráttuglaða öfgasinna nota okkur sem viljalaust verkfæri.

    Ég er ekki að berjast fyrir álverum eða virkjum, heldur skynsamlegri þátttöku almennings í uppbyggingu á landinu til framtíðar. Þess vegna hvet ég alla almenna íslendinga til að vakna og láta í sér heyra. Ekki láta misvirta sérhagsmunaaðila draga ykkur á asnaeyrunum inn í eithvert framtíðarsamfélag sem byggist á hugmyndafræði sem byggt er á blekkingum.

    Guðmundur G. Kristinsson

  •   Páll Ásgeir // 15.1 2011 kl. 13:36

    „Öfgarnar sem Páll Ásgeir nefnir…“

    Ég sagði í pistli mínum að oftast væri óþarft að leggja út af eða túlka texta því skýrast talar hann sjálfur.
    Orðið öfgar kemur hvergi fyrir í þessum skrifum. Guðmundur kýs þó að leggja mér það orð í munn en verður að lesa betur ef hann hyggst finna þeirri skoðun sinni stað.

    Ég ítreka það sem ég hef áður sagt að mér finnst ekki ástæða til að kalla öfgamenn þá sem eru á annarri skoðun en maður sjálfur.

  •   Guðmundur G. Kristinsson // 15.1 2011 kl. 16:05

    Þetta er alveg rétt Páll Ásgeir og bið ég þig afsökunar á því að leggja þér þetta orð í munn.

  •   Einar K Haraldsson // 17.1 2011 kl. 09:16

    Páll skemmtilegur að vanda.
    Hefur gaman að því að efni til nokkurs ófriðar :-)
    Hrærir í hlutunum, oftast að ég tel sjálfum sér til ánægju, umræður eru til alls fyrst.
    Ég tel mig til þess hluta sem hann flokkar sem vaska baráttumenn, ;-) Þó ég sé ekki í ferðaklúbbnum 4×4. En í Stjórn Ferðafrelsis.

    Held að Páll egi í raun mikklu mikklu meira sameiginlegt með okkur í Ferðafrelsi heldur en hann gerir sér grein fyrir. Baráttu mál okkar eru einföld. Reyna að tryggja ferðafrelsi á Íslandi og verndun landsins. Bæði málin eru held ég Páli hjartfólgin. Það er bjargföst trú mín að það eigi að leyfa almenningi að ferðast um, njóta og nota Ísland svo fremi sem það veldur ekki skaða á landinu. Fyrir vikið deilum við skoðunum á t.d. utanvegarakstri ofl. Ég vil hinsvegar að allir hafi rétt á að nota og njóta en ekki bara fámennir hópar. Þar skilur sumpart í milli. Ekki þó svo alvarlega enda tel ég að í stóru málunum séum við sammála.
    Það að við séum í baráttu við ákveðna embættismenn og náttúruverndarfélög er einfaldlega rangt. Við erum í baráttu fyrir ferðafrelsi og verndun landsins. Mér er t.d óskiljanlegt að banna umferð reiðhjólandi manna um Guðlaugstungur sem eru friðlýstar með tilliti til jarðfræðimyndana. Í því máli er ég baráttumaður fyrir hjólreiðamenn. Að einar Bolla megi ekki ríða Bárðagötu með 2 til reiðar er fáránlegt. Þar er ég baráttumaður fyrir hestamenn Að ekki megi labbi í snjónum í nóvember við Snæfell. Þar er ég baráttumaður fyrir rjúpnaveiðimenn. Að stangveiðimenn megi ekki lengur aka að helstu veiðistöðum við Þórisvatn, þar er ég baráttumaður fyrir stangveiðimenn. Að ekki megi lengur aka trúss bíl upp að Kerlingu, þar er ég baráttumaður fyrir göngumenn og svo mætti lengi telja.
    Auðvitað má margt betur fara. Hugsa að ég sé helst baráttumaður fyrir meiri skinsemi og vandaðri vinnubrögðum þegar kemur að friðunum og í raun hvernig við viljum umgangast Ísland. Í því held ég að við Páll Ásgeir séum sammála þó við séum ekki samstíga um þær reglur sem okkur finnst að þar egi að gilda.

    E.Har

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sex og átta? Svar: