Svínaflensan er nú auglýst grimmt sem hvert annað gróðatækifæri eins og sjá má hér. The swine flu pandemic is one of the most profitable opportunities ever encountered by healthcare sector segir á vefsíðu „Swine Flu Company“ sem m.a. er tengd inn á fréttavef BBC.
Þessi glaðhlakkalegu gróðaloforð minna mann á það að framleiðsla á bóluefnum er auðvitað bara bissniss - rétt eins og öll lyfjaframleiðsla. Hin göfugu markmið um að lækna fólk og hindra útbreiðslu sjúkdóma eru eitt - að kunna til verka og geta framleitt það sem til þarf er annað. Á hið síðarnefnda er settur verðmiði, og hann getur stundum orðið dýr. Misferli og alvarleg vörusvikamál hafa komið upp hjá lyfjafyrirtækjum víðsvegar um heim sem sanna að í þessum bransa er ekkert heilagra en annarsstaðar.
BBC er líka með frétt í dag sem sýnir að í heilbrigðisgeiranum er heldur ekki allt með felldu. Nú er fullyrt að Þjóðverjar séu að bólusetja pólitíkusa og hermenn með annars konar bóluefni en almenning. Tilgangurinn er að forða þeim fyrrnefndu frá þeim aukaverkunum sem sagt er að fylgi ódýrara bóluefninu. Það er þó talið nógu gott fyrir sauðsvartan almúgann. >:(
Nú rísa hárin aftan á hnakkanum … ég hélt í sakleysi mínu að viðhorf af þessu tagi heyrðu sögunni til. En kannski breytist mannkynið aldrei.
Ólína Þorvarðardóttir
Ummæli (20)
Þórarinn Einarsson // 26.10 2009 kl. 10:37
Ja hérna Ólína! Gott hjá þér að vekja athygli á þessu. Loksins erum við sammála um eitthvað. Ég reikna með að það hvarfli að þér að afþakka sprautuna sem vissulega inniheldur ýmis vafasöm efni.
Nú þegar hafa hrúgast inn kvartanir vegna aukaverkana af svínaflensubóluefnum, einnig hefur verið tilkynnt um dauðsföll af þeirra völdum. Þá hefur læknum í Svíþjóð verið að bannað að tjá sig um efasemdir sem þeir hafa um þessar bólusetningar.
Það er afar dapurlegt hvernig læknar hafa farið í nokkurskonar trúboð þar sem þeir reyna að sannfæra almenning að bóluefni séu örugg og öll gagnrýni séu bara hræðsluáróður frá nýaldarblómálfum.
Viðvaranir gegn bólusetningum, sérstaklega gegn svínaflensum hafa komið frá læknum og öðrum heilbrigðismenntuðu fólki.
En lyfjafyrirtækin munu græða mikið og eru búin að tryggja sig gegn málaferlum vegna alvarlegra aukaverkana. Þetta eru glæpafyrirtæki og dapurlegt hvað heilbrigðisyfirvöld eru meðvirk í þessum „eiturefnahernaði“ gegn almenningi.
Hörður Tómasson // 26.10 2009 kl. 10:48
Égernúbarasvoaldeilishissa!!! Góður pistill, mjög góður pistill. 100% sammála.
Dísa // 26.10 2009 kl. 11:51
Vil benda á þetta úr bandaríska fréttaþættinum 60 minutes um „svínaflensu“ og bóluefni.
http://loveforlife.com.au/content/09/09/14/video-swine-flu-1976-propaganda-devastation-victims-who-took-shots-back-1976-warnin
rhj // 26.10 2009 kl. 15:48
Buin að vinna það mikið áður i heilbrigðisgeiranum , og siðar sjuklingur , að ekkert kemur mer á óvart i þessum efnum , Læknastettin er ekki heilög , en Lyfjafræðingar verri !! , Og það sem þú talar her um ,er á baki Lyfjafræðinga þvi læknar fara eftir þeirra ráðum ,þar sem fæstir lækna eru lyflæknislærðir O g siðan semja lyfjafyrirtækin i flestum föllum við lækna að ávisa á þetta lyfið eða hitt Af þvi skýrist m.a. okkar háa lyfjaverð her á landi , sem er þó skánandi , siðan stjórnvöld fóru að láta til sin taka og hafa eftirlit i þeim efnum , en ættu að hafa meira aðhald . þvi það er spilling i lyfjageiranum sem öðrum !!!!! Eg vil helst ekki lata klina lyfjaverði á læknana ,eða lyfja eitthvað , nema ju þeir fá alltaf vissa prósentu af þvi sem þeir ávisa , frá lyfjafræðingnum En eg tel i flestum föllum fari þeir að ráðum lyfjafræðinga !!
Margrét // 26.10 2009 kl. 22:11
Fyrirgefðu Ólína en þú veist að það er ábyrgð að kasta slíku fram verandi í þínu starfi. Hvað heldur þú um alla þá aðstandendur sjúklinganna sem berjast við flensuna upp á gjörgæslu segja við þessum yfirlýsingum þínum? Heldurðu VIRKILEGA að sóttvarnarlæknir myndi kaupa inn svona mikið af bóluefnum og tamiflu fyrir okkar skattpeninga ef ástæða væri ekki fyrir því?? Það er bara algjör firra!!! Þetta bóluefni er búið að vera rannsakað á 50-60þús manns í mörg herrans ár, þetta er upphaflega bóluefnið við fuglaflensunni en er betur umbætt. Það er virkileg að vera kona í þínu starfi, fólk hlustar frekar á þig, þú er áberandi o.s.frv. – að þú skulir finna þig knúna til þess að tala um þetta mál án fullnægjandi gagna og heimilda finnst mér ótrúlegt. Ef vinnubrögðin eru svona illa unnin á Alþingi…guð almáttugur hjálpi okkur þá kæra Ólína!
Margrét // 26.10 2009 kl. 22:13
p.s. ég vona að fólk taki ekki mark á þessum pistli þínum og leiti sér frekar leiðbeininga og ráða hjá fagmanni.
Margrét // 26.10 2009 kl. 22:13
p.p.s. sem þú ert greinilega ekki!
aRNAR hELGI // 26.10 2009 kl. 22:44
Læt aldrei sprauta mig með þessu eitri.
Ólína Þorvarðardóttir // 26.10 2009 kl. 23:12
Margrét – í þessum pistli er ekki minnst einu orði á Landlæknisembættið, lyfjaeftirlitið eða Alþingi Íslendinga.
Þú ert að tjá þig um eigin hugrenningar og hugrenningatengsl, en ekki pistilinn minn.
Jón Valur Valsson // 26.10 2009 kl. 23:46
Það er alveg ótrúlegt að það skuli vera byrjað að stunda hræðsluáróður á Íslandi, ég hélt nú að Íslendingar væru betur mentaðir en svo að vera að taka mark á gróusögum af barnalandi.
Jón Valur Valsson // 26.10 2009 kl. 23:56
Og að þú skulir taka mark á heimasíðu þar sem ekkert kemur framm um hver er bakvið hana!
Mér sýnist þetta helst vera svikamilla, Þú ert að hvetja fólk til að taka ekki inn bóluefni, hvað ef einhver fylgir ráðum þínum og fær mjög slæma lungnabólgu í staðinn 1 á móti þúsund lýkur á smá einkennum af bólusetningu.
Grágarpur // 26.10 2009 kl. 23:59
„Nú rísa hárin aftan á hnakkanum …“
Já ég sé það á myndinni þinni hér á síðunni.
Jón Valur Valsson // 27.10 2009 kl. 00:00
Og hvernig þú svarar athugasemdum Margrétar. ,,Þú ert að tjá þig um eigin hugrenningar og hugrenningatengsl, en ekki pistilinn minn“ Hún er víst að skrifa um pistilinn þinn og þú svarar til baka með því málefnalega svari að hún sé að ýminda sér þetta.
hreynt út sagt ótrúlegt
Páll J. // 27.10 2009 kl. 02:45
Nú detta mér allar dauðar lýs úr höfði… Ég er gjörsamlega, algjörlega 100% sammála Jóni Val Jenssyni, í fyrsta skipti held ég.
Í bóluefninu sem almenningur í Þýskalandi fær eru efni til að auka virkni þess svo hægt sé að drýgja það og bólusetja fleiri. Af þeirri ástæðu mælir WHO með notkun þeirrar týpu fremur en týpunnar sem stjórnmálamenn fá.
Þetta var klaufalegt hjá Þjóðverjum en engin ástæða til að gera meira úr því en raunin er.
Eydís Hentze // 27.10 2009 kl. 08:24
Langar að benda á nýtt hneyksli í bólsetningamálum, Gardasil sem er gefið sem vörn við leghálskrabbameini:
http://thebulletin.us/articles/2009/10/25/top_stories/doc4ae4b76d07e16766677720.txt
Þórdís // 27.10 2009 kl. 09:22
Svínaflensan er pjúra markaðssetning og auglýsingaherferð, allar flensur geta valdið lungnabólgu þar sem flensuvírusar leggjast á öndurfæri manna (og svína). Sé ónæmiskerfið veikt (veikburða einstaklingar) eru meiri líkur á lungnabólgu. Það er alltaf fólk sem fer á gjörgæslu og alltaf einhverjir sem deyja af völdum flensu, því miður. Ólína er að vekja athygli á því að bissnessmen svífast einskis til að græða peninga. Þetta er undirstöðu atriði í auglýsingafræðum. Búið til eftirspurn. Í þessu tilfelli; gerið fólk hrætt, skýrið veikina skrítnu nafni og auglýsið síðan lausn á „vandamálinu“. Sýnið mikið af myndum af fólki með grímur fyrir andliti og sprautur í handleggnum, það eykur söluna! $$$$$
Magga // 27.10 2009 kl. 10:05
Þú ert að gefa í skin að við séum plötuð í bólusetningar af lyfjafyrirtækjum !!. …viltu gjöra svo vel að upplýsa mig betur. Er þessi flensa alveg saklaus, er engin hætta á ferðum?
Eydis // 27.10 2009 kl. 12:00
Magga, má ég t.d. benda þér á hlekkinn sem ég setti hérna inn? Þetta er grafalvarlegt mál.
Erna // 27.10 2009 kl. 23:39
Er ekki í lagi með alla hérna?
Ólína er ekki að hvetja neinn til neins. Hún er bara að varpa ljósi á eina hlið svínaflensunnar. Þ.e. að fjárfestingafyrirtæki sem kallar sig „Swine Flu Company“ er að auglýsa flensuna sem fjáfestingatækifæri.
Þetta með bólusetninguna í Þýskalandi er ekki uppfinning Ólínu. Þett er heimsfrétt sem BBC hefur tekið upp.
Okkur kemur þetta við.
Það er naumast.
Páll Jónsson // 1.11 2009 kl. 15:55
Eydís: Hlekkurinn sem þú settir hérna inn er nær alveg ómarktækur.
Joan Robinson er rugludallur, Population Research Institute eru ruglsamtök og tölfræðin er hlægilega barnaleg: „Apparently, conventional treatment and preventative measures are already cutting the cervical cancer rate by four percent a year. At this rate, in 60 years, there will be a 91.4 percent decline just with current treatment.“
Var ekki hægt að finna einhvern enn vanhæfari til að túlka orð læknisins? Kannski talsmann Vísindakirkjunnar?
Skammastu þín fyrir að bjóða okkur upp á þetta.
Rita ummæli