Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Banvænt faðmlag nefndarinnar

18.11 2009 | 14:05 | 20 ummæli

Samkvæmt fréttum vill forsætisnefnd Alþingis skipa sérstaka nefnd níu þingmanna sem skal fjalla um niðurstöður rannsóknarnefndar sem þingið setti á fót til að rannsaka hrunið.

Mér finnast tíðindin af þessari fyrirhuguðu þingmannanefnd mjög slæmar fréttir og lykta langar leiðir af vantrausti, pólitískum klækjum og yfirhylmingu.

Sagt er að skýrslan sé 1500 blaðsíður og verði lögð fram í heild sinni. Ef allt fer að vonum þá verða niðurstöður hennar skýrar og tiltölulega afdráttarlausar og engin þörf á að skipa sérstaka nefnd þingmanna til að mata lýðinn á þeim með skeið.
Sé eitthvað loðið í skýrslunni þá er samfélagið allt löðrandi í sérfræðingum sem munu túlka fyrir okkur niðurstöðurnar hvort sem við biðjum um það eða ekki og örugglega hvort sem þeir eru hæfir til þess eða ekki.
Lögin um starf rannsóknarnefndarinnar segja að forseti og formenn þingflokka skuli fjalla um niðurstöðurnar og leggja á ráð um hvort einhver verði sóttur til saka á grundvelli téðrar skýrslu eða hvort einhverjir fyrrum ráðherrar verði dregnir fyrir dóm.
Nú vill svo til að í einvalaliði formanna þingflokka rekumst við fljótlega á þá kumpána Björgvin G. Sigurðsson og Illuga Gunnarsson. Það verður að teljast frekar líklegt að þeir verði báðir nefndir á nafn í margáminnstri skýrslu og eru sem því nemur vanhæfir til þess að segja eitt eða neitt um hana.
Það versta við þessi áform er að þau staðfesta enn einu sinni að hér situr ríkisstjórn sem hefur gleymt öllu sem sagt var um gegnsæi og heiðarleika fyrr á árinu og treystir ekki lýðnum sem barði hana til valda með pottaglamri.
Þeir sem vilja halda öllum hlutum leyndu, pukrast og læðupokast í bakherbergjum meðan spunameistarar og smjörklípukastarar halda pöplinum uppteknum, kunna mörg ráð til kæfa sannleikann. Eitt er að setja mál í fangið á stórum nefndum því faðmlag þeirra reynist oftast banvænt.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (20)

  •   Teitur Atlason // 18.11 2009 kl. 14:40

    Þú mátt ekki gleyma Tryggva Þór Herbertssyni.

  •   Rósa // 18.11 2009 kl. 14:51

    … eða Þorgerði Katrínu og Steinunni Valdísi …

  •   Rebbi // 18.11 2009 kl. 14:54

    og siðan verður ekki hægt að birta skyrsluna fyrr en eftir 50 ar vegna þjoðaröryggis

  •   Blýantsnagari // 18.11 2009 kl. 14:59

    Maður efast ekki um að Páls Hreinssonar nefndin vinnur sitt verk af heiðarleika. En eins og Páll Ásgeir bendir á, þá hefur almenningur nákvæmlega enga trú á að þingið taki á málinu eins og þarf að taka á því. Líklega þyrfti niðurstaða hennar að fara beint fyrir Evrópudómstólinn og lögsögu Alþingis verði rift í eigin málum. Líklega væri affarasælast að reka þingið heim sem og ríkisstjórnina og fá stjórn landsins í hendur ráðherraráði Evrópusambandsins.

  •   Ingibjörg Stefáns // 18.11 2009 kl. 15:02

    Skilst reyndar að Björgvin hafi þegar sagt sig frá málinu og tilnefnt varamann í sinn stað í þessa nefnd.

  •   Magnús // 18.11 2009 kl. 15:06

    Alþingi getur ekki fjallað um meint afglöp pólitíkusa. Þó þau trúi því kannski sjálf mun almenningur ekki treysta þeim.

  •   Teitur Atlason // 18.11 2009 kl. 15:07

    Það sérkennilega er, og jafnframt það óhuggulega er að þingmennirnir eiga að taka ákvörðum um hvort lykilfólk í þeirra eigin flokki skuli hugsanlega vera stefnt fyrir landsdóm! Hvernig ætli Össur greiði atkvæði um að stefna Ingibjörgu Sólrúni fyrir Landsdóm. Eða Bjarni Ben með Geir Haarde?

  •   GSS // 18.11 2009 kl. 15:15

    Það verður með þessa skýrslu eins og margar aðrar að hún mun reynast þegar upp er staðið þægileg og vel launuð atvinnubótarvinna fyrir örfáa en mun síðan fara í skúffuna og rykfalla þar.
    Ástæðan er einfaldlega sú að engin hefð er fyrir rannsóknarstarfi þingnefnda hér á landi og svo er fámennið, skyldleikinn og kunningjasamfélagið þess eðlis að slíkar nefndir munu aldrei þrífast hér á landi eða ná af neinu viti utan um erfið mál eins og þau sem væntanlega munu koma fram í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.
    Það gildir einu hvort nefndina skipa þrír þingmenn, níu eða fimmtán. Það mun alltaf verða deilt um hæfi, því enginn þingmaður er svo illa á vegi staddur að hann eigi ekki samherja, vin, kunningja eða jafnvel ættingja í þingsal.
    Og hvaða þingmaður vill koma sér í þá aðstöðu
    að fella dóma um ráðherra sem sátu í ríkisstjórn á síðustu árum fyrir hrun, dóma sem kunna að leiða til Kvíabryggjuvistar?
    Sérfræðingar og álitsgjafar, innlendir, koma heldur ekki til greina í svona nefnd. Þeir eru sama marki brenndir og þingmenn.
    Eina raunhæfa leiðin er að fá útlendinga með þekkingu á svona málum til að fjalla um skýrsluna og vísa því til saksóknara sem þeim kann að virðast saknæmt. En það samþykkir þingið auðvitað aldrei; með því kynni einhver að verða dæmdur og það samræmist ekki íslenskum venjum.
    Hvernig sem á málið er litið þá er skýrslugerð rannsóknarnefndarinnar tímasóun, aðeins til þess gerð að friða lýðinn en síðan mun þingið með hefðbundnum kænskubrögðum tefja málið og þvæla á alla kanta og síðan í fyllingu tímans lauma ofaní skúffuna góðu.

  •   Sigurður Hr. Sigurðsson // 18.11 2009 kl. 15:28

    Lög um ráðherraábyrgð er fróðleg lesning:
    http://www.althingi.is/lagas/137/1963004.html

    T.d. 13. gr. segir: „Hafi ráðherra bakað almenningi eða einstaklingi fjártjón með framkvæmd eða vanrækslu, sem refsiverð er eftir lögum þessum, skal og þegar þess er krafist, jafnframt hegningunni dæma hann til að greiða skaðabætur, en um skaðabótaskyldu hans fer eftir almennum reglum.“

  •   Gubbi // 18.11 2009 kl. 15:39

    Það verður athyglisvert að fylgjast með framlagningu skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis í upphafi næsta árs. Slæmt er að traust virðist ekki ríkja á milli Alþingis og almennings og margið telja að einhverjum hlutum niðurstöðunnar verði stungið undir stól. Nefndin sem slík er að mínu áliti hafin yfir allan vafa, hún vinnur verk sitt af kostgæfni en meðferð niðurstöðunnar er annað mál.
    Reyndar hef ég ekki miklar áhyggjur af þessu máli því stækkunarstjóri EB sem kom hingað í haust og flutti erindi í Háskóla Íslands sagði þar að EB muni gera sína eigin úttekt á hruninu hér á landi eftir að skýrsla Alþingis væri komin fram!!

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 18.11 2009 kl. 15:59

    Ragnheiður Ásta þingforseti reyndi að krafla sig í gegnum útvarpsviðtal í gær með að fullyrða að svona hafi verið gert í nágranaríkjunum þegar mál að þessu tagi hafa komið upp, svo að þau væru að nýta sér reynslu sína frá þeim. Hún hafi kynnt sér það sérstaklega.

    Eins og svo oft áður spurði fréttamaðurinn einskyns hvernig nágrannalöndin hafi tekið á endanum á sínum málum AF ÞESSARI STÆRÐARGRÁÐU MIÐAÐ VIÐ ÞEIRRA ÞJÓÐFÉLAG, – SEM OG HVORT ÞAÐ ERU TIL MÖRG DÆMI EINHVERS SVIPAÐS OG HEFUR KOMIÐ UPP HÉR….!!!!??????

    Ekki spurði hann um nein dæmi sem hún gæti skýrt mál sitt betur með. (sic)

    Bloggsamfélagið verður að taka þetta mál traustataki og lemja á þessu liði, því það er vel ljóst að slíkt getur haft áhrif.

  •   Solveig // 18.11 2009 kl. 16:17

    Ef ég skil rétt þá verður að vera einhugur í nefndinni um hvort sækja eigi ráðherra til ábyrgðar. Ef það er nóg að einn sé á móti þá getum við gleymt þessu.

  •   Magnús Björgvinsson // 18.11 2009 kl. 17:00

    Hafa menn lesið lög Alþingis um þessa nefnd. Þar er kafli um að nefndin eigi að koma tillögur um endurbætur og breytingar sem eiga að koma í veg fyrir að svona geti komið fyrir aftur. Og þar stendur líka að þessi skýrsla eigi að vera gerð opinber þegar í stað þegar henni er lokið. Finnst að fólk sé nú alltaf að reyna að búa til vandamál fyrirfram. Held að nefnd á vegum þingsins sé hæfari að fjalla um skýrsluna frekar en forsætisnefnd þingsins.

  •   Sævar Helgason // 18.11 2009 kl. 17:17

    Fyllist Austurvöllur ekki af fólki ef minnsti grunur er um að þingið ætli að draga lappirnar og svæfa málið ? Fólkið hefur beðið þessarar skýrslu með þolinmæði-. Þessi skýrsla verður fyrsti prófsteinn um traust milli þings og þjóðar eftir Búsáhaldabyltinguna….

  •   María // 18.11 2009 kl. 17:55

    Ég vona að það verði bókstaflega allt vitlaust ef þingið svo mikið sem vogar sér að reyna að víkja sér undan að taka á málinu eða fela niðurstöður.

  •   Sjálfrennireiðastjóri // 18.11 2009 kl. 20:17

    Naflaskoðun með öfugum sjónauka.

  •   Thrainn Kristinsson // 18.11 2009 kl. 22:07

    Rannsóknarnefndin íslenska getur sjálf vísað málum sem hún telur varða við refsingu til saksóknara…. en hvað er eiginlega hægt að gera í málum þar sem td. ráðherrar og þingmenn ljúga og eru vanhæfir aular?

    Annars þetta er sambærilegt ferli og er í Danmörku …þar er er það þingið sem tekur afstöðu til þess hver viðbrögð eru við niðurstöðum rannsóknarnefndar – vanaleg eru þeir sem fá krítík í niðurstöðunum fljótir að láta sig hverfa áður en niðurstöðurnar eru birtar en það verður náttúrulega ekki þannig á Íslandi

  •   Þorsteinn Úlfar Björnsson // 18.11 2009 kl. 22:57

    Umboðsmaður Alþingis á að fá hana og ákveða hvort einhverjum málum verður vísað til sérstaks saksóknara. Eða efnahagsbrotdeildar. Jafnvel gæti Hæstiréttur lesið skýrsluna og gefið álit. En þá eru þeir svo sem orðnir vanhæfir til að dæma ef einhver mál lenda þar sem ég hef raunar fremur litla trú á.

  •   Páll Ásgeir // 18.11 2009 kl. 22:58

    Þeir eru kallaðir sníkjubloggarar sem skrifa langhunda í athugasemdakerfi en ættu kannski frekar að hasla sér völl sem sjálfstæðir bloggarar. Mér finnst Guðmundur 2 Gunnarsson skrifa nógu langt mál og svo víða um bloggheima að hann ætti að huga að því að blogga undir „sínu eigin nafni“.
    Svo er rétt að geta þess til fróðleiks fyrir reglulega lesendur að líklega eru: Nýi Dexter, Sjálfrennireiðarstjóri, G.B og Bessservisser allt einn og sami maðurinn.

  •   rhj // 19.11 2009 kl. 00:04

    SVO ÞAÐ ERU LEYNILÖGGUR MEÐAL BLOGGARA !!! ,( eða bara gróur á leyti ???)Sama er mer hvort margir nota mörg nöfn , en vikomandi þessari skýrslu , sýnist mer einsýnt að hun skuli skipuð til að fjalla um skýrslu Páls Hreinnsonar og hans fólks , til þess eins að ekki komist upp um strákinn „Tuma „, eða þann ráðherra sem brotið hafi af ser SVO EINFALLT er þaða og með öllu ólíðandi ef svo reynist !!!

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):