Ólína Þorvarðardóttir

blogg á eyjan.is

Mín fyrsta ræða á Norðurlandaráðsþingi

28.10 2009 | 14:31 | 5 ummæli

Við í forsætisnefnd Vestnorræna ráðsins skiptum með okkur orðinu á Norðurlandaráðsþinginu sem nú stendur yfir.

Ég hélt mína fyrstu ræðu á þessum vettvangi í morgun. Það kom í minn hlut að tala um þemaráðstefnu þá sem haldin verður um fiskveiðistjórnunarkerfi Vestnorrænu landanna næsta ár. Fiskveiðistjórnunarkerfi landanna þriggja eru ólík. Færeyingar eru með sóknardagakerfi – svokallaða fiskidaga – Grænlendingar hafa kvótakerfi eins og við. Öll löndin standa frammi fyrir ákveðnum vandamálum varðandi fiskveiðistjórnun sína – bæði vegna verndunarsjónarmiða og arðsemissjónarmiða. Það er því til mikils að vinna að leiða saman helstu sérfræðinga á þessu sviði ásamt stjórnmálamönnum til þess að fara vel yfir kosti og galla fiskveiðistjórnunarinnar í löndunum þremur.

Síðari ræða mín fjallaði um samstarf og þróun á norðurskauti jarðar – þörfina fyrir friðsamlegt samstarf milli heimskautslandanna. Á hafsbotni norðurheimskautsins eru miklar auðlindir sem aðliggjandi lönd gera öll tilkall til, Kanadamenn, Rússar, Bandaríkjamenn, Danir (fyrir hönd Grænlendinga) og Norðmenn. Öll eru þessi lönd herveldi og sum þeirra hafa gefið í skyn að þau væru tilbúin að verja hagsmuni sína með hvervaldi (Rússland, Kananda og Bandaríkin). Það er því mikið í húfi að stuðla að friðsamlegum samskiptum milli þeirra landa sem eiga hagsmuna að gæta gagnvart norðurskautinu, og beina athyglinni að verkefnum sem til friðar horfa. Þá nefni ég til dæmis öryggi sjósiglinga og björgunarviðbúnað í kjölfar aukinna pólsiglinga sem leiðir af bráðnun heimskautaíssins.

Við Íslendingar þurfum að fylgjast vel með þessari þróun, og halda vöku okkar, því við gætum sjálf átt umtalsverðra hagsmuna að gæta, þó ekki væri nema vegna aukinna pólsiglinga. 

Á morgun mun ég fjalla um menntamál á Vestur-Norðurlöndum, einkum fjarkennslu, málefni ófaglærðra og aðgerðir gegn brottfalli. Nánar um það síðar.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag | Facebook



Ummæli (5)

  •   Sjalli // 28.10 2009 kl. 15:13

    Norðurlandaráðsþing eru sóun á tíma og peningum. Punktur.

  •   Sigurður #1 // 28.10 2009 kl. 15:50

    Hvað eruð þið eiginlega mörg þarna úti??

    Og til hvers?

    Þegar tveggja daga ferð (ein nótt) kostar mörg hundruð þúsund, hvað kostar þetta þá?

    Er það þitt mat að þetta sé skynsamleg ráðstöfun skattpeninga?

    Ertu viss um að þessir peningar myndu ekki nýtast betur annarsstaðar….?

  •   Gísli // 28.10 2009 kl. 16:38

    Hvað kostar það okkur skattgreiðendur að „SENDA“ ykkur á Norðurlandaráðsþing??
    Væri ekki nær að nota skattpeningana OKKAR í eitthvað annað t.d. til fjölskyldna sem þurfa á því að halda

  •   Ólína Þorvarðardóttir // 28.10 2009 kl. 16:44

    Ef við höfum einhverntíma þurft á góðu Norðurlandasamstarfi að halda, þá er það núna – góðir menn.

    Hættið svo að ráðast á þessa vesalings bloggsíðu mína með eilífu skítkasti. Ég er eiginlega búin að fá alveg nóg af ykkur.

  •   Gísli Baldvinsson // 28.10 2009 kl. 20:56

    Svaka „jákvæð“ koomment eða hvað. Bið að heilsa og bíð sérlega spenntur vegna brottfallskaflans.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):