óskalistinn

Mega ungabörn vera töff?

08.08 2010 | 00:26 | 13 ummæli

Barnafatasmekkur er ansi misjafn. Á meðan ég vil klæða son minn í töff og gæjaleg föt vilja margir klæða krílin sín í pastelblá eða -bleik krúttleg föt, að minnsta kosti á meðan þau eru oggupons. Sonur minn var 3ja mánaða þegar hann átti geggjaðan sixpensara, brúnköflóttar skyrtur, axlabönd ofl töff en langamma hans hristi höfuðið og fannst hann klæddur eins og „gamall kall“. Hennar skoðun, eins og reyndar margra, er að ungabörn eigi að vera í krúttlegum og dúllulegum fötum. Ljósir pastellitir eru þá vinsælir og einar tvær blúndur skemma víst ekki fyrir. Það er allt gott og blessað – en hér eru nokkrar myndir fyrir okkur hin, sem kunnum að meta kúl föt fyrir litla töffara :)

Two blue cars

Plastisock via Nordic Kids (alveg hægt að gleyma sér þar)

Modern Child

Barley & Birch

Clementine Rose

Þeir sem þekkja mig vita að ég er veik fyrir vinnuvélum… Hérna er hrikalega sæt peysa frá Amber Hagen

Shampoodle

Ekki ungabarn að vísu – en mér finnst þessi „tracksuit“ galli hrikalega skemmtilegur, og það serm er best – hann er líka til í fullorðinsstærðum, og í fleiri litum

Og svo eru það auðvitað yndislegu fötin frá Litla Ljón

IMG_3860
IMG_6310

IMG_6324

Flokkar: Börn



Ummæli (13)

  •   Anna María // 8. ág. 2010 kl. 00:58

    Er ekki aðalatriðið að föt lítilla barna séu þægileg, það sé gott að hreyfa sig í þeim og einfalt að klæða þau í og úr þeim / eða þau að læra að klæða sig í og úr þegar þau vilja fara að æfa sig í því. Einhvervegin hefur mér alltaf fundist það vera grundvallaratriði auk þess að þau séu úr almennilegum efnum sem börn svitna ekki í. Mér er minnisstæður lítill drengur, u.þ.b. tveggja ára sem var að læra að pissa sjálfur. Hann stóð emjandi og hlandblautur á klósettinu, hrikalega sár og vonsvikinn vegna mistaka sinna. Hann var klæddur í svakalega gæjalegar gallabuxur með þröngri tölu, rennilás og flókið belti sem hann éði engan vegin við. Mikið held ég að líf hans hefði verið þægilegra og betra ef hann hefði verið í góðum buxum með teygju.

  •   oskalistinn // 8. ág. 2010 kl. 01:03

    jább ! Hundrað prósent sammála þér þar! :) enda er hversdagsfatnaðurinn enn samfella og sokkabuxur á litla pjakknum mínum – og gallabuxurnar sem hann á eru með yndislega breiðu og góðu stroffi og engum tölum svo það er ekki vandamál :) Snilldin er þegar þetta fer saman – þægindi og stíll ;) þess vegna eru skrautlegar samfellur svo skemmtilegar.

  •   Andri // 8. ág. 2010 kl. 07:33

    Afhverju ertu að blogga um þetta ástin mín, afhverju ertu ekki að kaupa þetta …

  •   Sigríður // 8. ág. 2010 kl. 13:56

    Finnst bara óþarfi að eyða stórfé í tískuföt á ungabörn sem þau vaxa uppúr á nokkrum vikum. Ef þau eru falleg og þægileg er mér sama þótt þau séu ekki „töff“.

  •   Hakon Gunnarsson // 8. ág. 2010 kl. 18:52

    Strakar eiga alltaf ad vera i klassiskum sjolida buning. Tad er svo retro eitthvad og toff.

    http://www.google.co.uk/images?hl=en&q=boy%20sailor%20suit&um=1&ie=UTF-8&source=og&sa=N&tab=wi&biw=1264&bih=645

  •   Lesari // 8. ág. 2010 kl. 22:14

    Ungbörn mega alveg vera töff..
    Unginn minn er mjög töff en öll hans föt eru samt úr 100% bómull, lipur og þægileg. Ekkert sem bannar að þau sé töffaraleg líka.
    Er sjálf hrifin haf allskonar hönnun og sé ekkert að því að afkvæmið sé smart líka.
    Ein uppáhalds íslenska barnafatahönnunin mín er Beroma barnaföt, algjört æði og allt úr bómull með teygjum og kósý.
    Litla Ljón er líka töff.
    Myndi aldrei troða unganum í gallabuxur eða annað óþjált, þægindi framar öllu, en þægindi geta líka verið kúl. Fíla alla vega ekki pastelliti og vemmilegar dýramyndir á barnafötum. EN smekkur manna er misjafn.

  •   oskalistinn // 8. ág. 2010 kl. 23:19

    haha, Hákon, sonur minn var í sjóliðafötum í brúðkaupi í dag – :) Hrikalega sætur!! og töff auðvitað, þó þau hafi fengist í Hagkaup og ekki kostað annan handlegginn ;)

    Og svo eru fötin frá Litla Ljón á ofsalega góðu verði – töff þarf nefninlega ekki endilega að þýða dýrt :)

  •   oskalistinn // 8. ág. 2010 kl. 23:27

    og já ég elska Beroma :) setti bara ekkert inn því ég fann ekki mynd af ungbarnafötum, er Beroma ekki meira með aðeins stærri stærðir?

  •   Kolla // 8. ág. 2010 kl. 23:33

    Ótrúlega skemmtileg síða hjá þér….ég verð fastagestur;)

  •   Lesari // 9. ág. 2010 kl. 09:51

    Snáðinn minn er 6 mánaða og á krummagalla frá henni, minnir að hún geri föt frá stærð 68.
    En töff föt eru ekkert endilega dýrari en hvað annað, bara á svipuðu verði.
    Bara misjafn smekkur.
    Svo er hægt að fá margt skemmtilegt notað og gera góð kaup á útsölum.
    Einhver talaði um Hagkaup, barnafötin þar kosta nú bara svipað og í barnafataverslunum sem sérhæfa sig í ákveðnum merkjum- eða sér íslensk hönnun.
    Hagkaup er bara orðið dýrt hvað varðar barnaföt.

  •   Beta // 9. ág. 2010 kl. 11:49

    Ó, einmitt var ég að hugsa þetta úti í HM. Fann einar svartar buxur og keypti tvær stærðir því ég var svo imponeruð annars var ofsalega margt mjög vemmilegt.

    Fyrstu kaupin fyrir ófædda sonin voru gerð á threadless.com en í framtíðinni mun ég hafa í huga að GAP er líka með mjög gæjaleg föt… http://www.gap.com/products/baby-boy-clothes.jsp

    Svona in keis að einhver í fjölskyldunni sé á leið til amríku.

    Begga…takk fyrir

  •   oskalistinn // 9. ág. 2010 kl. 12:11

    oooh já BabyGap er best í heimi!!! Ég elska skyrtusamfellurnar hans DF (líkt þessu nema köflóttar http://www.gap.com/browse/product.do?cid=54669&vid=1&pid=709977) – þar erum við að tala um algjör þægindi og töffheit :) finnst ómögulegt að troða barninu í óþægilega skyrtu sem er stanslaust að krumpast upp á bak..
    Begga

  •   Kristín // 9. ág. 2010 kl. 13:49

    Ég reyni að klæða dóttur mína í skvísuleg og kjútípæ föt, það er óendanlega gaman. En ef við erum bara eitthvað heima að hangsa þá er það samfella og sokkabuxur ;) En það getur líka verið töff :D

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af fjórum og þremur? Svar: