3.3 2010 | 19:16 | 3 ummæli
Ég er byrjaður að búa mig undir að sjá nýja stórmynd sem auglýst verði og kynnt á Íslandi með ofangreindu nafni því að ljóst er að gamla nafnið, Mjallhvít og dvergarnir sjö, er ekki boðlegt, eins hallærislega og þetta hljómar á útnáratungumálinu íslensku.
Þetta hlýtur að vera næsta skref í enskuvæðingu kvikmyndanna sem stendur sem hæst, nú síðast með því að geta alls ekki notað hið handónýta og lélega nafn „Lísa í undralandi“ þegar ný mynd um Lísu, – fyrirgefið, Alice, er kynnt í auglýsingum.
Í auglýsingu, sem ég heyrði áðan er talað um hin stórkostlegu ævintýri Alice og margtuggið hið glæsilega enska nafn Alice in Wonderland.
Já, það er nú munur að vera maður og míga standandi og verseraður á hinni alþjóðlegu glæsitungu, enskunni, allt frá blautu barnsbeini.
Það verður að koma í veg fyrir íslenskur almenningur og börn kynnist hinum hallærislegu nöfnum eins og Rauðhettu, Mjallhvíti og Öskubusku.
Ég hlakka til þess tíma þegar ný útgáfa af Öskubusku, – fyrirgefið Cinderella, birtist hér uppi á klakanum og maður á þess kost að barnabörnin verði föður- og móðurbetrungar og læri aldrei nafnið Öskubuska.
Það er alveg ömurlegt nafn sem aldrei ætti að heyrast. Eða þannig skil ég þá skipulegu herferð sem hefur verið í gangi undanfarin ár gegn því að kvikmyndir heiti íslenskum nöfnum í íslenskum kvikmyndahúsum.
Greinilegt er að kvikmyndahúsaeigendur telja sig ekki samkeppnisfæra með íslenskum nöfnum á kvikmyndum.
Næsta skref hlýtur að vera að gera ekki íslenskar kvikmyndir nema upp á ensku, annað er líklega ekki sæmandi.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Ég hef undanfarna daga verið að segja frá óborganlegum útskýringum fólks sem ekki er hreyfihamlað en leggur samt óhikað í bílastæði sem eru merkt hreyfihömluðum.
Setningar eins og „ég ætla rétt að skreppa hérna inn fyrir hreyfihamlaðan vin minn“ sem ég tók upp í gær, eru dæmi um grátbroslegar tilraunir til að réttlæta þetta.
Ég er að reyna að finna út af hverju svona margir fullfrískir gera þetta. Kannski finnst þeim það lykta af forréttindum hreyfilhamlaðra að þeir eigi sérmerkt stæði.
En lítum aðeins nánar á málið og gefum okkur að hinn hreyfihamlaði og hinn ófatlaði leggi á sama augnabliki hvor í sitt stæði, sá fatlaði í sitt stæði og hinn ófatlaði í stæði úti í horni bílastæðisins.
Engu að síður getur hinn ófatlaði orðið á undan inn í húsið og með miklu minni fyrirhöfn.
Ég reyni það á eigin skinni þessa dagana hvaða tíma það tekur fyrir „fatlafól“ eins og mig að komast út úr bílnum, taka hækjurnar út úr bílnum, loka og læsa og hökta síðan inn í bygginguna.
Mín niðurstaða er sú að það tekur mun lengri tíma og meiri fyrirhöfn að gera þetta heldur en að ganga fullfrískur langt utan af stæði, – ég hef nefnilega reynt hvort tveggja.
Fullyrðingar eins og „Í svona færi nýtast þessi stæði ekki fyrir fatlaða“ eru fráleitar, því að þetta er þveröfugt, – í „svona færi“ getur það skipt sköpum fyrir þann fatlaða að geta farið fáa metra inn að t. d. lyfjabúðinni þegar utar á stæðinu eru þannig aðstæður að hann kemst þar alls ekki um.
Við, sem höfum notið þess áratugum saman að vera vel ferðafær ættum að minnast þess, að hver sem er getur orðið hreyfihamlaður á einu andartaki.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Tvö fólskuleg og svipuð brot í ensku knattspyrnunni í dag vekja áhyggjur hjá mér um það sem er að gerast á þessum vettvangi.
Svona svakalegar skriðtaklingar á ofsaferð eiga ekki að líðast.
Einkum er það fótbrotið ljóta, sem stingur í augu, en hitt atvikið hefði svo sem getað endað með fótbroti og var enn fáránlegri gerningur, því að boltinn var að fara út af vellinum þegar hið vítaverða brot átti sér stað.
Í svona tilfellum eru refsingarnar allt of vægar að mínum dómi.
Þriggja leikja bann vegna fótbrots, sem setur leikmann í minnst tvo mánuði úr keppni eða jafnvel enn lengur er bara hlægilegt.
Lágmark væri að viðkomandi væri dæmdur frá keppni jafn lengi og hinn fótbrotni er frá keppni.
Í heimsmeistarakeppninni 1966 komust grófir leikmenn upp með það að takla þáverandi heimsmeistara Brasilíu svo illa að þeir báru ekki sitt barr.
Besti leikmaður heims, Pele, haltraði af velli og í framhaldinu af þessu voru dómaramálin tekin til athugunar og reglur hertar.
Brasilíumenn endurheimtu titilinn fjórum árum síðar.
Nú þarf að taka til hendi og skerpa á reglunum, annars eyðileggja svona ljót brot fallega íþrótt.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Eddu verðlaunahátíðin sem fór fram í kvöld bar fagurt vitni um þá grósku og gæði, sem nú koma fram þótt hrunið hafi átt sér stað.
Ástæðan er sú að nokkur misseri eða ár tekur að gera kvikmyndir og því kemur gullöld af völdum bætts stuðnings við kvikmyndagerð ekki fram fyrr en eftir nokkurn tíma.
Í kvöld sáum við afrakstur blómatíma kvikmyndagerðarsumars sem líkja má við haustliti gróðursins sem gerir hann fegurri en nokkru sinni fyrr og uppskeruna glæsilega.
Harkalegur samdráttur á þessu ári og því næsta mun birtast eftir nokkur misseri og í stað þess að þessi menningariðnaður blómstri og skapi margfalt meiri gjaldeyristekjur en nemur opinberum stuðningi við hann, mun veturinn leggjast að af fullum þunga.
Kvikmyndagerðin gerir margt:
1. Eins og áður sagði margfaldast opinber stuðningur við hana í formi gjaldeyristekna.
2. Hún laðar erlenda fjárfestingu á fleiri vegu inn í landið þegar erlendir kvikmyndagerðarmenn sjá hér möguleika.
3. Hún eflir kunnáttu og listfengi íslenskra kvikmyndagerðarmanna sem ber hróður landsins út í heim, – nokkuð sem maður hélt að þjóðinni væri þörf á um þessar mundir.
4. Hún er aldrei nauðsynlegri en nú, þegar þjóðin þarf að spegla sjálfa sig og gera sér grein fyrir ástandi sínu og því hvernig bregðast eigi við því.
5. Hún styrkir stöðu íslenskrar, þjóðar, tungu og menningar og vekur athygli á ómetanlegri náttúru landsins, en undirstaða tilveruréttar okkar í þessu landi byggist á þremur stoðum, sem eru: Land, tunga og þjóð.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Mikið er rætt um það afsal fullveldisins sem hrunið hefur í för með sér.
Upplýsandi um það efni var frétt í sjónvarpinu í kvöld um það að stjórnir íslenskra sjóða eins og lífeyrissjóðanna geti staðið frammi fyrir tveimur kostum við uppgjör þrotabúa og endurskipulagningu fyrirtækja.
Annars vegar að krefjast þess að fá að ráða eignarhaldi til fulls og því hvernig eignahlutföll og skipan stjórna verði og fá þá í hausinn hótun erlendra kröfuhafa um það að láta stórfelldar fjárhæðir falla á lífeyrissjóðina.
Hins vegar að beygja sig fyrir því að þurfa að semja við hina voldugu erlendu kröfuhafa um það hverjir stjórni endurskipulagða fyrirtækinu og eigi í því eignarhlut.
Þetta sýnir í hnotskurn að í hinu alþjóðlega fjármálassamfélagi þýða efnahagsleg áföll óhjákvæmilega skerðingu á fullveldi landsins, sem teygir sig inn á flest svið þjóðlífsins.
Framundan er ekki síðri sjálfstæðisbarátta en háð var fyrir öld.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
24.2 2010 | 01:17 | 2 ummæli
Nýjustu uppákomurnar í prófkjörunum í Kópavogi sýna í hvaða ógöngur þetta fyrirkomulag getur ratað.
Nefnd hafa verið dæmi um óheyrilegan fjölda fólks sem skráði sig inn í raðir Sjálfstæðismanna rétt fyrir prófkjörið þar og voru margir úr öðrum flokkum.
Ef annar eins hópur fer síðan rakleiðis yfir nokkrum dögum síðar úr stóru framboði yfir í miklu minna framboð má nærri geta hvílíkan usla það getur gert þar.
Og það þykir fyrir löngu vera orðið sjálfsagt að hægt sé að valsa inn og út úr flokknum fram og til baka með nokkurra daga millibili án þess að depla auga.
Er furða þótt almenningi þyki ólykt af pólitíkinni?
Í persónukjöri í kjörklefanum í byggðakosningunum sjálfum getur þetta hins vegar ekki gerst ef aðeins kjósendur viðkomandi lista mega raða á listann sem það kýs.
En hinir lýðræðiselskandi smölunarkóngar prófkjaranna finna slíku allt til foráttu og mega ekki heyra slíkt nefnt.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
24.2 2010 | 01:09 | 1 ummæli
Fyrir mistök fór fyrsta upphaf pistilsins hér fyrir ofan inn. Vísa til pistilsins fyrir ofan.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Athyglisvert getur verið að velta vöngum yfir kreppuárunum 1939 og 2010 og líta á hvað er sameiginlegt þessum tveimur árum.
1939 varð kreppan mikla dýpst hér á landi. Kveldúlfur, öflugasta fyrirtæki landsins, var orðið gjaldþrota og vegna skulda landsins var rætt um að Hambrosbanki í London ætti landið í raun.
Gengi íslensku krónunnar hafði verið allt of hátt í 15 ár og sífellt sigið á ógæfuhliðina í þeim efnum.
Þetta kom sér alveg sérstaklega illa fyrir eina útflutningsatvinnuveginn, sjávarútveginn og átti auðvitað geysilegan þátt í því að Kveldúlfur fór í þrot auk þess mikla áfalls sem það var að missa hinn stóra hluta útflutningsins sem fólst í saltfisksölu til Spánar en féll niður vegna borgarastyrjaldar þar 1936-39.
Í kreppunni hafði svonefndur Kreppulánasjóður verið stofnaður til að koma í veg fyrir stórfellt gjaldþrot bænda. Vegna gríðarlegrar verðbólgu varð greiðslubyrðin léttbærari en ella.
Mynduð var svonefnd þjóðstjórn þriggja stærstu flokkanna 1939 en þrír þingmenn Sósíalistaflokksins voru reyndar í stjórnarandstöðu.
Margt af þessu á sér samsvörun í hruninu núna og aðdraganda þess og eftirmálum.
Allt of hátt skráð króna á fölskum forsendum skóp jarðveginn í báðum tilfellum, jafnvel öflugustu máttarstólpar atvinnulífsins hrundu og núna er, rétt eins og 1939, nokkurs konar þjóðstjórn búin að vera við völd í Icesave-málinu.
Hugsanlega getur verið áhugavert að bera nánar saman þessa tvo tíma og kafa ofan í það sem er líkt og það sem er ólíkt.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Skipulagsstofnun gaf í fyrradag út úrskurð um tilraunaboranir við Geysi og í nágrenni hans sem lið í smíði stórrar jarðvarmavirkjanir þar.
Segir í úrskurðinum að umhverfisáhrif af þessum framkvæmdum verði að vísu mikil á meðan á þeim stendur en ekki mikil eftir að þeim lýkur og borholum verður lokað.
Sérstök nefnd um skipulag landsins hefur samþykkt einróma að svæðið við Geysi verði skipulagt sem virkjanasvæði.
Ofangreind orð gætu öll átt við um svona framkvæmdir við Geysi en ég setti heitið Geysi inn í staðinn fyrir Gjástykki, sem hefur nú fengið úrskurði af þessu tagi.
Og af hverju geri ég það?
Af því að Gjástykki er að mínu mati merkilegra náttúrufyrirbæri á heimsvísu en Geysir.
Í Yellowstone í Ameríku eru flottari goshverir en Geysir og Strokkur.
Hins vegar á svæði sem kalla mætti „Sköpun jarðarinnar og ferðir til mars“ við Leirhnjúk og Gjástykki á sér engan líka og engan keppinaut í heiminum, heldur ekki á Íslandi.
Hvergi annars staðar er bæði nú og með skoðun mynda frá Kröflueldum 1984 hægt að sjá hvernig Ameríka og Evrópa slitna hvort frá öðru og hið nýja Ísland kemur upp í formi glóandi hrauns.
Og hvergi annars staðar hafa alþjóðasamtök um ferðir til mars valið sér æfingasvæði hliðstætt því þegar tunglfararnir komu í Öskju 1967.
Öll sömu rökin má nota fyrir því að gera Haukadal að virkjanasvæði og notuð eru annars staðar.
Reynslan sýni að ferðamenn vilji skoða virkjanir, þarna verði hægt að gera lón á borð við Bláa lónið, giskað sé á að Geysisvirkjun skapi um 20-30 störf við stóriðju í Þorlákshöfn og stóriðjan sé það eina sem geti bjargað atvinnuvanda Íslendinga.
Heiðarleiki – virðing – réttlæti.
Þessi þrjú orð stóðu upp úr í lok Þjóðfundarins í Laugardalshöll síðastliðið haust sem keppikefli fyrir þjóðina.
Af úrskurði Skipulagsstofnunar um boranir í Gjástykki má ráða að gríðarleg neikvæð og óafturkræf umhverfisáhrif myndu fylgja virkjun á svæðinu.
En hinir slóttugu virkjanafíklar fara hér greinilega úthugsaða leið sem felst í því að fá fyrst leyfi til að eyða svo miklum peningum hinnar fjárvana Landsvirkjunar að hægt verði að segja: Nú erum við búnir að eyða svo miklu, síðustu peningunum sem við gátum kreist út, að við verðum að fá að nýta þá.
Þetta hefur ævinlega verið aðferðin til að komast áfram í þessum efnum.
Rökstuðningur Landsvirkjunar hefur verið sá að þrátt fyrir þessar tilraunaboranir séu engin áform uppi um að virkja þarna nema ef allt annað þrjóti.
Á sama tíma samþykkir svonefnd Óbyggðanefnd mótatkvæðalaust að gera þetta að virkjanasvæði í Heillisheiðarstíl og frá virkjanafíklum nyrðra kom nýlega yfirlýsing um það að virkjun í Gjástykki sé forsenda orkunýtingar á Norðausturlandi.
Íhugið hve heiðarleg þessi pólitík sé.
Er heiðarlegt gagnvart virkjanafíklunum að segja að þetta verði ekki virkjað, þrátt fyrir borunarkostnað, ef orka fæst annars staðar?
Er heiðarlegt gagnvart þeim sem vilja vernda þetta heimsundur að láta í veðri vaka að ekki verði virkjað en segja líka að virkjunin sé efst á blaði?
Er heiðarlegt að fara þessa útsmognu leið til að ná sínu fram?
Felst mikil virðing fyrir íslenskum náttúruundrum og þjóðinni að koma fram með þessum óheiðarleika?
Og er réttlæti fólgið í því að koma með keðju í veg fyrir að fólk geti farið norður frá Kröflu til að skoða þetta svæði, en verði fyrst hleypt þar inn þegar það er orðið eins og Hellisheiðarsvæðið?
Er réttlæti fólgið í því að höfð sé í frammi stanslaus síbylja um hin tiltölulega fáu störf í 70 kílómetra fjarlægð sem virkjunin geti skapað en reynt að halda gildi Gjástykkis og margfalt meiri tekjumöguleikum af því ósnortnu svo leyndu að Halldór Blöndal skrifar í Morgunblaðið: “ Og nú vilja menn friða Gjástykki. Hvers vegna veit enginn.“
Á Þjóðfundi er talað hátt um heiðarleika, virðingu og réttlæti.
En verkin tala, ekki innantóm orð.
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .
Barátta og ósigur Gunnars Birgissonar í Kópavogi er alþekkt heilkenni í hnefaleikum og kannski hefur hann sökkt sér svona mikið niður í þá þegar hann bar fram til sigurs á Alþingi frumvarp um lögleiðingu ólympískra hnefaleika hér á landi.
Heilkennið felst í því að eftir einstakan glæsiferil kemur að því að titillinn tapast.
Það getur gerst á ýmsa lund.
Stundum er það óheppni, svokallað „lucky punch“ sem gerir útslagið og í þeim mörgu tilfellum sem slíkt hefur átt sér stað eða viðkomandi meistari hefur talið sér trú um að það hafi gerst, hefur hann yfirleitt ekki sætt sig við að enda í striganum, heldur reynt afturkomu.
Dæmin eru óteljandi um að þetta hafi tekist, Floyd Patterson, Muhammad Ali, Tyson, Holyfield, Lennox Lewis, Vladimir Klitschko o. s. frv.
Af þessum sökum hefur það gerst svo oft að meistarar, sem byrjaðir voru að dala, hafa afneitað því og reynt afturkomu sem hefur oft á tíðum orðið hin mesta sneypuför.
Nefna má sum nöfnin hér að ofan í því tilliti, Patterson, Liston, Tyson, Holyfield og marga, marga fleiri.
Oscar DelaHoyja gat ekki sætt sig við að enda ferilinn emjandi í striganum af sársauka, kom aftur í hringinn og átti þá einn sinn besta bardaga.
Þá hefði hann átt að hætta en bara gat það ekki og endaði ferilinn sneypulega í höndunum Manny Paquiao.
Þessi dramatik er eitt af því sem gerir hnefaleikana svona sérstaka.
Gunnar Birgisson sagðist ekki myndu eiga í miklu vandræðum með að takast á við fjóra bæjarfulltrúa í eigin flokki.
Það var hraustlega mælt og minnti á Egils Skallgrímsson sem miklaði ekki fyrir sér að fást við þrettán í einu.
En Gunnar mat stöðuna skakkt eins og hent hefur svo margan öflugan stjórmálamann eða íþróttamann á undan honum.
En svona er lífsbaráttan. Eins og sænskurinn segir: „Saant er livet, – det gaar op og det gaar ned.“
Flokkar: Óflokkað|
Facebook .