Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Nýtt og betra líf

6.1 2011 | 15:47 | 1 ummæli

Það er auðvelt að strengja áramótaheit en erfiðara að fylgja þeim eftir. Ég er tíður gestur í ónefndri líkamsræktarstöð og sé að þessa dagana er góð aðsókn að stöðinni. Ef ég vildi skopast að samborgurum mínum þá myndi ég segja að hinir sakbitnu hamstrar sem troða tröppuvélar í svitabaði væru á harðaspani undan aukakílóum og sukki jólanna.
Þeir sem henda gaman að hjarðhegðun gefa sér þær forsendur að þegar kemur fram í febrúar leggist hverflynd alþýðan að konfektbaukum sínum á ný og gleymi strengdum áramótaheitum þar til á sama tíma að ári.
Ég held að margir skilji vel að lífið er langhlaup og geri sér grein fyrir því að ekki þýðir að breyta lífsstíl sínum í einhverjum krampakenndum átökum. Í þeim efnum er sígandi lukka best og betra að fara hægt og komast á leiðarenda.
Ferðafélag Íslands hélt í gærkvöldi kynningarfund vegna átaks sem fels tí því að ganga á 52 fjöll á ári. Rúmlega 300 manns mættu sem ber vott um hinn mikla og sívaxandi áhuga fólks á fjallgöngum og útivist. Á gamlársdag lauk samskonar átaki sem staðið hafði allt árið 2010. Þar kom í ljós að þótt 52 fjöll á ári sé býsna mikil skuldbinding þá voru rúmlega 100 manns sem skiluðu glæsilegum árangri og stunduðu göngurnar af miklu kappi. Margir tugir náðu 100% mætingu.
Átakið hefst á laugardaginn með göngu á Úlfarsfellið. Það er ekki sérlega hátt fjall en það er eitt skref á langri leið. Á listanum yfir fjöllin 52 sem FÍ ætlar að ganga á eru bæði Hvannadalshnúkur og Öskjuhlíð svo segja má að allt fjallróf Íslands sé tekið fyrir.
Á árinu sem er nýliðið var alveg sérstaklega skemmtilegt að fylgjast með einbeittum fjallgöngumönnum og konum sem tóku þátt í Eitt fjall á viku með FÍ. Við sem fengumst við leiðsögn hópsins kynntumst honum betur en mörgum öðrum hópum og fengum sjá marga taka ótrúlegum framförum og breytast úr ólögulegum sófakartöflum í stælta göngugarpa með fjaðurmagn í spori.
Ég get því ekki annað en hlakkað til þess að fylgja næsta hóp í gegnum verkefni ársins.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (1)

  •   Kristján // 6.1 2011 kl. 17:18

    Göngugarpur eins og þú þarft ekki að vera þvælast inn á líkamsræktarstöð, nema auðvitað að þú viljir massa þig upp eða horfa á útsýnið. Ég held að flestir hlunkarnir sem sækja þessar stöðvar, ættu að hætta þessari vitleysu og fara út að ganga. Ekkert að keyra neitt, bara klæða sig eftir veðri og ganga úti úr húsinu og út í ferska loftið. Just do it ! Eftir nokkra áratugi verður hlegið að þessari vitleysu að borga sig inn í hús til að ganga eða hlaupa.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og þremur? Svar: