Ómar Ragnarsson

blogg á eyjan.is Íslands þúsund ár.

Wall Street og Main Street á Íslandi.

6.2 2010 | 12:48 | Rita ummæli

Bæði Obama og Mc Cain hömruðu á því í kosningabaráttunni haustið 2008 að það yrði að bjarga Wall Street vegna þess að ef fjármálakerfið þar hryndi myndi Main Street fylgja með, þúsundir smárra sparisjóða um allt land og litlu fyrirtækin sömuleiðis, sem yfir 90% hagkerfis Bandaríkjanna byggðist á. Sem sagt: Aðgerðirnar áttu að slá skjaldborg um litlu fyrirtækin og heimilin. Vaxandi gagnrýni er nú á Obama að hann sé í raun að bjarga hákörlunum á Wall Street og að ekkert sé gert til að kafa ofan í það hvað olli hamförunum á markaðnum haustið 2008. Að vísu hefur Obama lagt fram frumvarp um umbætur í fjármálakerfinu en margir óttast að í meðförum þingsins verði það flatt út og að í raun muni ekkert gerast.
Við vitum að á okkar landi byggist efnahagur okkar á fimm hlekkjum, þar sem enginn má bresta: 1. Heimilin. 2. Fyrirtækin. 3. Sveitarfélögin. 4. Ríkssjóðir og opinberir sjóðir landsmanna. 5. Bankar og lánastofnanir. Hér á landi byggist gagnrýni á ástandið á svipuðum grunni og í Bandaríkjunum, sem sé þeim að ekki sé hlynnt að hlekkjum númer 1 og 2 eins og hlekk númer 5. Þetta er helsta vandamál stjórnvalda í öllum þeim ríkjum sem kreppan bitnar nú á og áhyggjuefnið á alþjóðavísu er það helst, að ekki sé ráðist að rótum vandans heldur reynt að framlengja óeðlilegt ástand sem byggist á rekstrarhalla ríkissjóða og áframhaldandi almennri skuldasöfnun sem muni á endanum sprengja allt í loft upp.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



  • .

Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.