Allt ætlar um koll að keyra þegar fyrirliði knattspyrnuliðs er í einhverjum vandræðum í einkalífinu. Fjölmiðlar velta sér upp úr því að baulað hafi verið á hann á knattspyrnuvellinum. Ekki heyrði ég sagt hverjir bauluðu. Það skyldu þó ekki hafa verið áhangendur andstæðinganna sem nota hvert tilefni sem gefst til að láta í sér heyra og þarf jafnvel ekki tilefni til ?
Í þetta skipti var tilefnið ekki inni á vellinum og heldur ekki á opinberum vettvangi eftir íslenskum skilningi heldur einkamál viðkomandi leikmanns.
Frakkar hefðu ekki baulað og heldur ekki haft neinn áhuga á samskiptum mannsins við kvenfólk utan vallar.
Það er greinilega ekki mikið fréttnæmt að gerast fyrst svona mál eru komin í fremstu röð á heimsvísu á tímum þar maður hefði haldið að nóg væri að stórum og bitastæðum málum til að gera skil.
Ómar Ragnarsson
.
Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.