Ólína Þorvarðardóttir

blogg á eyjan.is

75 milljarða á mánuði kostar töfin

3.2 2010 | 20:20 | 50 ummæli

Í gær var flutt viðtal á Rás-2 við hagfræðinginn Gunnlaug H. Jónsson í framhaldi af  grein sem hann skrifaði fyrir helgi og birt er á visi.is  Þar fer hann meðal annars yfir það hvað það kosti þjóðina að ganga ekki frá Icesave málinu. Heila 75 milljarða á mánuði kostar  töfin, reiknuð í minnkandi vexti þjóðarframleiðslu – en minni þjóðarframleiðsla er bein afleiðing þeirrar kyrrstöðu sem fylgir því að málið liggur óafgreitt. 

Ég hvet ykkur til að kynna ykkur þetta – greining hagfræðingsins er athyglisverð. Henni lýkur með þessum orðum:

Margir hafa bent á að lausn á Icesave-deilunni sé forsenda fyrir sátt við alþjóðasamfélagið. Það er beisk pilla að kyngja. Hafa verður þó í huga að það eina sem þarf til þess að ná samkomulagi í Icesave-deilunni er að skrifa upp á skuldabréf sem reiknað hefur verið að núvirði til 189 milljarða króna. Með öðrum orðum lausnin snýst um peninga. Hvað kostar að skrifa upp á skuldabréfið og hvað kostar að skrifa ekki upp á skuldabréfið. Sé sú tilgáta rétt að lausn á Icesave-deilunni sé forsenda fyrir því að rjúfa kyrrstöðuna og ná 3% hagvexti á ný þá er rökrétt ákvörðun auðveld. Hver mánuður sem líður án þess að eðlilegum 3% hagvexti sé náð kostar þjóðina 75 milljarða króna Icesave-skuldbréfið kostar minna en þriggja mánaða kyrrstaða. Náum sátt við alþjóðasamfélagið, eyðum óvissu, rjúfum kyrrstöðu og stuðlum að hagvexti, minnkandi atvinnuleysi og hærri launum.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál | Facebook



Ummæli (50)

  •   marat // 3.2 2010 kl. 20:39

    wow, hvar fær maður svona gott gras?

  •   Seiken // 3.2 2010 kl. 20:44

    Þetta er kölluð „hagfræði fyrir sauðfé“ Ólína. Dettur þér virkilega í hug að kostnaðurinn við að fresta Icesave sé 900 milljarðar á ári?

    Rubbish in – Rubbish out, eru svona útreikningar oft kallaðir.

  •   Valur B (áður Valsól) // 3.2 2010 kl. 20:46

    Sjálfsframsóknarflokknum er nákvæmlega sama þó það kostaði þjóðina 100 miljarða á mánuði. Á meðan þeir geta komið höggi á ríkisstjórnina og sjá kannski möguleika á að geta tekið við stjórnartaumunum, þá munu þeir halda áfram að berjast á móti því að Icesave verði samþykkt. Þannig eru þessir flokkar, taka sína hagsmuni fram yfir hagsmuni þjóðarinnar, verst að þriðjungur þjóðarinnar virðist ekki átta sig á því.

  •   baldur blöndal // 3.2 2010 kl. 20:46

    las greinina og hlustaði á viðtalið, fær ekki háa einkunn fyrir rök sín og útreikninga, en ég sé af hverju þú ert svona hrifin; hann vildi að við hef’um skrifa’ undir fullveldisafsal undir hótunum möglunarlaust, það hefur jú verið stefna stjórnarinnar alveg þangað til þið í Samfylkingunni byrjuðuð skipulagt undanhald í gær.

  •   Jónas Bjarnason efnaverkfræðingur // 3.2 2010 kl. 20:51

    Það er galli þegar fræðingar ræða um þessi mál að þeir skuli ekki lýsa þeim forsendum, sem þeir nota og ganga út frá. Þessi reikningur er upp á 189 milljarða króna að núvirði, segir Gunnlaugur. Ég hef líka heyrt nokkru hærri tölu. En ef það er svona, af hverju fáum við bara ekki lán frá t.d. Norðmönnum og borgum kontant, 189 milljarða. Vextir og afborganir af því láni verða örugglega miklu hagstæðari en Icesave dæmið. Af hverju? Af hverju ræða menn ekki um vextina og á ég þá ekki bara við töluna 5,55%? Við verðum látin borga þessa vexti af miklu hærri upphæð en að ofan greinir eða 700 milljarða eða svo. Af hverju eru ekki eignir Landsbankans í Bretlandi dregnar frá strax og við látin borga vexti af mismuninum. Nei, við verðum látin borga vexti af brúttó tryggingagreiðslunni í svo og svo mörg ár, en það er ósanngjarn leikur og stjórnmálamenn eiga að geta þess þegar þeir eru að útskýra málið en ekki fela greiðslurnar inni í pökkum með öðrum skuldum og gera svo lítið úr Icesave. Gunnlaugur hagfræðingur má ekki skauta yfir þetta eins og stjórnmálamaður.

  •   Andri // 3.2 2010 kl. 20:52

    ég held að töfin kosti 150 milljarða á mánuði

  •   Jóhannes // 3.2 2010 kl. 20:52

    Fróðlegt.
    Það er gott að ríkisstjórnin er óðum að koma á vinnuhvetjandi skattaumhverfi og framfylgja verðmætaskapandi umhverfisstefnu, svo fátt eitt sé nefnt. Það hlýtur að vega eitthvað á móti.

  •   Sævar // 3.2 2010 kl. 20:53

    Ef þessi þjóð hefði borið gæfu til að ganga frá þessu ömurlega Icesave-klúðri í júnímánuði 2009- þá værum við hér í þessu landi í góðri uppsveiflu í efnahags og atvinnumálum og horfðum fram á bjarta tíma.

    En , nei , sundurlyndisfjandinn skal leika lausum hala og keyra okkur langt afturábak í lífskjörum.
    Og verði NEI í þjóðaratkvæðagreiðslunni- tekur algjör óvissa við.
    Þurfum við að fara niður á fátækrastig eins og það var um miðja síðustu öld-til að ná áttum…? Það stefnir í það…

  •   TBR // 3.2 2010 kl. 20:56

    Já það er sko ekkert smáræði sem að þessi ríkisstjórn hefur kostað okkur með því að sjá ekki til þess að skipaður væri þaulreyndur erlendur viðsemjandi í þessu máli…

    Hugsaðu þér bara Ólína, ef þið hefðuð haft vit á því að senda einhvern „bolabít“ til að semja við Breta og Hollendinga í stað Svavars og co þá væri þetta mál líklegast löngu úr sögunni..

    Ég held að þið stjórnarliðar ættuð að fara að hætta þessu tuði og átta ykkur á því að þið eruð í raun stálheppin að vera ennþá í vinnu þrátt fyrir þessi gígantísku mistök ykkar…

  •   gerber // 3.2 2010 kl. 20:58

    Thu ert svo mikid krutt Olina.
    En varla ertu svona audtrua.

  •   Jói // 3.2 2010 kl. 21:13

    Voru það ekki hagfræðingar sem settu alt á hausinn hjá ykkur, er ekki Geir Haarde hagfræðingur sem silgdi skútuni í kaf.
    Best að hlusta ekki of mikið á þessa fræðinga sem gerðu landið gjaldþrota .

  •   Skötuselurinn // 3.2 2010 kl. 21:15

    Það næst aldrei eðlilegur hagvöxtur með þessa ríkisstjórn. Þannig að hvernig sem á málið er litið þá er þetta ofreiknað

  •   Jón Á Benediktsson // 3.2 2010 kl. 21:16

    Samkvæmt heilagri Jóhönnu í Kastljósi í gær þá erum við í bullandi uppsveiflu , búið að gera alveg helling fyrir heimilin í landinu(sem reyndar enginn hefur orðið var við ,nema hún og skósveinarnir Árni Páll og Magnús Orri) svo hvað erum við að kvarta. Þar fyrir utan, væri ekki ráð að reikna einnig skaðann sem þessi óhæfa ríkisstjórn er búin að kosta samfélagið síðan hún tók við.
    PS. ég segi nei við Ices(l)ave

  •   AC TC // 3.2 2010 kl. 21:17

    Hvenær á svo að kalla inn kvótann?

  •   Margrét // 3.2 2010 kl. 21:21

    Ef upphæðin er svo „smá“, sem 189 milljarðar þá getum við tekið lán fyrir því NÚNA eða klipið af gjaldeyrisvarasjóðnum. Trúi ríkisstjórnin þessum tölum er verulegt áhyggjuefni að hún skuli vera tilbúin að dreifa skuldinni um ókomna framtíð með dinglandi vöxtum. Að hún skuli ekki leita allra leiða að fá að láni þessa upphæð og greiða Bretum og Hollendingum með einni greiðslu er umhugsunarvert svo ekki sé kveðið fastar að orði.

    Skv. Seðlabanka Íslands hefur gengi gjaldmiðla hækkað um 100% á sl. 20 árum (frá jan. 1990) .
    Til að gera okkur grein fyrir hvað framtíðin ber í skauti sér, má líta til fortíðar. Erlendur gjaldeyrir á því eftir að hækka um 100% næstu 20 árin og mun Icesave skuldin og vaxta upphæðin hækka sem því nemur.

    Ekki lægja þessar upplýsingar áhyggjur mínar af annarlegum áhuga ríkisstjórnarinnar á að skrifa undir slæman samning vegna Icesave.

  •   Tóti // 3.2 2010 kl. 21:26

    Samfylkingin er greinilega í miklum vandræðum með hvernig Icesave er að þróast. Sorgleg staða að þurfa að reyna að verja þau miklu mistök sem fyrri Icesave samningar augljóslega voru.
    Realpólitik væri að sætta sig við orðinn hlut, reyna að vinna skynsamlega úr stöðunni og hætta að beita ótruverðugum hræðsluáróðri.
    ESB áhuginn hefur afvegaleitt Samfykinguna og nú þarf hún að endurhugsa allt frá grunni.

  •   aRNAR hELGI // 3.2 2010 kl. 21:27

    Ha , já -Hlustum á hagfræðinga…hehe….

  •   Hannes Hrun // 3.2 2010 kl. 21:34

    Best er að tefja Icesave málið sem allra lengst, svo ríkisstjórnin hrynji.

    Þá komumst við aftur til valda, með Davíð og Kjartan og Baldur og Björn – og mig líka! Sjálfan konung hrunsins.

    Þannig þarf þetta að verða – druslurnar ykkar!

  •   Margrét // 3.2 2010 kl. 21:34

    Því má svo bæta við að vilji ríkisstjórnin koma atvinnulífinu í gang hérna þá væri heillaráð að veita heimilum í landinu, þann afslátt sem nýju bankarnir fengu húsnæðislánin okkar á.
    Þá verður hér ekki verðhjöðnun eins og fyrirsjáanleg er og mun endanlega gera útaf við
    fyrirtækin í landinu og bankarnir munu tapa öllum verðtryggingar „gróðanum“.
    Að ríkisstjórninni finnist hins vegar boðlegt að veita mönnum eins og ÓlaTortóla „hreinsað“ Samskip á silfurfati og gefa Björgólfi Thor það viðskiptatækifæri aldarinnar að setja hér upp gagnaver, segir allt um svik þessarar ríkisstjórnar við okkur til vinstri sem og málstað okkar.
    Mér er flökurt.

  •   Jón Ármann Héðinsson // 3.2 2010 kl. 21:38

    Mig undrar svon tölvuvísindi. Hafði svarað og spurt áður. En auðvitað getur maðurinn og
    þÚ EKKI SVARAIÐ. Með vissum fosendum get ég
    sagt að talan sé allt að 100 milljörðum eða um 50 mjarðar. Hvenær var sól á Vestfjörðum í 8 mán?
    eða þorskurinn þar bundinn við stjóra?
    Því ekki að veiða 200 þúsund tonn? Það vilja vestfi.
    Hættum að bulla eins og flón.
    Björn Pásson alþm. sagði við gengisfellinguna 1968
    “ Jónas Haralz reiknaði rétt, en hann setti óvart
    RANGA TÖLU INN Í VÉLINA“ Niðurstaða ekki
    væri marktakandi á áformum ríkisstjórnarinnar.

  •   Comon // 3.2 2010 kl. 21:39

    Ef maður gefur sér, án mikilla spekúlasjóna, að 2 + 2 séu 6.200 – eins og blessaður hagfræðingurinn gerir, er auðvelt að fá út, með miklum orðaskrúði, að 2+2+2 séu níu þúsund og þrjú hundruð – og þykjast hafa rétt fyrir sér…!

    Að ströggla í því að krjúpa fyrir Icesave nauðungunni sé ástæðan fyrir því að hér sé ekki 3% hagvöxtur – þegar öll vestræn ríki eru í stöðnun og mörg enn í samdrætti (hvað þá Ísland sem lenti í kreppunni verr en flestir) er píp út í loftið, rugl, þvæla og tóm vitleysa.

    Og til viðbótar þá er ríkisstjórn við völd sem vill ekki virkjanir eða stóriðju í landinu, heimtar að fá að fara svokallaða „gjaldþrotaleið“ með sjávarútveginn og fylgir svokallaðri „skattahækkanaleið“ á heimili og fyrirtæki sem leið út úr kreppunni.

    Líkur á 3% hagvexti eru meiri á bakhlið tunglsins en hér á landi – og sú staðreynd kemur Icesave lítið við.

    En þingmaðurinn, sem vill þjóðnýta sjávarútveginn, finnst þetta auðvitað bara tær snilld..?

    Flottir útreikningar..!

  •   Einar // 3.2 2010 kl. 21:58

    3% hagvöxtur er draumsýn í núverandi skattaumhverfi og vinnuletjandi stefnu VG stjórnarinnar, að ekki sé talað um fyrningarleiðina sem er sennilega vanhugsaðasta hugmynd í atvinnumálum í áratugi.

    Ég get, með sama hætti, sagt að þjóðfélagið í raun hagnist um nokkra milljarða á meðan Icesave er ekki afgreitt í núverandi mynd (með því að leggja mat á sanngjarna niðurstöðu versus það sem Samfylkingin hefur lagt upp með).

    Ég get ennfremur sagt, með sama hætti, að vinstristjórnin kosti okkur, þjóðfélagið, um 75 milljarða á mánuði því undir þessari stjórn verður enginn hagvöxtur. Aldrei. Á meaðn vinstrimenn stjórna og nota það ofurskatta kerfi sem þeir hafa komið á hér á landi mun hagvöxtur verða núll.

    Ólína og félagar stæra sig af því að hér sé komið skattkerfi að norrænni fyrirmynd, sem er rétt að hluta. Það sem vantar er hin mannlega hlið skattkerfisins sem við sjáum t.d. í Danmörku þar sem þriðjungur vaxtakostnaðar heimila er frádráttarbær frá skatti.

    Ólína og félagar vilja taka sem flestar krónur af okkur þegnunum, en skila sem fæstum af þeim til baka.

    Peningurinn er notaður í ýmis gæluverkefni vinstrimanna, svo sem ESB aðild, tónlistarhúsið, listamannalaun, og svo auðvitað stjórnmálaflokkana sjálfa sem hirða mörg hundruð milljónir á ári.

    Og svo hefur kreppan ekki enn knúið dyra í stjórnarráðinu þar sem maður gengur undir manns hönd að ráða inn nýja og nýja starfsmenn til að sinna ýmsum „aðstoðarmanna“störfum.

    Ólína, áður en þú ferð að tala um skaða þjóðfélagsins af pólitískum uppátækjum skaltu líta þér nærri og, vinsamlegast, halda þínum skoðunum út af fyrir þig.

    Þjóðin er búin að fá upp í kok af ykkur.

  •   Mara // 3.2 2010 kl. 22:00

    Hvílíkir spekingar tjá sig hér! Marat, Seiken, Comon o.sfrv.

    Manni sundlar um svipstund af allri fræðimennskunni…

  •   Haukur Nikulásson // 3.2 2010 kl. 22:24

    Ólína, ertu virkilega svona trúgjörn? Er nóg að hagfræðingur segi eitthvað? Hvað þurfti marga hagfræðinga til að koma Íslandi á hausinn?

  •   Guðmundur 2. Gunnarsson // 3.2 2010 kl. 22:24

    Þetta eru þá bara smáaurar sem þarf í fórnarkostnað til að forða 70% þjóðarinnar frá að ykkur tekst að fullkomna hryðjuverkið og ESB nauðunguna sem yrði liður í uppgjöfinni fyrir Bretum og Hollendingum og ólögvörnum Icesave falsreikningnum. Eins og þú hefur tekið skýrt fram ásamt öðrum ráðherrum og þingmönnum stjórnarflokkanna í tveimur samþykktum Icesave lagafrumvörpum þar sem segir að við viðurkennum ekki að um lagalega skildu er að ræða að greiða umfram það sem lög segja. Forsætisráðherra hefur gert Gordon Brown það sérstaklega ljóst í sendibréfi fyrir stuttu. En hefurðu einhvertímann spurt alla hagfræðingana hvar þeir voru og hvað þeir voru að gera fyrir október 2008?

  •   Jón Ármann Héðinsson // 3.2 2010 kl. 22:32

    Einn gamall frá Rússlandi:

    A. Stalin margfaldaði 2 x 2 = 5
    B. Bresnef “ 2 x 2 = 3
    og svo kom frelsarinn
    Gorbi(kom hingað) 2 x 2 = 4 og þá hrundi allt.

    Ráð: Allt í mat, stórt og smáttt. Bíðum og
    sjáum til. Enginn má gera neitt NEMA
    leyfi frá eftirlitshjörðinni ( um 1000
    mannas alls). Horkraðu og veiddu í soðið
    eða prjónaðu´ tvíbanda vettlinga og ekki
    byrja með hundafit. Það gengur EKKI

  •   Jón Gunnarsson // 3.2 2010 kl. 23:00

    Það er ekki alveg nó að ganga frá Icesave þótt það sé þarft mál. Það þarf líka að skipta um Umhverfisráðherra til að koma hjólum atvinnulífsins af stað. Burt með Svandísi Svavarsdóttir sem first.

  •   Þorður // 3.2 2010 kl. 23:05

    Hver er að ritskoða

  •   Ágúst Á. // 3.2 2010 kl. 23:05

    Lítilfjörlegar eru athugasemdirnar sem þú færð við þessa færslu Ólína.

    Það er sama hvað þú bloggar um núorðið, hvort það er stuðningur við fólk, sögur úr daglegu lífi eða skoðanir á málefnum líðandi stundar … öllu snúa spekingarnir hér upp í fúkyrði gegn ríkisstjórninni.

    Skrímsladeildirnar eru orðnar æði margar í umræðunni, og mér sýnast þær allar hafa lagst á síðuna þína.

  •   Þorður // 3.2 2010 kl. 23:07

    essasú Ólína

  •   Jónsi // 3.2 2010 kl. 23:10

    Tek undir með Möru. Allar þessar athugasemdir frá nafnlausum öfgamönnum sem blása sig út í rugli og skætingi eru ömurlega þreytandi.

    Hvað skyldu vera margar IP tölur á bak við þessi nöfn? Ein, kannski tvær?

  •   Anna Kristín Pétursdóttir, áður Móvinda // 3.2 2010 kl. 23:32

    Það eru að opnast miklu hagstæðari lánalínur en hefur staðið til boða og ekki nóg með það…

    ALHEIMS mæling lánsmatsfyrirtækjanna er að sveifla Íslandi UPP Á VIÐ..

    Icesave er léleg afsökun fyrir aðgerðarleysi þessarar ríkisstjórnar…

    Ég minni bara á eitt smá mál… og það er þessi meinta „skjaldborg“ um heimilin…

  •   joi // 3.2 2010 kl. 23:34

    Þessi tala er bara rugl og ekkert annað. Tekjurnar af þokkalegri loðnuvertíð eru 10-12 milljarðar. Það jafngildir 4-6 daga tapi af Icesave. Ef tölurnar v. Icesave eru svona rosalegar, þá værum við fyrir löngu komin á hausinn.

    Það er ekkert að gerast vegna Icesavse, við þurfum að fá þessa Icesave skuld niðurfelldaað stærstum hluta, þá fyrst getur Ólína talað um að spara peninga.

  •   Mara // 3.2 2010 kl. 23:42

    Joi litli, taktu við stjórn landsins.. Og hjálpi okkur þá hamingjan!!!

  •   Magga // 3.2 2010 kl. 23:46

    Voðalega getur fólk bullað. Djísús hvað ég skammast mín fyrir þessa heimsku þjóð!! Ólína er að benda á grein þar sem hagfræðingur reynir að meta hvað það getur kostað okkur að búa við langvarandi stöðnun, kjánarnir vilja alls ekki ræða það mál því þeir geta það ekki. Svona „lentum við í“hruninu, fólk gat ekki talað saman og hlustaði ekki á neinn sem var ekki í réttu liði.

  •   SIJ // 4.2 2010 kl. 00:04

    Ég fæ ekki betur séð en þetta sé reiknað með sömu snillinni og þegar Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson hjá Saga Capital eignfærði reiknaðan mismun á 2% gjafaláni ríkisins og mögulegum vöxtum á einhverju láni sem aldrei hefði fengist og bjargaði þannig Saga Capital frá gjaldþroti.
    Þetta minnir helst á heilræði sem ég heyrði um hvernig ætti að ráða sér bókara. Þú auglýsir starfið og boðar fólk í viðtal. Spyrð hvað er 2+2?
    Þeim sem segja „fjórir“ þakkar þú fyrir komuna, en ræður þann sem svarar; „hvaða tölu hafðir þú í huga?“

  •   Margrét // 4.2 2010 kl. 00:53

    @Magga
    Hjartanlega sammála þér um heimsku þessarar þjóðar. Og ég er líka sammála þeir að fólk gat ekki OG GETUR EKKI ENN talað saman.
    Öllu skiptir að vera í rétta liðinu ennþá og EKKERT hefur breyst. Við vinstri menn glöddumst innilega eftir búsáhaldabyltinguna og stjórnarskiptin. Í fyrsta skipti 18 ár var hér hrein vinstri stjórn. Mörg okkar trúðum því í meir en korter að hér yrði nýtt Ísland. Ekki bara vegna loforðanna, sem okkur voru gefin, heldur lá það í hlutarins eðli eftir að vinstri stjórn fékk völdin.
    Ég ætla ekki að skrifa í alla nótt þó vel ég gæti, um þau geypilegu vonbrigði sem við höfum orðið fyrir. Þau eru sárari en tárum taki og verða sennilega seint fyrirgefin.
    Ekki stafa þau þó af verkfælni og linkind stjórnarinnar. Ekki einu sinni af framgöngu þeirra í Icesavemálinu.
    Nei – vonbrigðin stafa af leyndinni, áframhaldandi klíkuskapnum, sukkinu, sérhagsmunapotinu, yfirhylmingunni, öllum fyrirgreiðslunum við gerendur hrunsins, aðgerðarleysinu við að fella niður stökkbreyttar skuldir heimilana, sem flokkast hreinlega undir þjófnað og mun á endanum koma jafnvel mörg þúsund fjölskyldum og fyrirtækjum þessa lands í
    gjaldþrot og áratuga fátæktar og stöðnunar.
    Viljinn til að ljúka Icesave án baráttu vekur furðu og þá tilfinningu að eitthvað búi að baki.
    Þessa sömu Icesaveskuld sem FYRIR stjórnarskiptin, Steingrímur sagði m.a. þetta:
    „það verður gerð uppreisn hér á landi verði gengið að kröfum Breta og Hollendinga um að Íslendingar greið 600 milljarða vegna Icesave-reikninganna“ !!!!! Einmitt það – hvað skyldi hafa breyst svona stórkostlega?!!!
    Okkur var lofað gegnsæi á sem allra flestum sviðum – nú er forsætisráðherra á leynilegum, og lokuðum fundi í Hollandi.
    Okkur var lofað skjaldborg – en fengum GJALDBORG. Ekkert á að gera fyrir þá sem skrimta – bara svo lengi sem þeir geta staðið í skilum, sama hvernig.
    Hér fær 95 gömul kona ekki inni á viðeigandi stofnun því það er verið að spara. Yfirlæknir til 27 ára gengur út af vinnustað sínum og segjir hryðjuverk hafa verið framin á íslensku heilbrigðiskerfi.
    Samt á að byggja hér tuga þúsunda fermetra sjúkrahús. Troða því niður nánast á miðjan flugvöll og í miðju í einu af borgarinnar fallegasta hverfi. Ekki er til peningar til að manna spítalana í dag – hvernig á þá að vera hægt að manna mörgu sinnum stærri spítala?
    Hér fá menn sem hafa ryksugað bankana, sjóði, tryggingafélög, fyrirtæki, lífeyrissjóði, útgerðina og almenning meiri fyrirgreiðslu en áður hefur þekkst í þessu þjóðfélagi og náhirðin og kolkrabbin gætu verið stolt af að veita.
    Svikin eru nánast alger og á öllum sviðum.
    Þa er verið að ræna gæðum landsins og bestu fyrirtækjunum aftur! nú í boði vinstri.
    Áður fyrr hafði ég áhyggjur af framtíð Íslands en nú, ári eftir að vinstri stjórnin tók við, er ég hrædd – verulega hrædd.

  •   Danton-María // 4.2 2010 kl. 02:29

    Ég er hjartanlega sammála Ólínu og hagfræðingnum.

    Áttar fólk sig ekki á hvað staðan er alvarleg?

    Við stefnum í kerfishrun og það er engin óþarfa svartsýni. Óþarfi að brigsla Ólínu um að benda á staðreyndir sem ættu að vera hverjum heilvita manni ljósar.

    Mergurinn málsins eru lokaorð Gunnlaugs: Náun sátt við alþjóðasamfélagið og semjum til að hægt sé að komast upp úr frostinu.

    Vill fólk ekki komast upp úr þessum hjólförum?

  •   DROPLAUGUR // 4.2 2010 kl. 03:15

    Ólína er rödd skynseminar í þessu máli. Þegar við erum búinn að skrifa undir icesave þá er þetta bara ekkert mál!!!!

  •   Sérhver // 4.2 2010 kl. 09:15

    baldur (4.2 2010 kl. 07:21) skrifar hér um að ónefndur hagfræðingur gefi sér hitt og þetta. Upp úr honum sjálfum standa órökstuddar fullyrðingar sem hann getur ekki stutt með neinum hætti, enda gerir hann ekki tilraun til þess.

    baldur bullari.

  •   Sigurður #1 // 4.2 2010 kl. 12:25

    Margrét // 4.2 2010 kl. 00:53

    Alveg innilega sammála hverju orði.

    Þessi stjórn er algerlega samstíga í því að hér skuli engu breyta.

    Ólína og Co mega kalla þetta vinstri stjórn, en því fer fjarri að svo sé í raun.

  •   Sigurður #1 // 4.2 2010 kl. 12:28

    Bendi svo Ólínu og Co á eitt.

    Bretar stæðu ekki í þessu veseni við okkur ef þeir teldu minnstu líkur á því að eignir Landsbankans dygðu fyrir 85-100% af kröfunum.

    Þeir væru löngu búnir að taka yfir draslið og hætta þessum leiðindum.

    Það veit hver hugsandi maður að eignasafn þessa banka er verðlaust, rétt eins og það var hér á landi.

  •   SO // 4.2 2010 kl. 12:55

    @Margrét // 4.2 2010 kl. 00:53:
    Eins og talað úr mínu hjarta! Þú kemst að kjarna málsins. Takk.

  •   HJH // 4.2 2010 kl. 14:58

    Hvað er að fólki hérna? Ólína er að vitna í viðtal við þennan hagfræðing, og þá er fólk með skýtkast í hana. Halló er ekki orðið í lagi með íslendinga.

  •   Jóhann Björn Jóhannsson // 4.2 2010 kl. 15:14

    Margrét eins og talað út úr mínu hjarta

  •   Pétur Örn Björnsson // 5.2 2010 kl. 03:17

    @Margrét 4.2.2010, kl. 00:53
    Hjartanlega sammála þér. Kannski Ólína ætti að lesa aths. þína alveg sérstaklega vel og geyma í hugskoti sínu. Til dæmis þessi orð Margrétar:

    „Hér fær 95 gömul kona ekki inni á viðeigandi stofnun því það er verið að spara. Yfirlæknir til 27 ára gengur út af vinnustað sínum og segjir hryðjuverk hafa verið framin á íslensku heilbrigðiskerfi.
    Samt á að byggja hér tuga þúsunda fermetra sjúkrahús. Troða því niður nánast á miðjan flugvöll og í miðju í einu af borgarinnar fallegasta hverfi. Ekki er til peningar til að manna spítalana í dag – hvernig á þá að vera hægt að manna mörgu sinnum stærri spítala?“

    Er þetta ekki eitthvað snar-galið? Til viðbótar vil ég staðhæfa að þetta rosalega byggingarmagn, með öllum sínum gatna-slaufum og vafningum verður hrikalegt „monster“ í miðbænum, sem enginn vill svo kannast við þegar frá líður.

    Ólína, nú langar mig til að biðja þig að beita þér fyrir því að stöðva þessa trölla-heimsku. Þessi framkvæmd er sniðin fyrir (erlend)stór-verktakafyrirtæki og stökkbreyttar verkfræðistofur. Ein alls herjar ávísun á bruðl, spillingu og hundakúnstir með excel.

    Hvar er hinn mannlegi kvarði? Ég segi alltaf og get sagt það enn og aftur að margt smátt gerir eitt stórt…eitt risa-stórt og það gagnast hagsbótum okkur miklu betur til blómlegrar og fallegrar framtíðar.

  •   Jóhann Björn Jóhannsson // 5.2 2010 kl. 14:56

    Passið ykkur að á að kenna krötunum um hvernig komið er fyrir okkur Íslendingum!? Ef þið gerið það þá tekur hún svoleiðis óþægindi bara út!! Þetta eru kratarnir!! Svona finnst þeim þægilegast að vinna!! Hún tók mína athugasemd bara út líklega vegna þess að hún var kannski frekar óþægileg?!´Ólína fræðimaður og reiknimeistari líður þér ekki betur þegar þú þarft ekki að horfa á og lesa einhver svona leiðindi?! Ég vona það!!

  •   Toni // 6.2 2010 kl. 12:26

    Pistil Margrétar hérna í athugasemdakerfinu ætti að birta á forsíðu allra blaða og tímrita í landinu.

    Kærar þakkir fyrir þetta Margrét.

  •   Alli // 9.2 2010 kl. 12:05

    Þetta minnir á söguna um fjöðrina sem varð að fimm hænum.
    3.2 2010 | 20:20 er upphæðin 75 milljarðar á mánuði skv. Ólínu.
    Valur B (áður Valsól) // 3.2 2010 kl. 20:46 : 100 milljarðar.
    Andri // 3.2 2010 kl. 20:52 : 150 milljarðar.
    Hvar endar þetta eiginlega?

  •   Hólmfríður Bjarnadóttir // 9.2 2010 kl. 22:18

    Sæl Ólína. Mikið fer það í taugarnar á fólki þegar bent er á kostnaðinn af töfum í boði Bessastaðabóndanns. Það kostar sem sagt mikla peninga að setja samfélagði á hold. Auðvitað má velta tölum endalaust fyrir sér en það er morgunljóst og þarf ekki hagræðimenntun til, að kostnaðurinn við töfina er gríðarlegur.
    Draumórastjórnmál eru ekki ókeypis og ætíð betra að leggja raunsætt mat á samtímann.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):