Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Yfirhylming á Ísafirði

4.1 2011 | 09:45 | 7 ummæli

Heldur dapurlegt er að sjá opinbera embættismenn og kjörna fulltrúa á hlaupum undan sannleikanum eftir að upp komst að banvænni mengun hafði árum saman verið dælt yfir grunlausa íbúa Ísafjarðar frá sorpbrennslunni í Funa.
Díoxín er stórhættuleg og þrávirk mengun. Hið opinbera eftirlit var á hendi Umhverfisstofnunar sem vissi um mengunina en aðhafðist ekkert. Hinir kjörnu fulltrúar í bæjarstjórn segjast hafa vitað um mengunina og upplýst íbúana. Mjög erfiðlega gengur að finna staðfestingu á því að það sé rétt. Flest bendir til þess að þagnarsamsæri innan héraðs og utan hafi ríkt um málið.
Undanfarin ár hefur oft mátt sjá Skutulsfjörð standa hálffullan af bláum reyk frá Funa á lognkyrrum sólardögum. Þá daga hafa flestir verið úti við að njóta veðurblíðunnar. Í þeim hópi hafa verið nokkrir sem vissu að í reyknum leyndist þrávirk og heilsuspillandi mengun langt yfir mörkum.
Umhverfisstofnun hefur algerlega brugðist sjálfsögðum skyldum sínum í þessu máli. Harðorðar áminningar í kansellístíl duga skammt meðan eitrið hleðst upp í umhverfinu og matvælaframleiðsla fer fram í skugga reyksins. Svo virðist sem stofnunin hafi ekki talið það skyldu sína að koma upplýsingum um hættuna áfram til íbúanna og leyft bæjaryfirvöldum að draga lappirnar árum saman og hunsa kröfur um úrbætur.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem íbúar á Ísafirði taka strútinn á óþægileg mál sem varða heilsufar íbúa á svæðinu. Aldrei hefur verið hlustað á áhyggjur íbúa af mengun frá sorpbrennslunni hvorki meðan hún fór fram á Skarfaskeri við Hnífsdal né eftir að brennslan var flutt þaðan á lognkyrrasta staðinn á svæðinu í Engidal. Árum saman bjuggu Ísfirðingar við óheilnæmt neysluvatn, mengað af yfirborði. Um það ríkti einnig þagnarbindindi með virkri þátttöku allra heimamanna sem létu sér nægja að skopast að því að þeir sem hefðu alist upp við vatnið á Ísafirði hefðu hákarlsmaga.
Ísafjörður er ekki eini staðurinn á Íslandi sem hefur búið við mengun frá opinni sorpbrennslu. Sú spurning hlýtur að vakna hvort Umhverfisstofnun sitji á banvænum upplýsingum sem varða líf og heilsu íbúa víðar á landinu.

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (7)

  •   Brenni Steinn // 4.1 2011 kl. 10:03

    Bæjarstýra Hvergerðinga fann aðvörun um arsenik mengun í smáa letrinu.

  •   einsi // 4.1 2011 kl. 10:15

    Er ekki svipað mál í gangi á Húsavík?

  •   Jón // 4.1 2011 kl. 10:16

    Ef ég man rétt þá fannst díoxín í landbúnaðarafurðum nálægt Napoli á Ítalíu sem rakið var til sorps. Þar var að sögn staðarmafían, Camorran, að verki.

  •   Stormur // 4.1 2011 kl. 11:20

    Sveitarstjórnarmenn meðhöndluðu yfirleitt upplýsingar um snjóflóðahættu á sama veg.
    Það var talið andstætt hagsmunum sveitarfélagsins að upplýsa íbúana um snjóflóðahættu.
    Síðasta dæmið af þeim toga er einmitt frá Ísafirði. Eftir snjóflóðið á Tungudal 1994, kom fram gömul kona og greindi frá snjóflóði sem fallið hafði úr Eyrarhlíðinni á 6. áratugnum. Flóðið hafði sópað burtu e-h girðingarræksnum umhverfis kartöflugarða og brotið verkfæraskur e-h dúdda. Þetta þótti ekki mikill skaði þar sem girðingarnar og skúrinn voru hvort sem er hálfónýt og verkfærin komu flest óskemmd undan snjó um vorið.
    Konan ákvað að koma þessu á framfæri þar sem búið væri að byggja fjölda húsa þar sem kartöflugarðarnir voru áður.
    Þeta er mjög mikilvægar upplýsingar, -en bæjarstjórinn hálfgildings rasskellti kellinguna fyrir að vera með þennan „hræðsluáróður“

  •   Sigurjón Vigfússon // 4.1 2011 kl. 13:53

    Umhverfismál á Íslandi snúist um örfáa hektara og hvort setja eigi virkjanir niður á þessum hekturum. Þeir einstaklingar og þau félagasamtök sem hafa leitt þessa umræðu hafa gert það af slíkum krafti að nær öll umræða um umhverfismál hafa snúist um virkjunarmál Álver og restin síðan um hvalveiðar.

    Blýhögl eftir skotveiðimenn sem bönnuð eru víða í hinum siðmenntað heim, akstur utan vega ,vantar kort en ekki búið að bú til, annað hefur ekki verið upp á teningnum, er ekki í umræðunni, umhverfismál hafa verið notuð í pólitískri umræðu um þessa þætti meðan aðrir umhverfisþættir hafa legið í þagnargildi og ekki þótt auka vinsældir og tilgang um pólitíska vinsæld.
    Umhverfisráðuneyti hefur ekki staði sig í mörg ár beint athyglinni á aðra þætti virkjunarmá hvalveiða og álver og það sem ofan greinir.

    Funi á Ísafirði hafi um árabil mengað umhverfi sitt með eitruðum díoxíngufum sem eru tuttugu falt hærra en meðalgildi um hollustu þætti kveða um sem nú er að koma fram , er ekkert nýtt í http://bb.is/. sjást fjöldi greina um umhverfisþætti Funa mörg ár aftur í tíma en á meðan er sofið í Umhverfisráðuneytinu.

  •   Baldur // 4.1 2011 kl. 16:13

    Þetta sýnir bara að við erum ekki fær um að reka hér alvöruþjóðfélag þarsem almenningur getur treyst eftirliti stjórnvalda. Allar þessar stofnanir sem komið var á fót til að sinna eftirlitshlutverki eru brandarinn einn.

  •   Baldur // 4.1 2011 kl. 19:40

    …og nú bætist Orkumálastjóri við…enn ein eftirlitsstofnuni sem við skattgreiðendur höldum úti en sinnir ekki hlutverki sínu.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af tveimur og tveimur? Svar: