Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Aríonsbanki

20.11 2009 | 22:07 | 22 ummæli

Best gefnu og hæst launuðustu menn Nýja-Kaupþings sátu á rökstólum dögum saman áður en ákváðu að breyta nafni bankans. Hann heitir nú Aríon.
Æ þekkist úlfur á eyrunum og asninn er áfram asni þótt hann dragi yfir sig ljónshúð, var amma mín vön að segja.
Mér skilst að talsmanni bankans hafi vafist tunga um axlir þegar hún var spurð hvað nafnið þýddi.
Aríon var frægur tónlistarmaður og skáld í Grikklandi hinu forna. Einskonar trúbadúr, Bubbi Morthens í Eyjahafinu. Hann lék á kithara sem var nokkurs konar lýra eða harpa, en hann samdi einnig texta og ljóð. Þekktasta afrek hans mun vera að finna upp sinn eigin bragarhátt svokallað dithyramb og semja undir honum sérstaka bragi guði svalls og óhófs, Díonýsusi, til heilla og dýrðar.
Eitt sinn fór Aríon til útlanda og tók þátt í söngvakeppni á Sikiley og sigraði auðveldlega. Sennilega með vönduðu dithyrambi. Á heimleiðinni réðust gráðugir sjóræningjar á hann og rændu digrum sjóðum og verðlaunum.
Síðan mátti hann velja milli þess að vera tekinn af lífi af ræningjunum eða henda sér í sjóinn. Aríon bað leyfis að syngja sinn hinsta söng og þar ákallaði hann guðinn Apollo sem sendi fjölda höfrunga að skipshlið.
Aríon valdi síðan að henda sér í sjóinn og höfrungarnir björguðu honum.
Þegar hann síðan tók land í Kórintuborg trúði enginn að hann væri á lífi fyrr en hann gekk í eigin persónu á fund konungsins.

Þetta las ég á netinu þegar ég hefði getað verið að horfa á frábæra breska gamanmynd á RÚV. En hún líktist helst samblandi af Með allt á hreinu og Gaukshreiðrinu svo ég fór að blogga úr tómum leiðindum
Ég geri ráð fyrir að allir lesendur sjái nú í hendi sér hvers vegna Nýja-Kaupþing valdi nafnið Aríon enda líkindin við feril og þróun bankans og innsta eðli starfsemi hans ljós hverju reifabarni.

Skylt er mér að geta þess að ég er ekki viðskiptavinur Aríons heldur Íslandsbanka, fyrrum Glitnis. Þeir skiptu nýlega um nafn og tóku aftur upp nafnið Íslandsbanki. Við nafnaskiptin var gætt svo mikils aðhalds að skömmu seinna fékk ég nýtt debetkort í pósti sem var vandlega merkt Glitni, fagurlega gyllt lit.
Í meðfylgjandi bréfi sagðist bankinn hafa átt haug af þessum kortum í kjallaranum og ekki tímt að láta framleiða ný. Ég klökknaði yfir þessari ráðdeild, fyrirgaf þeim niðurfelldar skuldir og sór við skott Jósúa að halda tryggð við bankann meðan báðir lifðu.

Þessum árangri hefði Nýja-Kaupþing getað náð með því taka aftur upp nafn Búnaðarbankans.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (22)

  •   Magnús // 20.11 2009 kl. 22:46

    Ekki svo einfalt. Öllu merktu Búnaðarbankanum var hent á sínum tíma.

  •   Droplaugur // 20.11 2009 kl. 22:49

    ef arion var eiðslusöm fyllibytta skifti ég um banka

  •   Hlynur Þór Magnússon // 20.11 2009 kl. 23:33

    Arion Group. Avion Group. Hvað með íslenska tungu? Hvað með endurhvarf til gamalla gilda? Hvað með bara Búnaðarbankann?

  •   rhj // 21.11 2009 kl. 01:25

    þetta Arion er buið að vera til siðan 2003 stofnað af Finni nuverandi Bankastjora sem verðbrefavörslufyrirtæki , serdeild innan Kaupþings , Svo merkir Arion lika VARSLA , VERÐMÆTI , Fallegasta nafn en asnalegt á banka og það lika SVONA banka !!!!!!!!

  •   Örn // 21.11 2009 kl. 07:42

    Hvernig fallbeygist orðið? Er íslensk tunga svona fátæk að ekki er til nafn á íslenskan banka? Kannski er er enn verið að “ pæla “ í næstu útrás.?

  •   Sigurður Davíðsson // 21.11 2009 kl. 07:47

    Mér finnst þetta svolítið sætt nafn fyrir næstu útrás.

  •   María Kristjánsdóttir // 21.11 2009 kl. 11:10

    En þetta er samt þrælútpælt hjá þeim; þeir líta auðvitað svo á að þeir hafi lent í höndum sjóræningja og við höfrungarnir höfum bjargað þeim;spurningin er bara hver er Apollo?
    Kannski Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn -eða var það ekki hann sem krafðist þess að bankarnir yrðu aftur einkavæddir?

  •   Þórarinn Einarsson // 21.11 2009 kl. 11:18

    Fólk þarf ekkert að samþykkja þessa nafngift. Það getur einfaldlega sniðgengið ‘Arion’ og kallað bankann einfaldlega ‘Búnaðarbankann’.

    Búnaðarbankinn skal hann heita, og hana nú!

  •   Guðlaugur // 21.11 2009 kl. 11:32

    Svekkjandi fyrir þessa…

    http://www.arion.is

  •   Margret // 21.11 2009 kl. 11:37

    Arion er nafn sem Nýja Kaupþing átti og þvi er verið að fara sömuleið og hjá Íslandsbanka – Glitni. Arion er dótturfélaga Arion banka og ekkert óeðlilegt að dótturfélag beri sama nanf og móðurfélag svo ég skil ekki að það ætti að vera svekkjandi fyrir e-hvern.

  •   Guðmundur Pétursson // 21.11 2009 kl. 13:01

    Smáleiðrétting: Hann lék ekki á kitharode,
    kitharode nefnist sá sem leikur á kithara.

  •   Páll Ásgeir // 21.11 2009 kl. 13:11

    Takk fyrir Guðmundur

  •   Balzac // 21.11 2009 kl. 13:20

    Mér finnst hann hefði mátt heita Bárður á Búrfelli, eftir Finni Ingólfssyni, eiganda sínum.

  •   Whatsername // 21.11 2009 kl. 14:01

    Mér finnst þetta nafn ömurlegt. Skilur enginn af þessu veruleikafirrta liði að fólkið í landinu vill „back to basics“?! Í guðanna bænum ekki minna okkur á útrásargræðgina með enn einu hégómlegu útlensku nafni sem enginn veit hvað þýðir.

  •   Ása // 21.11 2009 kl. 14:49

    Hittir skemmtilega í mark!!!
    ,,Þekktasta afrek hans mun vera að finna upp sinn eigin bragarhátt svokallað dithyramb og semja undir honum sérstaka bragi guði svalls og óhófs, Díonýsusi, til heilla og dýrðar.“

    Ekki svo vitlraust nafn á sukkbankan!

  •   Grímur // 21.11 2009 kl. 15:05

    „Arion is a genus of air-breathing land slugs, specifically roundback slugs“ stendur á Wikipedíu.

    http://en.wikipedia.org/wiki/Arion_(genus)

  •   olaf // 22.11 2009 kl. 09:47

    Þurfa stjórnmálaflokkarnir ekki líka að skipta um nafn?

  •   Dísa // 24.11 2009 kl. 21:35

    Sá á öðru bloggi bent á að þetta nafn er óþægilega líkt Aryan bank. Ef þeir völdu þetta vegna mögulegrar útrásar er ég ekki viss um að þeir séu að lesa stemninguna í heiminum rétt, hvað þá hér heima. Nú, nema að þetta sé merki um að þeir telji að fasismi og aðrar þess háttar stefnur séu líklegar til að sækja í sig veðrið á næstunni (sem gæti svo sem vel verið, svona í sögulegu ljósi).

    Sú staðreynd að dótturfélag heitir þetta hljómar eins og frekar aumleg réttlæting. Þeir eiga örugglega fleiri nöfn á lager og fleiri dótturfélög með nöfn sem þeir gætu nýtt sér.

  •   Hafsteinn Hafl. // 28.11 2009 kl. 01:01

    Arion lusitanicus er hér nýr landnemi. Snigiltegund sem engu eirir og allt étur, meira að segja eigin afkvæmi, dauða félaga sína og sjálfs sín kúk. Sem sé: Spánarsnigillinn – sem er að verða vaxandi ógn fyrir alla sem garðyrkju stunda og algjör skelfing fyrir bændur sem fá hann í heyrúllur!

  •   Snorgowoony // 30.1 2010 kl. 02:48

    Very nice Blog, I will tell my friends about it.

    Thanks

  •   bad creditmomekefeSmake // 10.2 2010 kl. 15:17

    It is a excellent website.

    I have bookmarked this site and also I will tell my girlftriend regarding it.

    Thanks

  •   fix bad creditmomekefeSmake // 10.2 2010 kl. 19:11

    This may be a n excellent web page.

    I have bookmarked this web site and I will tell my friend over it.

    Thanks

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):