Ólína Þorvarðardóttir

blogg á eyjan.is

Aðgerðir skila árangri

29.9 2009 | 15:19 | 7 ummæli

Síðustu daga hafa menn verið að rifja upp aðdraganda hrunsins og það sem gerst hefur á því eina ári sem síðan er liðið. Sérfræðingar hafa margir hverjir lýst því – sem kemur ýmsum á óvart - að staðan í dag sé betri hér á Íslandi en menn bjuggust við fyrir ári síðan. Þetta kom m.a. fram hjá Þórólfi Matthíassyni hagfræðingi  og Jóni Ólafssyni, vatnsútflytjanda í útvarpinu í morgun.

Það var tími til kominn að menn kæmu því að í umræðunni að eitthvað hefði áunnist undanfarin misseri. Staðreyndin er sú að á undanförnum átta mánuðum hefur verið lyft Grettistökum – já, ég tala í fleirtölu - í því að koma íslensku efnahagslífi í samt lag á ný. 

Eitt Grettistakið sem vert er að nefna er endurreisn bankanna:

Hér hefur  verið byggt upp nýtt bankakerfi og öll hefðbundn fjármálastarfsemi tryggð fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Samhliða hefur verið gert samkomulag við fulltrúa erlendra kröfuhafa í Glitni og gamla Kaupþingi og þessir fulltrúar alþjóðlegs fjármálalífs gerðir að hagsmunaaðilum í endurreisn bankanna og íslensks efnahagslífs.

Endurfjármögnun Íslandsbanka og Kaupþings er í höfn og senn sér fyrir endann á endurskipulagningu sparisjóðanna og endurfjármögnun Landsbankans.

Kostnaður ríkisins af endurreisn bankanna verður mun minni en áætlað var. Í stað 385 milljarða gæti niðurstaðan orðið innan við 200 milljarðar króna og það eru fjármunir sem ekki eru tapaðir heldur eign íslensku þjóðarinnar í bönkunum. Fjármunir sem munu ávaxtast vel verði rétt á málum haldið.

Það er því útlit fyrir að ábyrgar aðgerðir ríkisstjórnarinnar, mikil aðlögunarhæfni hagkerfisins og einstakur baráttuandi þjóðarinnar muni þrátt fyrir allt takmarka samdrátt þjóðarframleiðslu í ár við ríflega 8 % í stað 10% eins og spáð var í lok síðasta árs.

 Þetta samsvarar 25-28 milljarða króna tekjuauka í þjóðarbúið miðað við spár og þar af 7-8 milljarða króna tekjum í ríkissjóð.

Atvinnuleysi hér var 7,7% í ágúst en er víða í Evrópu yfir 10% um þessar mundir. Þótt atvinnuleysi sé enn alltof mikið ber því þó að fagna að á fjórða þúsund manns fleiri en spáð var hafa haldið atvinnu hvað sem verða kann er líður á veturinn.

Þetta má m.a. þakka víðtækum aðgerðum eins og t.d.

  • Átaki til atvinnusköpunar sem hefur þegar skilað vel á þriðja þúsund beinum störfum auk fjölda afleiddra starfa.
  • Frjálsum strandveiðum sem færðu líf að nýju í hafnir landsins.
  • Framkvæmdum við tónlistar- og ráðstefnuhúsið sem eru í gangi.
  • Lögum um hlutabætur og bættu umhverfi atvinnuleysistryggingasjóðs og Lánasjóðs íslenskra námsmanna.
  • Flýtingu mannaflsfrekra framkvæmda til að tryggja næg verkefni í byggingariðnaði.
  • Íbúðalánasjóður hefur fengið meira fé til að lána til viðhaldsverkefna sem skapar störf.
  • Þorskkvótinn var aukinn til að örva verðmætasköpun.
  • Meira fé rennur nú til ferðamála en nokkru sinni fyrr. Það skapar störf og færir gjaldeyri inn í landið.
  • Nýsköpunarstarf hefur verið eflt, frumkvöðlasetur sett á stofn og ákveðið að ívilna sprotafyrirtækjum, frumkvöðlastyrkir hafa verið teknir upp og brúarstyrkir eru veittir fyrir lengra komnar hugmyndir á sviði nýsköpunar.
  • Sérstakir öndvegisstyrkir verða veittir á sviði orkulíftækni og innlendrar eldsneytisframleiðslu, sjálfbærrar ferðamennsku og vistvænnar hönnunar og skiplags. Fyrirtæki geta nú ráðið til sín starfsfólk með styrk ríkisins, í starfsþjálfun, til reynslu í átaksverkefni og nýsköpun.
  • Til að laða til landsins gjaldeyri og atvinnu hefur endurgreiðsluhlutfall vegna kvikmyndagerðar verið hækkað úr 14 í 20%.

Jebb … það hefur ýmislegt verið gert. Og það sem meira er …. það er að hafa áhrif.

Flokkar: Óflokkað · Stjórnmál og samfélag | Facebook
Efnisorð: , ,



Ummæli (7)

  •   Maríanna Friðjónsdóttir // 29.9 2009 kl. 15:38

    Takk fyrir að flytja þig þangað sem maður getur haldið áfram að lesa skrifin þín.

  •   Sigurður Þórðarson // 29.9 2009 kl. 16:19

    Afsakaðu Ólína, gætirðu sundurgreint þessar 200 milljarða?

  •   Höskuldur Davíðsson // 29.9 2009 kl. 18:11

    Það er gott að vita að þú skulir vera komin til
    okkar hér á skerið. Það verður þá léttara fyrir
    okkur að hafa auga með þér og hrósa þér eða
    skamma, eftir atvikum.
    Velkomin Ólína.

  •   Magga maur // 29.9 2009 kl. 20:22

    Hvergi minnst á fjölskyldur í bráðavanda….?
    Það finnst mér spegla ykkur stjórnmálamenn og konur. Allt annað en það sem skiptir máli.
    Fólkið sem býr í þessu landi. (Ennþá)

  •   Guðbjörn Guðbjörnsson // 29.9 2009 kl. 20:32

    Sæl og blessuð! Hef einnig ákveðið mig að færa bloggið yfir á Eyjuna, sem á víst að komast á legginn á næstu dögum! Kveðja, Guðbjörn

  •   Haukur Nikulásson // 29.9 2009 kl. 20:48

    Það læðist að mér sá lúmski grunur að fjöldi manns hafi af sérdeilis dularfullum ástæðum haft ákveðið samráð um að flytja bloggið sitt á Eyjuna.is.

    Skyldi samkeppnisstofnunin vita af þessu frænka?

  •   Marta // 30.9 2009 kl. 10:58

    Innilega til lukku með nýja bloggið þitt Ólína. … og auðvitað komið í favorits :-)
    Marta

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):