Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Lögfræðingur í ofboði

24.11 2009 | 13:43 | 5 ummæli

Morgunblaðið birti í morgun hálfrar síðu bréf frá Karli Axelssyni lögfræðingi til Ólafs Haukssonar saksóknara.
Karli er ofboðið.
Skjólstæðingur hans, Baldur Guðlaugsson, hefur hrakist frá kjól og kalli úr stól ráðuneytisstjóra og er ofan í kaupið vændur um innherjabrask og eigur hans kyrrsettar.
Karli er ofboðið því þessar hörmungar skjólstæðings hans eru bornar á torg af þeim sem að jafnaði ættu að þegja yfir óförum manna og alveg sérstaklega ef þeir eru heiðvirðir og vandaðir sómamenn úr réttum flokki. Um ófarir slíkra manna er best að ræða í hljóðskrafi bak við þykkar eikardyr og hreinn ósómi að pöpullinn smjatti á þeim við lestur götublaða.

Að gera sér upp ofboð er vel þekkt brella lögfræðinga þegar þeir telja aðstöðu skjólstæðinga sinna vonlausa. Stjörnulögfræðingar mikilla glæpamanna nýta sér oft fjölmiðla til þess að fjargviðrast út af ósmekklegum árásum á viðskiptavini sína. Ég man ekki hvað ég hef oft séð Brynjar Níelsson eða Vilhjálm Vilhjálmsson að ógleymdum Sveini Andra Sveinssyni stíga fram þrútna af vandlætingu yfir því hvernig ráðist sé að flekklausri æru einhverra handrukkara eða fíkniefnabaróna sem þeir eru að verja í það og það skiptið.
Nú skal ég ekki halda því fram að Baldur Guðlaugsson sé  glæpamaður fyrr en það verður staðfest með dómi þar að lútandi. En ef Baldur er í einhverjum kröggum, atvinnulaus með eignir í frosti og lögsókn vofandi yfir þá má minna á að hann er sjálfur lögfræðingur og getur líklega sparað sér stórfé með því að verja sig sjálfur.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (5)

  •   Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 24.11 2009 kl. 13:53

    Morgunblaðið hefur greinilega hafið vörn Baldur Guðlaugssonar, enda frjálst og óháð !!

  •   Margrét // 24.11 2009 kl. 14:10

    Nú eru þeir að klóra hver öðrum á bakinu, vinirnir.

  •   i // 24.11 2009 kl. 16:51

    Baldur er í klíkunni, allt frá hinum sælu dögum Eimreiðarinnar.

  •   Soffía Sigurðardóttir // 24.11 2009 kl. 16:59

    Þetta er bara byrjunin á kveinstöfum lögmanna. Í fullu samræmi við það sem Eva Joly sagði að við ættum í vændum þegar farið væri að þrengja að þeim sem rannsakaðir verða í bankahruninu.

  •   Homo Rollus // 24.11 2009 kl. 19:39

    Agnes fer í málið.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):