Allir sjá að vefmiðlum vex fiskur um hrygg meðan prentmiðlar láta undan síga. Hér á Eyjunni hefur bloggurum fjölgað jafnt og þétt undanfarna mánuði enda hólmanum borist verðug samkeppni frá Pressunni.
Í hópi bloggara á Eyjunni er margur misjafnlega ritfær sauður í mörgu blekfé en auðvelt að velja úr hópnum þá sem gaman og fróðlegt er að lesa. Minn uppáhaldslisti verður ekki birtur hér en ég les marga bloggara og suma mér til skemmtunar.
Lausleg yfirferð yfir misduglega bloggara sem eru tengdir á Eyjunni leiddi athygli mína að einu. Langflestir hafa opið fyrir athugasemdir og láta þar yfir sig ganga misjafnlega rismikinn málflutning sem venjulega er eitthvað í takt við tilþrif þeirra sjálfra.
Ég fann þó fjóra bloggara á Eyjunni sem hafa ekki opið fyrir athugasemdir. Þeir eru: Tryggvi Þór Herbertsson, Gísli Marteinn Baldursson, Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir og Friðbjörn Orri Ketilsson.
Nú get ég sjálfviljugur kallað yfir mig tvenns konar athugasemdir. Annars vegar má hver sem er benda á hvað þessir fjórir ritsnillingar eiga sameiginlegt. Hins vegar mega þeir hver um sig segja mér og öðrum-hér í opnu athugasemdakerfi- hvers vegna þeir loka á athugasemdir.
Ps. Rétt er ábending í athugasemd að Eiríkur Bergmann á heima í þessum hópi en hann hefur einnig lokað á athugasemdir.
Páll Ásgeir Ásgeirsson
Ummæli (17)
Jenný Stefanía // 16.11 2009 kl. 17:33
Hefðbundin bloggvenja Valhallarverja. Leggja ekki í umræðuna utan virkisins.
Agnar Kr. Þorsteinsson // 16.11 2009 kl. 17:45
Ef þú lítur yfir aðra Valhallarvarga á Moggablogginu, þá má sjá að flestir þeirra eru einnig með lokað fyrir athugasemdir.
Menn fara nú ekki að leyfa pöpulnum að þenja sig við yfirstéttina.
Arinbjörn Kúld // 16.11 2009 kl. 17:48
Einmitt, þegar valhallarvargar tala þá ber okkur að þegja. Flott orð hjá Agnari
(valhallarvargar) Miniir á LOTR!
Gísli Baldvinsson // 16.11 2009 kl. 18:12
Við þetta er ekkert að bæta.
Egill Ó // 16.11 2009 kl. 18:26
Allar nema efsta færslan á forsíðunni hjá Tryggva eru með opið fyrir athugasemdir. Þú virðist líka hafa gleymt Eiríki Bergmann í þessari yfirferð þinni.
En hafa skal það sem betur hljómar.
Tyrannosaurus Kex // 16.11 2009 kl. 18:27
Sigmundur Davíð er líka eitthvað feiminn við okkur.
SIJ // 16.11 2009 kl. 19:17
Þeir sem tilteknir eru í pistlinum vilja ekki ræða við fólk heldur tala til þess. Í raun þykir mér Eyjuna setja niður að gera ekki þá kröfu til þeirra sem hér halda úti pistlum að þeir hafi opið fyrir athugasemdir.
Gisli Asgeirsson // 16.11 2009 kl. 19:19
Blogg er gagnvirkur miðill. Þeir sem loka á umræðu á þennan hátt, eiga ekki heima á svona vettvangi. Annað hvort skortir þá rök, kjark eða getu til að eiga skoðanaskipti við aðra. Svo má líka segja umbúðalaust að þetta flokkist undir bölvaðan hroka.
Gestur // 16.11 2009 kl. 19:43
Hverjum dettur í hug að kalla þetta umræðu sem viðgengst á Eyjunni? Mjög stór hluti af þessu er fúkyrðaflaumur, dylgjur og ærumeiðingar. Þessir, sem þú nefnir, eiga rétt á að koma sjónarmiðum sínum á framfæri en þurfa ekki að sitja undir dylgjum og ærumeiðingum í kjölfarið.
Flestir sem loka á ummæli eru í pólitík og fólk virðist líta á að það sé hluti af starfslýsingunni að sitja undir lesblindu skítkasti. Sóley Tómasdóttir lokaði líka á kommentin hjá sér eftir að henni ofbauð. Sumir þykjast vera rosalega miklir „menn fólksins“ og leyfa komment (enda oft með klapplið með sér) en dunda sér svo við að eyða úr þeim, sérstaklega ef talað er illa um þá. Aðrir eiga sér líf…
Helsta ástæðan fyrir því að ég les lítið á Eyjunni eru einmitt „umræðurnar“ sem geta verið svo svívirðilegar að manni blöskrar.
baun // 16.11 2009 kl. 19:43
Hvaða hvaða. Sumir eru bara svona fintfølende.
Gestur // 16.11 2009 kl. 19:55
Já sennilega!
Þetta getur nánast talist umræða. Valhallarvargar er ótrúlega málefnalegt. En samt er þetta með besta móti.
Bendi til dæmis á að bæði Árni Þór og Ögmundur hafa ekki opið fyrir athugasemdir. Ögmundur birtir að vísu stundum bréf frá lesendum. Menn hljóta að ráða því sjálfir hvernig þeir hafa þetta, ekki satt?
Þrumari // 16.11 2009 kl. 20:27
Páll Ásgeir – þú ert allavega uppáhaldsbloggarinn minn.
Matti // 16.11 2009 kl. 20:41
Mér sýnist einhverjir eyjubloggarar sem eru með opið fyrir athugasemdir takmarki það við notendur Eyjunnar. A.m.k. sé ég bara „login“ viðmót en enga leið til að skrá mig á sumum síðum.
Arnþór Jónsson // 16.11 2009 kl. 21:02
Við sjáum þetta einkennilega viðhorf á þjóðfundinum mikla um síðustu helgi. Þar kom fram eindregin ósk fundarfólks um heiðarleika. Því öllum finnst vont að láta ljúga að sér þó flestir ljúgi sjálfir ef það hentar þeim.
Haukur Nikulásson // 16.11 2009 kl. 23:18
Eftir nærri þrjú ár á bloggi sé ég ekki ástæðu til að fella niður athugasemdir og er reyndar bara stoltur af því. Þó hafa sumir verið „handful“ eins og t.d. Eiríkur Bergmann undir fölsku nafni.
Fúkyrði, blót og skammir lýsa oftast best þeim sem sleppir sér í því en ekki sjálfum manni. Maður leyfir því bara að standa viðkomandi til ósóma.
íbúi // 17.11 2009 kl. 00:14
Náttúrulega ekkert mál að bæta úr því. Bara opna bloggsíðu sem heitir – Valhallarvargar – athugasemdir við pistla
– þar geta menn skellt inn slóð hinna spéhræddu og við hin skrifað af hjartans list um efnið.
Guðmundur 2. Gunnarsson // 17.11 2009 kl. 14:33
Því miður eru nokkrir bloggarar sem eru mun verri en þeir sem leyfa ekki athugasemdir, en það eru þeir sem filtera út þær sem hugnast þeim ekki pólitískt, og jafnvel endurskrifa þær. Þar fer fremstur í flokki formaður Samspillingarinnar í Hafnarfirði, Gunnar Axel Axelsson, sem hefur ítrekað fjarlægt athugasemdir frá undirrituðum og fleirum, sem voru ekki á neinn hátt meiðandi, heldur einfaldlega ósammála hans skoðunum.
Rita ummæli