Nú nálgast óðum sá dagur að þjóðin gangi til kosninga um Icesave samninginn. Einhvers staðar kom fram að kostnaður við þessa þjóðaratkvæðagreiðslu eitthvað um tvö hundruð milljónir króna.
Hvernig væri nú að fullnýta þessa fjármuni með því að grípa tækifærið til þess að spyrja þjóðina um fleira í þessari atkvæðagreiðslu en Icesave samninginn einan og sér?
Nú hefur fjármálaráðherra verið spurður álits á þeirri hugmynd að ganga til þjóðaratkvæða um framtíð kvótakerfisins, og ekki tekið því fjarri. Því þá ekki að nota nú tækifærið úr því verið er að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu með ærnum tilkostnaði hvort eð er?
Spurningin um framtíð kvótakerfisins þyrfti ekki að vera lagalega bindandi, hún gæti verið ráðgefandi – sem þýðir að það þyrfti ekki að setja um hana sérstök lög eða tengja hana við boðað frumvarp um þjóðaratkvæðagreiðslur almennt. Hún myndi þá fyrst og fremst gegna því hlutverki að gefa stjórnvöldum til kynna vilja þjóðarinnar. Um leið myndu deiluaðilar þá kannski átta sig á því hver er raunverulegur vilji fólksins í landinu gagnvart ráðstöfun þjóðarauðlindarinnar.
Ég myndi a.m.k. fagna því ef þjóðin fengi nú að segja sitt álit á þessu mikilvæga þjóðarhagsmunamáli.
Ólína Þorvarðardóttir
Ummæli (32)
joi // 25.1 2010 kl. 13:57
„grípa tækifærið og spyrja þjóðina“!!!!!
Þú ert ekki að spyrja hvort menn vilji tómatsósuna ofan á pylsuna eða undir Ólína. Þetta er örlítið meira mál en svo.
Þessi popúlismi ykkar er farinn að verða hættulegur.
Þórður Runólfsson // 25.1 2010 kl. 14:05
Er lýðræðið komið á tilboð í Bónus?
joi // 25.1 2010 kl. 14:10
Samfylking mun varla eiga í miklum vandræðum með að fá lánað eins og eitt tilboðs bretti hjá þeim. Tenging þar á milli hefur alltaf verið þétt.
DV segir að Ólína vilji „spara“ og setja þetta kvótann í þjóðaratkvæðagreiðslu um leið og Icesave. Hagsýna húsmóðirin alltaf að. Hún vildi nú ekki gefa fólkinu í landinu kost á að kjósa um Iceasave þegar Samfylking þrælaði því frumvarpi í gegn, með 70% þjóðarinnar gegn sér, en núna vill hún spara með því að setja kvótann í þjóðaratkvæðagreiðslu!!!!!!!
Hvar er eiginlega stöðugleikinn? Engin kosning um Icesave, en kosning um kvótann!!!!!!!
Hættu nú alveg Ólína, þetta er alveg að verða komið gott af hringlandahætti í bili.
GG // 25.1 2010 kl. 14:23
Styð hugmynd þína heilshugar Ólína. Það kostar mikla peninga að halda þjóðaratkvæðagreiðslu og þetta mál liggur eins og mara á þjóðinni.
Icesave og kvótinn í sömu þjóðaratkvæðagreiðslu !
Tvær flugur í einu höggi.
Elfa Jóns // 25.1 2010 kl. 14:23
Mér finnst þetta aldeilis prýðileg hugmynd. Um að gera að nota tækifærið og gera alvöru skoðanakönnun meðal þjóðarinnar.
Það gæti ýtt undir þátttöku í báðum atvkæðagreiðslum að þær séu framkvæmdar samtímis.
Grunsamlegt hvað „ákveðnir aðilar“ eru á móti að kanna þjóðarvilja í þessu máli
HKH // 25.1 2010 kl. 14:23
Þetta er sérdeilis fín hugmynd.
Því ekki að nota þá tækifærið í leiðinni og kjósa um aðildarviðræður að ESB og víst að við erum byrjuð, því ekki að tékka á því hvort fólk sé með eða á móti fóstureyðingum….svona víst að við erum farinn að kjósa um deilumál á annað borð.
En þessi hugmynd hjá þér hlýtur annars að vera svona djók, hárbeitt ádeila hjá þér, það hlýtur bara að vera…..
Matthias // 25.1 2010 kl. 14:25
Eru menn eitthvað smeikir við setja þetta í dóm þjóðarinnar?
Stjáni // 25.1 2010 kl. 14:37
Þetta er frábær hugmynd endilega fylgja henni eftir!
Sævar // 25.1 2010 kl. 14:48
Þjóðaratkvæðagreiðsla um kvótann eins og þú tíundar í pistlinum er alveg gulls ígildi.
Þjóðin fskinn í sjónum og því skyldi þjóðin ekki svara til um nýtingarfyrirkomulagið ?
Útgerðarfólkið er hluti þjóðarinnar og þar hefur hver maður eitt atkvæði. Er hægt að ganga fram með sanngjarnari hætti ?
Styð það 100 %
baldur // 25.1 2010 kl. 14:52
Eigum við ekki bara að efna til þingkosninga á sama tíma og gera þetta almennilega?
Þá getið þið í Samfylkingunni lagst af fullum þunga á bak við baráttumál ykkar, Icesave ánauðina, þjóðnýtingu kvótans og ESB inngönguna sem meirihluti þjóðarinnar er andvígur.
Þið getið þá fært rök fyrir ykkar máli og sett framtíð ykkar að veði fyrir málstað ykkar.
Er það ekki hámark lýðræðisins að þið standið á bak við málflutning ykkar og leggið sjálf ykkur að veði?
Svör óskast.
HÞB // 25.1 2010 kl. 14:52
Þarna ertu lausnamiðuð, skapandi og jákvæð.
Ég er á því að það eigi að nota allar alþingiskosningar og sveitastjórnarkosningar til þess að mæla vilja þjóðarinnar á ýmsum sviðum.
Þó svo að ekki sé um að ræða staðfestingu á lögum eða að um málskot sé að ræða.
Mér dettur í hug:
Mælingu á afstöðu fólks til flugvallarins í Vatnsmýri.
Hugmynd um að leggja forsetaembættið niður
Hugmyndir um persónukjör
Mæla afstöðu þjóðarinnar til ESB
Mæla afstöðu þjóðarinnar til aðskilnaðar ríkis og kirkju
Staðsetning Landspítala Háskólasjúkrahúss.
Og svo auðvitað um kvótakerfið og margt fleira
Ég tel að með þessu vinnulagi mun öll umræða verða afslappaðri og opnari.
T.d staðsetning LSH er tekin eftir umræðu í einhverjum lokuðum fundarherbergjum víðsvegar um borgina.
Ef fyrir lægi að kjósendur ættu að tjá vilja sinn mundu fosendurnar vera uppi á borðum og öllum aðgengilegar.
Ef spurningarnar væru margar og þetta væri vinnulag sem væri reglan frekar en undantekning mundi fólk líta á þetta sem sjálfsagðann hlut og kjósa um þau mál sem því finnst skifta máli og það hefur kynnt sér. Í öðrum málum mundi fólk skila auðu.
Svo vil ég að lokum lýsa óánægju mína með stjórnmálaöflin í landinu. Hér ríkir ekki lýðræði heldur flokksræði. Það er sorgleg staðreynd.
orn // 25.1 2010 kl. 15:02
í sjálfu sér ekki vitlaust hugmynd. Er sjálfur þeirrar skoðunar að við eigum að nýta kosningar betur en hefur verið gert. Hinsvegar er þjóðin að liðast í sundur vegna efnahagshruns og deilna um Icesave. Ég hreinlegast efast um að hægt sé að leggja meira á þessa litlu þjóð að sinni. Spurning hvort ætti að nýta tímann, undirbúa vel og athuga þetta fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Ég er hræddur um ef þetta ætti að fara saman 6. mars og bæði málin til kynningar og umræðna á þessum stutta tíma færi allt hér í bál og brand.
En…hugmyndin fín.
Einn upplýstur // 25.1 2010 kl. 15:03
Fyndið þessi vinkill um að spyrja þjóðina. Stórfyndinn.
Ólína, það hefur enginn, ekki einn einasti, aðili sem sér ranglætið í kvótkerfinu, komið fram með óumdeilda og sniðuga en um leið réttláta leið.
Þannig að ef þú vilt afnema kvótakerfið í núverandi mynd, þá er engin framtíðarmynd komin heldur.
Þannig að ef þú vilt spyrja þjóðina, í Guðanna bænum ættu þessu tilfinningaklámi og komdu fram með vitræana og réttláta lausn sem á að koma í staðinn. Án þess er það ekki þess virði að fara út í slíka vegferð.
árni // 25.1 2010 kl. 15:29
góð hugmynd sem ætti endilega að framkvæma,ég skil ekki þessa hræðslu í mörgum að kanna vilja þjóðarinnar gagnvart kvótanum. spurningin þyrfti nú ekki að flækjast fyrir fólki. morgunblaðið heldur nú þegar uppi einhliða áróðri og þegar við heyrum friðrik j og grátkórinn tjá sig er valið nú orðið frekar auðvelt.
níels a. ársælsson // 25.1 2010 kl. 15:32
Þetta er einfallt.
Spyrjum.
1. Viltu óbreytt kerfi ?
Eða
Viltu þetta: http://kvotasvindl.blog.is/blog/kvotasvindl/video/7486/
HF // 25.1 2010 kl. 16:28
Þarf að spyrja þjóðina hvort hún vilji eiga kvótann sem hún með réttu á en alþingismenn stálu af henni?
siggi // 25.1 2010 kl. 16:36
Skulum ekki gleyma hvaða alþingismenn stálu kvótanum ef þjóðinni…
eigum við ekki bara að kjósa líka um það að hirða lönd af bændum !!
arni // 25.1 2010 kl. 16:46
siggi, það er búið að hirða lönd af bændum,svokallaðar þjóðlendur????????
Valur B (áður Valsól) // 25.1 2010 kl. 16:49
Nú skjálfa Sjálfstæðismenn, því þeir ættu í verulegum vanda með að vinna á móti slíkri þjóðaratkvæðagreiðslu.Það er ekki svo lítið búið að emja og segja að fólkið eigi að ráð.
joi // 25.1 2010 kl. 16:55
Það á ekki að kjósa um fiskveiðikvótann eingöngu, heldur auðlindirnar í heild sinni. þ.m.t. hvort álfyrirtækin eigi að borga fyrir gróðurhúsalosun, hvort ferðaþjónustuaðilar eigi að geta nýtt sér náttúruperlur, sem að eru miklar auðlindir, án þess að greiða fyrir það sérstaklega o.s.frv. þetta er grundvallarspuring sem Ólína ætlar að demba í þjóðaratkvæðagreeiðslu, sem „by the way“ hún greiddi atkvæði gegn að yrði haldin bara fyrir nokkrum vikum síðan!!!!!!
Finnur // 25.1 2010 kl. 17:51
Batnandi mönnum er best að lifa samnýtum kjörseðil.T.d Kvóta,EU umsókn ,Persónukjör til þings ,síðan þingkjörna dómara ,seðlabankastjóra,fjármál eftilit og fl. Láta menn sverja eiða við embættistökur Nógu af að taka byrjum hratt og örugglega á hreinsunum og atvinnusköpun
Sigmundur Guðmundsson stærðfræðingur // 25.1 2010 kl. 19:10
Núverandi varaformaður SjálfstæðisFLokksins heitir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir.
Hvað segir þetta okkur um FLokkinn ?
Hvað segir þetta okkur um þjóðfélagið ?
Er hugsanlegt að ástandið sé ekki alveg heilbrigt ?
vilhjálmur // 25.1 2010 kl. 19:58
Mega Hóteleigendur og þeir sem reka Gistihús í Vestmanneyjum eiga Kvóta?Hvað veldur því?Ólína getur þú svarað því?Hverjum er Samfylkingin að hlífa?
joi // 25.1 2010 kl. 21:16
Ólína var í viðtali á Bylgjunni áðan. þar útskýrði hún þessa atkvæðagreiðslu. Bara spyrja um þetta. Útfærslan væri svo lögfræðilegt atriði sem ætti bara eftir að útfæra.
Kannast einhver við þetta? Icesave málið hljómaði nú eins þegar kjánarnir voru sendir út að senda, sem er svo búið að taka ár að ræða „lögfræðilega“ þáttinn.
Hrafn Arnarson // 25.1 2010 kl. 21:52
Þetta er fráleit hugmynd. Hún gerir málskotsrétt forseta að engu. Af hverju ekki að kjósa um kvótann, inngöngu í EB , afnám krónunnar, breyingar á stjórnarskrá; allt í einum pakka og miklu ódýrara! Eða nú vill flokksræðið gera allt sem það getur til að þjóðin fáiekki að kjósa. Eru flokkarnir bara fylgjandi lýðræðinu þegar það kemur sér vel fyrir þáhvern og einn?
Viðar Ingvason // 25.1 2010 kl. 22:11
Auðvita á að kjósa um kvótamálið, láta þjóðina velja á milli tveggja leiða.
Á að fara fyrningarleiðina eða á að taka allan kvótann til ríkissins fyrir næsta fiskveiðiár?
Þráinn E. // 25.1 2010 kl. 22:46
Ólína!!
Þetta kjaftæði er svo ótrúlegt að það nær ekki nokkuri átt, kvótakerfið var sétt á til þess að sporna við ofveiði í Íslenskri lögsögu. Nú er verið að tala um fyrningarleið í kerfi sem menn hafa unnið með síðan 1985 eða í 25 ár þar hafa menn verið skertir og skertir um kvóta, því hafa menn keypt sér heimildir eða (veiði rétt) til þess að halda lífi og að auka starfsöryggi sitt.Ég er ekki viss um að almenningur geri sér grein fyrir því hvað er í húfi (þetta er kvóti sem menn fengu gefins ) hugsar fólk, en rúmlega 93% af honum hefur gengið kaupum og sölum. Það glymur hæst í tómri tunnu háværustu raddirnar um fyrningaleið er hjá þeim sem hafa selt sig úr kerfinu og vilja inn aftur,skoðið þið hverjir eiga þessa kvótalausu báta sem liggja í höfnum landsins,ég er nokkuð viss um að 93 % af eigendum þeirra hafa selt sína heimildir,svo bíða menn eins og gráir kettir eftir því að geta komist inn aftur til þess að verða „ríkir“ uppá nýtt kannski sóuðu þeir sínu féi bara í vitleysu. Svo eiga menn sem eru búnir að einbeita sér að sínu og skapa vinnu að svíða. Svo til að bæta gráu ofaná svart þá er verið að hækka vexti á lánum hjá sjávarútvegsfyrirtækjunum,svo það hlítur að vera bjart hjá þessum mönnum ofanálag að taka af þeim heimildir.Það er talað um þetta eins og þetta hafi ekkert tilfinningarlegtgildi fyrir menn sumir hafa veðsétt allt sem þeir eiga til þess að komast inn og það hefur gengið hjá þeim,eru kannski með sterka einingu í dag svo á að afhausa menn.
Ég er ekki viss um að einhver sé tilbúin í það að borga af íbúðarláni sem hann hefur tekið til þess að kaupa sér íbúð,svo verður íbúðin tekina af viðkomandi og hann þarf að borga af láninu og leigja hana . HVAÐA RUGL ER ÞETTA.
Hólmfríður Bjarnadóttir // 26.1 2010 kl. 00:34
Það fer ekki á milli mála að það er ekki skoðanalaust fólk sem skrifar hér athugasemdir.
Mér finnst þessi hugmynd þín frábær Ólína og fylgdu henni endilega eftir. Styð þig heilshugar og er enn meira glöð með atkvæðið mitt sl vor.
Kv HB
ps. Þá fer nú að verða gott að gera í móunum.
siggi // 26.1 2010 kl. 03:08
Frábært komment Þráinn
joi // 26.1 2010 kl. 09:40
Ólína og flokkur hennar ætlar ekki einasta að sleppa því að kjósa um fleiri mál en Icesave í mars, heldur bendir flest til þess að ekki eigi heldur að kjósa um Icesave. Hvernig ætlar Ólína að svara svona uppákomum? Hún vill láta kjósa um fleiri mál samhliða Icesave, en á sömu stundu og hún segir þetta, er flokkurinn hennar að makka um að kjósa ekki um Icesave!!!!!
baldur // 26.1 2010 kl. 12:18
Mér finnst vert að skoða hverjir það eru sem eru að leggja fast að Samfylkingunni að fara þessa leið, eru það kannski útrásarvíkingarnir sem fengu auð sinn í gegnum sölu á kvóta, glutruðu honum svo niður og nota svo þennan flokk skoðana-umpólara til að smokra sér aftur inn í kerfið og fá þannig úthlutuðum verðmætum, ókeypis, upp á nýtt?
„Follow the money“ segir máltækið á ensku, og það væri mjög fróðlegt að vita hverra erindi Ólína gengur í þessu máli.
Aðalsteinn Egill Traustason // 26.1 2010 kl. 14:15
Jahérna! Hvað kemur það málinu við hvort manneskjan hafi greitt atkvæði með eða á móti þessari þjóðaratkvæðagreiðslu? Hérna er komin hugmynd eftir þær kosningar og koma þeim ekkert við… því fór sem fór og við vitum hvernig hún fór og hvað forsetinn gerði í kjölfarið. En þetta er frábær hugmynd sem Ólína kemur með. Fylgjum henni eftir!
Rita ummæli