Hver dagur flytur nýjar fréttir af óhóflegri díoxínmengun þar sem sorpi er enn brennt við frumstæðar aðstæður. Í ljós kemur að Ísafjörður var ekki eini staðurinn þar sem eitri langt yfir mörkum var dælt yfir grunlausa íbúa. Það var einnig gert á Kirkjubæjarklaustri og í Vestmannaeyjum.
Umhverfisstofnun hefur altsvo í þrjú ár vitað um heilsuspillandi starfsemi þessara úreltu brennsluofna en virðist ekki hafa séð ástæðu til þess að aðhafast neitt. Eitthvað hefur verið pískrað um málið í eyru sveitarstjórnarmanna en langlundargeð Umhverfisstofnunar er með ólíkindum. Það er ekki fyrr en nú- þremur árum eftir að hinar skuggalegu mælingar lágu fyrir sem stofnunin drattast til þess að gefa umræddum stöðvum tveggja ára frest til úrbóta.
Þetta er gert í skugga uppljóstrunar um eitrið frá Funa og lokunar í kjölfarið. Enginn veit hvað Umhverfisstofnun hefði viljað þegja lengi um heilsuspillandi aðstæður án þess að láta almenning vita með einhverjum hætti.
Eitt af því sem orsakaði margumtalað bankahrun á Íslandi var sofandi og lélegt eftirlit með fjármálastofnunum. Ef marka má þagnarhjúp og kæruleysi Umhverfisstofnunar vegna óhóflegrar díoxínmengunar þá er ástandið engu betra hjá þeim stofnunum sem eiga að hafa eftirlit með mengun. Það getur ekki verið í lagi að þegja yfir því árum saman að heilsuspillandi mengun sé langt yfir hættumörkum án þess að aðhafast.
Eftirlit fyrir hvern?
5.1 2011 | 14:53 | 4 ummæli
Flokkar: Óflokkað
Ummæli (4)
Bjarni Tryggvason // 5.1 2011 kl. 19:34
Ísland er Zimbabwe Norðursins. Það var töluvert sjokk á sínum tíma að uppgötva þá staðreynd að Ísland er spillt þriðja heims ríki. Vá hvað maður var bláeygður.
Þorsteinn Úlfar Björnsson // 5.1 2011 kl. 21:49
Er þetta ekki svona í öllum stofnunum ríkisins? Vanhæfni dauðans enda fólk ráðið eftir flokksskírteinum en ekki hæfni.
Bjarni // 22.1 2011 kl. 00:16
Á það má einnig benda að fast við hliðina á díoxínmengandi brennsluofninum á Kirkjubæjarklaustri sem hefur verið í starfræktur frá árinu 2003, er sundlaug staðarinns og brensluofninn notaður til þess að kynda upp sundlaugina, sem ætluð er bæði skólabörnum og almenningi.
http://www.mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=371194
Þess má geta að það hefur farið vaxansdi að fólk greinist með krabbamein á þessu svæði undanfarin ár, hvort að um beina tenging þar á milli sé að ræða skal ósagt látið. En óneitanlega veldur það hjá manni óhug.
Bjarni // 22.1 2011 kl. 00:33
http://mbl.is/mm/gagnasafn/grein.html?grein_id=722326
Rita ummæli