Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Is it safe?

22.12 2009 | 14:42 | 11 ummæli

Í asa málþófsins bora þeir og bora næturlangt í rótopna tönn saklausrar þjóðarinnar sem engist varnarlaus í stólnum.
Is it safe? æpa þeir rauðir og sveittir.

Yes it is Icesave- segjum við syndandi í kvölunum.

Eins og þessi sena úr Maraþonmanninum finnst mér að fréttir haustsins hafi verið. Ég hef verið ráfandi í fortíðinni áhugalaus um samtímann. Ég hef fengið að lesa bunka af gömlum sendibréfum, flett kámugum dagbókum úr jöklaferðum og í huganum samið ódauðlegar þakkardrápur til dýrðar www.timarit.is.
Ef ekki væri fyrir þann eðla vef hefði ég löngu flutt lögheimili mitt í Þjóðarbókhlöðuna og verið borinn þaðan út æpandi á aðventunni.
Nú seinast las ég í einni skorpu fundargerðarbækur Ferðafélags Íslands frá 1952 til 1978 og molar úr þeim lestri troða sér inn í vitund mína líkt og drukkin, eðlunarfús ferðastúlka í Þórsmörk í leit að Sigurði Þórarinssyni forðum. Sumt er ekki eins og það sýnist vera en annað er nákvæmlega það og ekkert annað.
Af hverju er ég að segja þér þetta kæri lesandi?
Æ ég veit það ekki. Kannski til þess að rjúfa þögnina sem hefur ríkt á þessari síðu um hríð. Erindi mitt er í sjálfu sér ekki merkilegt en mig langaði til að óska öllum sem þetta lesa gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (11)

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):