Samkvæmt frétt í Austurglugganum standa 220 íbúðir auðar á Reyðarfirði og Egilsstöðum. Þetta samsvarar hlutfallslega því að meira 10.000 íbúðir stæðu auðar í þéttbýli höfuðborgarsvæðisins sem gætu rúmað meira en 30.o00 manns.
Í fréttinni kemur líka fram að fjölgun íbúa sem spáð var fyrir austan sé 500 manns minni en reiknað var með og að svonefnd ruðningsáhrif álversins og framkvæmdanna fyrir austan hafi verið miklu meiri en gert var ráð fyrir.
„Gróðæris“-æðið átti upphaf árin 2002 og 2003 á tveimur stöðum á landinu, í Reykjavíkursvæðinu með einkavinavæðingu bankanna og bankabólunni og húsnæðislánasprengingunni og fyrir austan með stóriðju- og virkjanaframkvæmdum.
Fyrir þessa sprengingu var fólksfækkun alls ekki mest á Austurlandi. Raunar hafði fólki fjölgað á Austurlandi frá 1960 um rúmlega þúsund manns á sama tíma og fólki fækkaði á Vestfjörðum um 200o manns og fækkaði líka umtalsvert á Norðvesturlandi.
Nú bregður svo við að sá landshluti sem heldur einna best í fólkið fyrst eftir hrunið eru Vestfirðir þar sem „gróðæris“æðið greip ekki um sig á sama hátt og á Suðvesturhorninug og fyrir austan.
Ómar Ragnarsson
.
Þú verður að vera innskráð/ur til að rita ummæli.