Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Kíló af lauk á 5000 kall?

5.11 2009 | 09:42 | 11 ummæli

Opinber umræða á Íslandi minnir oftsinnis á einhvern sjúkdóm sem birtist í erfiðum köstum. Skamma hríð engist þjóðarlíkaminn um í ofsafengum krampa reiði og vandlætingar. Allir sem vettlingi geta valdið lýsa skoðun sinni og hver og einn grípur á lofti það sem best heyrist hljóma og um stund heyrist ekki mannsins mál. Svo dettur allt í dúnalogn án þess að niðurstaða hafi fengist. Í síðustu viku var það villiféð í Tálknanum og svo tók barnalán Nóatúnsfjölskyldunnar við en inn á milli kom mjög öflugt kast vegna brotthvarfs McDonalds keðjunnar frá Íslandi. Nú bíðum við eftir næsta kasti.
Bíddu aðeins.
Mig langar til þess að staldra aðeins við stóra McDonalds málið. Það vakti heimsathygli og eitt af því sem bergmálaði í öllum fjölmiðlum á Íslandi og hinn vestræna heim var yfirlýsing Jóns Ögmundssonar um að staðan væri svo vonlaus að eitt kíló af lauk kostaði jafn mikið og flaska af góðu viskýi. Jón sagðist tilneyddur kaupa allt hráefni til staðarins frá birgðastöð McDonalds í Þýskalandi og tók þetta skýra dæmi um vonlausa rekstrarstöðu sína og hrap krónunnar og ég veit ekki hvað.
Enginn gerði athugasemd við þennan verðsamanburð Jóns sem verður að ætla að sé hnútum kunnugur í sínum eigin rekstri og skáldi þess vegna ekki upp tölur eins og þessar. Nú ætla ég ekki að halda því fram að þetta heimili sé jafn vel rekið og það væri hluti af McDonalds keðjunni en það reyndist frekar fljótlegt fyrir mig að finna strimil sem staðfesti að kíló af lauk kostar 86 krónur í Krónunni og 85 krónur í Bónus í samræmi við vandlega skipulagða verðsamkeppni þessara fyrirtækja.
Flaska af góðu viskýi kostar 4800 krónur eða 6500 svo tvö dæmi séu tekin af handahófi. Þannig hefði mátt ætla að meðalsnotur fjölmiðlamaður sem gæti vel drukkið viský og étið lauk til hversdags gæti hnotið um þennan samanburð forstjórans.

Var þetta þá haugalýgi?
Getur verið að McDonalds okri svo heiftarlega á sérleyfisstöðunum að kíló af lauk kosti mörg þúsund krónur í heildsölu?
Vissi Jón Garðar ekki betur?
Mismælti hann sig kannski og meinti poka af lauk? Soleiðis poki vegur 25 kg. og gæti þess vegna kostað rúmar 2000 krónur í Bónus.
Finnst þér þetta vera aukaatriði? En getur ekki verið að aukaatriðin varpi ljósi á aðalatriðin og sá sem lýgur smátt sé líklegur til þess að ljúga stórt þegar það hentar. Kannski voru társtokknir neytendur sem belgdu sig út af óhollasta mat heims í kveðjuskyni einungis þæg ginningarfífl að hjálpa flinkum bisnessmanni að éta upp lagerinn á metttíma.
Þannig varð samanburðurinn á lauknum og viskýinu góður frasi sem allir náðu því allir þekkja lauk og margir viský en um leið átakanlegur vitnisburður um sofandahátt fjölmiðla og andvaraleysi hinnar krampakenndu umræðu.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (11)

  •   ingi // 5.11 2009 kl. 09:59

    Sammála, laukur í heildsölu hjá pólskum bændum varla meira en 15-20 kr.

  •   Lissy // 5.11 2009 kl. 10:05

    In my opinion, one of the BEST things about McDonald’s hamburgers has always been the onions. I remember as a kid opening up the bun and looking at the tiny, perfectly diced, sweet little onion bits and wondering how in the world they got them to taste so good. What was being imported was not raw onions, but rather specially processed onions, diced just so to have that McDonald’s flavor. And the onions were being processed in Germany, where wages are not low. So with the labor costs, raw good costs, processing costs, shipping costs, and the weak kroner, it did not strike me as a strained comparison at all. McDonald’s onions are special.

  •   Eiríkur Örn Norðdahl // 5.11 2009 kl. 10:20

    Það eru engin lágmarkslaun í Þýskalandi. Ég veit ekki um matvælaverksmiðjur McDonalds – en t.d. við berjatínslu og skúringar eru laun í Þýskalandi forkastanleg, það er auglýst sérstaklega eftir Austur-Evrópsku vinnuafli sem fær síðan skít og kanil borgað fyrir hálfgerða þrælavinnu. Eða þannig var það a.m.k. árið 2004.

  •   ingi // 5.11 2009 kl. 10:57

    Ekki reyna að segja mér að þýskar verksmiðjur séu ekki vel tæknivæddar, það eru ekki þúsundir manna að skera lauk með borðhnífum.

  •   Pétur Henry Petersen // 5.11 2009 kl. 11:22

    Tja.. það er ekkert í máli þínu sem að beinlínis sannar að hann hafi farið rangt með.
    Það sem að er merkilegra að þegar að fyrirtæki byrjaði, var sérstaklega auglýst að allt væri keypt á Íslandi en annað hefur komið í ljós.

  •   Kristín // 5.11 2009 kl. 11:39

    Flottur pistill eins og alltaf!!

  •   Gunnar G. // 5.11 2009 kl. 11:47

    Hverjum er ekki skítsama…

    Maðurinn er bara að reka fyrirtæki og fannst hagur sinn bestur í að losa sig við sérleyfið…

    Og ég veit ekki… var maðurinn ekki að grínast??? Held að það hafi verið augljóst…

    Er ekki skemmtilegra að ræða eitthvað sem skiptir máli, ekki viðskiptagjörninga einhverra hamborgarakalla úti í bæ…

  •   Telemakkos // 5.11 2009 kl. 13:25

    Þú hefur greinilega ekki keypt þér viskí á Íslandi nýlega. ;)

  •   Páll Ásgeir // 5.11 2009 kl. 14:02

    Viskýverðið er á tveimur algengum tegundum af Ballantines úr verðlista ÁTVR

  •   Margrét // 5.11 2009 kl. 14:41

    @Lissy
    The onion taste so good because it is immerced
    in sugar!

    Eitt er alla vegana víst að ekki drekkur karlinn fínt viský hvað sem honum finnst sjálfum.
    Hins vegar finnst mér skrýtið að allt í einu er allt hráefni frá Þýskalandi?! Veit ekki betur en Jón hafi komið fram í fjölmiðlum fyrir nokkrum árum og lýst yfir því alveg sérstaklega að ALLT hráefnið væri íslenskt nema brauðið!
    Var það blekking og lýgi?

  •   Egill Ó // 5.11 2009 kl. 18:20

    Það kom fram í vel flestum fjölmiðlum held ég þegar McD fór að flytja inn hráefnið fyrir nokkrum árum.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):