Ómar Ragnarsson

blogg á eyjan.is Íslands þúsund ár.

„Flytja lífsbjörgina suður…“

5.2 2010 | 12:32 | Rita ummæli

Stöð 2 greindi frá athyglisverðum umræðum á Alþingi í morgun. Katrín Júlíusdóttir greindi frá því að í á Norðurlandi væri að finna mestu orku landsins og gæti hún komið í stað virkjana í Neðri-Þjórsá.
Kristján Þór Júlíusson bætti um betur og sagði fagnaðarefni að Norðlendingar gætu bjargað málum með því að „flytja lífsbjörgina suður“ eins og hann orðaði það.
Hingað til hefur það verið höfuðatriði stóriðjufíkla fyrir norðan að með því að virkja þar allt sundur og saman verði hægt að nýta rafmagnið í heimabyggð og að það sé nánast skilyrði fyrir virkjunum.
En nú er þetta æði komið á nýtt stig.
Norðlendingar eru tilbúnir til að fórna náttúruverðmætum sínum þótt orkan verði flutt yfir á annað landshorn.
Í baráttu minni fyrir friðun Gjástykkis og Leirnhjúks hef ég bent á að virkjun þar muni aðeins skapa um 20-30 störf í álveri í 70 kílómetra fjarlægð. Ég hef bent á að með því að halda þessu einstæða svæði ósnortnu sé hægt að skapa fleiri og betri störf við ferðaþjónustu og það í sjálfri Mývatnssveit.
‘Nú er að heyra á virkjanfíklum að í góðu lagi sé að skapa þessi störf í meira en 500 kílómetra fjarlægð.
Ef menn ætla að reisa álver á Bakka og jafnframt að útvega þá orku, sem annars hefði komið frá Neðri-Þjórsá er ljóst að norðlenskir virkjanafíklar eru tilbúnir að fórna öllum náttúruverðmætum Norðurlands, allt frá Jökulsánum í Skagafirði austur til Jökulsár á Fjöllum.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



  • .

Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.