Urban Outfitters er ein uppáhalds búðin mín og algjör skyldu viðkomustaður þegar ég kíki til Köben eða London. Það er auðvitað ekki fyrir fátæka að versla þar og þess vegna best að detta inn á útsölurnar og gera góð kaup. Mér finnst oft falleg föt þar, en skemmtilegri finnst mér allir smáhlutirnir, glösin, bækurnar og skartið… svo er hægt að kaupa flott húsgögn á Urban Outfitters síðunni!

Mid century sófi – pistasíu
er voða veik fyrir þessum lit.
Æðislegir stafir upp á vegg.. Dauðlangar í svona í barna“herbergið“ hans DF
Waterfall ruffle gluggatjöld – líka til fallega fölbleik – kannski ef ég byggi ekki með karlmanni/mönnum
Delicate Fidelity - Geðveikt plakat frá Forest Luccerro og mid century stóllinn – svolítið skemmtilegt að ég á 2 svona nákvæmlega eins stóla sem ég fékk second hand, nema mínir voru eik en við bæsuðum þá í þessum lit, og svo var blátt áklæði en við létum skera nýja svampa og bólstra þá með hvítu tweed efni.
Mid century stóllinn er líka til sem ruggustóll! Frekar fallegur
sæt Harley+Boss uglukríli
Ipod boombox úr endurunnum sælgætiskössum
snilldar „keep calm and carry on“ plástrar !
Ljósaskilti, hægt að fá allt stafrófið
Diana dreamer lomo vél – ofsa sæt

Á Urban síðunni er hægt að „hanna“ sitt eigið hjól – þ.e. maður getur breytt litasamsetningunum og pantað þannig sitt eigið einstaka hjól.
Og svo – fallegasta dásemdin af þeim öllum – hárauði Ion plötuspilarinn með usb tengi – fallegasta græja sem ég hef séð lengi.

Mynd héðan

Hversu gellulegur er þessi spilari ! Fæst auðvitað í Urban Outfitters, greinilelga eina búðin sem maður þarf fyrir fataskápinn, stofuna, eldhúsið og allt heimilið
Ummæli (7)
Sigurlaug Elín // 26. júlí 2010 kl. 09:56
Jább ekki erfitt að eyða aleigunni og then some í UO…
Reyndar er íslenskt fyrirtæki, Kría Cycles, að sérútbúa hjól líka. Virkilega flott. Meira hér… http://www.facebook.com/kriacycles
oskalistinn // 26. júlí 2010 kl. 23:42
oh lovely !
takk fyrir að láta vita !
Viðundur // 27. júlí 2010 kl. 16:50
hipstera hyskis lífsstíll… í staðinn fyrir að þurfa að hafa fyrir því að vera frumlegur og oldschool þá er hægt að kaupa viðeigandi vörulínur í Urban outfitters, alveg eins og í IKEA. Verst hvað það kostar mikla peninga að lúkka svona fátækur.
oskalistinn // 27. júlí 2010 kl. 18:06
mér finnst hyski nú heldur sterkt til orða tekið. En það er þín skoðun…
Rakel // 29. júlí 2010 kl. 12:59
oo já elska smávöru-dóta deildina í Urban!! Skemmtilegar bækur og allskonar fínerí:)
Tobba // 31. júlí 2010 kl. 23:52
Er elska nokkuð of stórt orð fyrir verslun? Vona ekki því ég elska Urban Outfitters!! Algjörlega uppáhaldsbúðin mín sem ég get alltaf vafrað um á netinu og látið mig dreyma ásamt því að kíkja í hana þegar ég fer út
Berglind Ósk // 8. ág. 2010 kl. 14:18
OMG aldrei hef ég séð þetta áður.. Mig langar í ALLT þarna inná..
Takk fyrir Bergrún, ég á líklega aldrei eftir að eiga pening aftur.. hahaha
neinei, ég hem mig..
Rita ummæli