Já, það er satt hjá Birgi Ármannssyni. Ég er sekur. Hinn 16. nóvember árið 2004 söng ég „Hani, krummi, hundur, svín“ í ræðustól alþingis.
Birgir opinberaði þetta óttalega leyndarmál í umræðu á þinginu í dag um fundarstjórn forseta. Forseta kom það kannski ekki mikið við, en þar með upplýstist að fleiri þingmenn en Árni Johnsen hefðu sungið í ræðustólnum.
Öfugt við Mister Johnsen var minn söngur ekki hluti af neinskonar málþófi heldur framlag til umræðu um nýjan þjóðsöng sem tveir varamenn Sjálfstæðisflokksins hófu, þau Sigríður Ingvarsdóttir og Hilmar Ingvarsson. Þetta var rætt í rólegheitum undir kvöld á fimmtudegi minnir mig, og mitt framlag var reyndar fullkomlega málefnalegt þanniglagað – að þjóðsöngur þyrfti helst að vera sönghæfur en þegar menn voru á alþjóðasamkomu að syngja þjóðsöngva sína hefði landi okkar eitt sinn lent í vandræðum með Guðsvorslansinn og leyst úr þeim með þjóðlegum hætti:
Hani, krummi, hundur, svín,
hestur, mús, tittlingur,
galar, krunkar, geltir, hrín
gneggjar, tístir, syngur.
Nú, þegar þetta er upplýst og játning liggur fyrir – mætti þá ef til vill fara að hætta að tefja afgreiðslu frumvarps sem meirihluti þingsins og meirihluti almennings styðja um þjóðareign á auðlindunum, stjórnlagaþing og þjóðaratkvæðagreiðslur?


5 ummæli
6.4 2009 kl. 17:50
Gísli Baldvinsson
Þú ert þá með staðfest fyrsta söng í stól Alþingis. Þetta þurfum við karlakórsmenn að hafa á hreinu! kv gb
6.4 2009 kl. 18:07
PMG
Það ætti að vera skylda að syngja allt sem úr ræðustól Alþingis fer. Jafnvel margraddað.
6.4 2009 kl. 18:24
Kristleifur Daðason
Hér til vinstri, í „Nýlegum færslum“, stendur þetta:
* Hani, krummi, hundur, svín
* Hvað nú, Þorgerður Katrín?
6.4 2009 kl. 20:19
vilhjálmur
Mörður…Er ekki hægt að þagga niður í eittskyfti fyrir öll þarna á þingi í Sigurði Kára og Birgi Ármannsyni?
7.4 2009 kl. 04:40
raggixx
Thetta er svakalega fyndid ad thad skuli vera sungid á Athingi. En er thessi stofnun til thess gerd? Er thetta framlag til lýdraedis? Eru spurningar um thad af hverju Althingi er ekki tekid alfarlega og fólk hefur ekki mikla trú ad fúlltrúum sínum?
Thegar Althingi er ordid ad svidi fyrir söngvara, er tími tkominn ad segja „góda nótt Ísland“.
Takk fyrir sönginn.