Það er nokkuð ljóst að ég nenni ekki að skrifa um ríkisstjórnarskipti enda eru aðrir betur til þess fallnir, þannig að ég held mér á grínhliðinni!
ást og virðing
Ómar Örn
Það er nokkuð ljóst að ég nenni ekki að skrifa um ríkisstjórnarskipti enda eru aðrir betur til þess fallnir, þannig að ég held mér á grínhliðinni!
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Ég áttaði mig ekki á því hvað þessi frétt var um nema fyrir sakir myndatextans…
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Það eru merkilegar fréttir að gerast þessa stundina í pólitíkinni. Bjarna Harðar hefur sagt af sér vegna tölvupóstsendingar! Þegar maður hugsar þetta þannig þá er þetta kannski ekki merkileg ástæða miðað við afglöp annarra ráðamanna þjóðarinnar sem sitja enn við lýði í hæstu hæðum. Nú ættu fleiri að taka Bjarna sér til fyrirmyndar og segja af sér! En það er óskhyggja sem ekki á eftir að rætast.
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Ég horfði á fréttir á laugardaginn og þar sá ég umfjöllun um mótmælin fyrir framan Alþingishúsið, en það sem mér og öðrum bar fyrir sjónir voru einhverjir 5-10 mótmælendur sem voru að slá til lögreglu og voru með leiðindi. En hvað voru hinir 4000 mótmælendurnir að gera? Jú, vélhjólasamtök ákváðu að spóla og fylla allt af reyk, aðrir stóðu með skilti og öskruðu hvar er Geir. Afhverju var okkur ekki sýnt þessi „friðsamlegu mótmæli“ ??? Afhverju fáum við bara að sjá apakettina sem eru með leiðindi? Það er kominn tími á að fréttastofur taki sig til í andlitinu og segi almennilega frá!
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Gefin hefur verið út nýr safndiskur í kreppunni – í hinni geysivinsælu Pottþétt diskaröð.
Diskurinn heitir ‘Pottþétt kreppa’ og er útgáfa hans styrkt af Glitni, Kaupþing og Landsbankanum í sameiningu.
Lagalisti:
1. Hjálpaðu mér upp – NýDönsk
2. It’s a hard life – Queen
3. Can’t walk away – Herbert Guðmundsson
4. The winner takes it all – ABBA
5. Er nauðsynlegt að skjóta þá – Bubbi Morthens
6. I need a miracle – Fragma
7. Á tjá og tundri – Sálin hans Jóns míns
8. Run to the hills – Iron Maiden
9. Hamingjan er krítarkort – GCD
10. I’m going down – Bruce Springsteen
11. Þau falla enn – Síðan skein sól
12. Ég vil fá að lifa lengur – Todmobile
13. All by myself – Eric Carmen
14. Sirkus Geira Smart – Spilverk þjóðanna
15. Highway to hell – AC/DC
16. Til hamingju Ísland – Silvía Nótt
17. Exodus – Bob Marley
(þetta fékk ég sent via tölvupóst)
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Davíð Oddson og Geir H. Haarde sitja saman í flugvél á leiðinni til Akureyrar.
Davíð segir: “ Ef ég hendi 1000 krónum út um gluggann þá myndi ég gleðja eina manneskju í kreppunni“!
Geir svarar: “ Ef ég myndi henda 10.000 krónum út um gluggann þá myndi ég gleðja 10 manneskjur í kreppunni“!
Flugstjórinn hafði heyrt tal þeirra félaga og segir við þá “ Ef ég myndi henda ykkur báðum út um gluggann, þá myndi ég gleðja BJARGA HEILA ÞJÓГ!
(þetta fékk ég sent í gegnum smáskilaboð)
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
þetta er ábyggilega hundgamalt en skemmtilegt er það allavegana
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Ég var að velta fyrir mér afhverju enginn hjá mbl.is getur heimilda á því hvar þeir finna fréttirnar sínar. Eyjan.is gerir það, blaðamenn Vísis eru byrjaðir að gera það meira og meira, en mbl.is gerir það ekki að staðaldri eins og til að mynda þessi frétt! Ég er búinn að fylgjast með þessari frétt síðan í sumar og skoða fjöldann allan af síðum sem þessi frétt ætti að koma fram en hef hvergi séð hana. Hvaðan fékk blaðamaður þá frétt að jaml, japl og fuður hefði átt sér stað og Berbatov væri á leiðinni í læknisskoðun og félögin hafa komist að kaupverði og hann væri að fara að skrifa undir 4 ára samning????
Er ekki kominn tími á að fréttamenn geti heimilda á því hvar þeir finna fréttir svo hægt sé að lesa frumheimildina af henni? Mér fyndist að það ætti ekki að vera mikið mál! Nema að sjálfsögðu að fréttamaður sé að búa þetta til!
Hannes Hólmsteinn fékk að kenna á því að geta ekki heimilda!
ást og virðing
Ómar Örn
Flokkar: Hversdagsrúnk| Facebook
Þetta er einhver besti íþróttadagur landsins og því ber að fagna fram á sunnudag og jafnvel lengur. Sjáumst á öldurhúsum borgar óttans GLEÐINNAR
ást og virðing
Ómar Örn