Páll Ásgeir Ásgeirsson

blogg á eyjan.is

Villtar kanínur á útigangi

31.10 2009 | 12:25 | 13 ummæli

Ég heyrði í hádegisfréttum að starfsmenn þriggja ráðuneyta eiga að íhuga afdrif og örlög villifjárins í Tálkna. Stærstum hluta stofnsins var smalað og síðan slátrað af meintum mannúðarástæðum fyrir helgina. Útigangur húsdýra er lögbrot.

Ég held að starfshópur ráðuneytanna ætti að fá sér gönguferð upp í Öskjuhlíð og íhuga aðstæður kanínustofnsins sem lifir þar villtur. Kanínur eru húsdýr og útigangur þeirra í kirkjugarðinum og alla Öskjuhlíðina ótvírætt lögbrot. Það verður skemmtilegur smaladagur í Öskjuhlíðinni þegar þessum löglausu grænmetisætum verður ruslað saman af einskærri mannúð og drepnar til svo lögum verði framfylgt.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (13)

  •   Kristján G. Kristjánsson // 31.10 2009 kl. 12:37

    Þær eru í Heiðmörk líka.
    Voru Vestmannaeyjingar svo ekki líka að kvarta yfir því að þær hreki í burtu lundann?

  •   Jón Baldur // 31.10 2009 kl. 12:44

    Við megum þakka fyrir að bæði sauðnaut og snæhérar drápust út, að því virðist af sjálfum sér. Nú segja sumir að útigangskettir séu hluti af vistkerfi þéttbýlis, minkurinn hafi öðlast þegnrétt í náttúrunni og hreindýr eru orðin að tekjulind og verður aldrei viljandi útrýmt. Megum við ekki þakka fyrir meðan enginn flytur inn grábirni og gaupur til sleppingar, það mætti sjálfsagt ekki hrófla við þeim eftir það.

  •   kristján þórðarson // 31.10 2009 kl. 12:55

    ég mæli með innfluttingi á snæhérum og meiri útbreiðslu heindýra

  •   Magnus Björgvinsson // 31.10 2009 kl. 13:06

    Þessar kanínur eru líka við Rauðavatn. Og til að vera sjálfir sér samkvæmir ættu þeir sem uppræta þær að reka þær sem þeir ná ekki út á götu og láta keyra yfir þær. Svona til að líkja eftir því að reka þær fyrir björg.

  •   Tryggur // 31.10 2009 kl. 13:45

    svo er líka um að gera að taka þetta mál upp á Alþingi, þetta er mál sem má ekki bíða, niðurskurður og skattamál og annað sem ekki skiptir máli verður bara rætt seinna.

  •   Höskuldur Davíðsson // 31.10 2009 kl. 13:53

    Er ekki lausaganga fjárglæframanna bönnuð líka.
    Má ekki bara smala þeim saman og reka fyrir björg ? Eru ekki til nein lög um þetta ?

  •   Gunnar Björgvinsson // 31.10 2009 kl. 14:47

    Westfirðingar virðast vera að missa af góðu sprotatækifæri. Þeir hafa hlustað um of á sögur Péturs Blöndal um fé án hirðis.
    Auðvitað áttu þeir bara að hlúa að þessum stofni og gefa síðan út og selja veiðikvóta – dýrum dómi.
    Eftirsóknin eftir hreindýraveiðileyfum er löngu búin að sprengja kvótann. Einhverjir ákafir veiðimenn hefðu örugglega borgað morðfé fyrir að sækja sér morðfé vestur í Tálkna. Heimamenn hefði getað haft atvinnu og tekjur af þessum ferðamönnum og skyldað þá að auki til að leigja sér veiðileiðsögumann líkt og þekkist á austurlandi um hreindýraveiðitímann.
    Í staðinn er hreppurinn að borga morðfé fyrir að sækja þessar ólöghlýðnu kindur, keyra þær á Sauðárkrók til að láta drepa þær löglega og urða svo ketið – af mannúðarástæðum.

    PS. svona af mannúðarástæðum og frá sjónarhóli piparsveins – ganga ekki alltof margar villimeyjar lausar þarna vestra?

  •   Stefán Benediktsson // 31.10 2009 kl. 16:04

    Vestmanneyingar fóru í þessa krossferð fyrir nokkrum árum þegar kanínurnar gerðust hústakar í holum lundanna. Ég held þeir hafi útrýmt kanínunum.

  •   Rósa // 31.10 2009 kl. 16:39

    They shoot horses don’t they?

  •   Anna R // 31.10 2009 kl. 21:18

    Kanínur hafa verið að valsa um í einhverjum mæli hér á suðvesturhorninu alveg síðan einhverntíman á 19. öld. En voru lítt áberandi þar til undir lok 20. aldar þegar stofnstærðarsprenging varð (ugglaust vegna þess að þá voru íslendingar farnir að hafa kanínur sem gæludýr og sleppa þeim lausum þegar þeir nenntu ekki að annast um þær lengur). Kanínur virðast hafa það ágætt í Öskjuhlíðinni enda er þar nógur gróður og ylur frá hitaveitustokkum. Og ekki er vetrarhörkunum fyrir að fara í Heiðmörkinni eða við Rauðavatn/Hólmsheiði þar sem allt er orðið ævintýralega uppgróið núna. Þessi loðdýr virðast algjörlega halda sig á þessum slóðum sem bendir til þess að þær geti ekki lifað með góðu móti í náttúrulegri íslenskri náttúru, melum, móum og heiðum.
    Varðandi þessar rolluskjátur þarna fyrir vestan þá skil ég ekki þetta írafár. Hvað er svona rómantískt við húsdýr sem enginn annast um? Skepnur sem meira og minna svelta og falla úr hor á vetrum, komast í sjálfheldu og drepast, falla fyrir björg og drepast, flækjast í margföldum reifum og drepast? Og öllum er hundsama? Mér skilst að meiriparturinn af þessum örsmáa „villistofni“ sé hrútar og það er eitthvað meira en lítið bogið við það. Enda er ljóst að viðkoman er langt frá því að vera eðlileg; þessi stofn stendur algjörlega á heljarþröm vegna erfiðra lífsskilyrða. Annaðhvort að slátra þessu „villifé“ af dýraverndurnarástæðum eða ráða einhvern til að hirða um það, a.m.k. henda í það heyi á vetrum. Það sér enginn sér hag í því.
    Menn verða að átta sig á því að þetta eru útigangsskepnur, ekki „villifé“.

  •   GHR // 31.10 2009 kl. 21:54

    Kanínur eru í hópum á Kjalarnesinu.
    Annars skilst mér á Páli Ásgeiri að það sé væntanleg ályktun frá Hrútafélaginu um þetta merka mál.

  •   Páll Ásgeir // 31.10 2009 kl. 23:05

    Fyrst ríkisstjórnin er farin að fjalla um villihrúta er ekki seinna vænna fyrir Hrútafélagið að taka málið upp á sínum vettvangi. Ályktunar er að vænta.

  •   Steingrímur Thomsen // 1.11 2009 kl. 11:36

    Þarf virkilega þrjú ráðuneyti til að leggja til hvað gera á í Tálknamálinu.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):