Ég ætla að aðeins að leggja til mola um málfar í viðbót við þá þörfu mola sem vinur minn og félagi, Eiður Guðnason, leggur til. Að undanförnu hefur einn veðurfræðingur á RUV boðið upp á málleysur sem ég hélt fyrst að hefðu verið tilviljanir en heyri þann hinn sama mann nú endurtaka þær aftur og aftur.
Það er eins og þessi veðurfræðingur hafi aldrei heyrt orðin Suðvesturland, suðvesturströndin eða heyrt talað um suðvesturhorn landsins, heldur segir aftur og aftur: „Við suðvestanvert hornið.“
Hvaða horn er það? Er einhver hluti þessa horns „norðvestanvert“, „norðaustanvert eða suðaustanvert?
Orðin Norðausturland, Norðurströnd, Austurland og Austfirðir eða austurströnd eru horfin hjá þessum veðurfræðingi og hann talar ævinlega um „norðaustanverða ströndina“, „norðanverða ströndina“ eða „austanverða“ ströndina.
Má kannski búast við því að senn fari hann að hætt að tala um Vestfirði og tali bara um „vestanverða firðina“?
Veðurfræði er mikil og flókin fræðigrein og þurfa veðurfræðingar að vita margt og muna margt.
En samt verður að gera þá lágmarkskröfu að þeir sem tala um staðhætti á opinberum vettvangi kunni skil á heitum landshluta og tali rökrétt mál.
Ómar Ragnarsson
.
Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.