Ég hóf bloggferil minn snemma árs 2004. Fyrsta kastið skrifaði ég einkum um blaðamennsku og fjölmiðlun, sagði sögur af fólki sem ég hafði kynnst og aðstæðum sem ég hafði lent í. Þetta var skemmtilegur tími og ég eignaðist marga óvini sem höfuðsátu mig í athugasemdakerfi með óbótaskömmum og orðhengilshætti. Ég lokaði þeirri bloggsíðu vorið 2004 eftir að Jóhann Hauksson þáverandi yfirmaður minn á Rás 2 á Ríkisútvarpinu kom þeirri skoðun á framfæri við mig að ekki væri rétt heppilegt að starfsmenn RÚV væru að blogga um menn málefni á sama tíma og þeir væru að taka viðtöl við þessa sömu menn um þessi sömu málefni. Þetta var auðvitað afar gætilega og óljóst orðað hjá Jóhanni eins og honum einum er lagið en ég skildi fyrr en skall í tönnum og ákvað að loka síðunni. Ég hafði hvort sem er nýlega lent í sérlega óheppilegri uppákomu þar sem ég skaut mig í fótinn bæði persónulega og bókmenntafræðilega með færslu um tengslin milli snilligáfu og útstæðra eyrna. Hörmulegt mál.
Síðan hef ég bloggað í tveimur hrotum og tók síðast upp þráðinn haustið 2008 í þann mund sem bankakerfið íslenska hrundi ofan á okkur og hef skrifað nokkuð reglulega síðan á slóðinni www. hateigsvegur.wordpress.com.
Nú hefur semsagt orðið að samkomulagi að ég taki land á Eyjunni og bætist í hóp blogghænsna sem ganga sjálfala þar á almenningi netsins. Sem fyrr er athugasemdakerfið opið og engum athugasemdum eytt nema verulega sé gengið nærri smekk manna og almennu velsæmi en innritendur hvattir til rökfestu, kurteisi og skemmtilegheita.
Páll Ásgeir Ásgeirsson