María Kristjánsdóttir

blogg á eyjan.is

Væru ESB-sinnar Hafnfirðingar…

14.6 2010 | 13:53 | 17 ummæli

Væru  ESB sinnar Hafnfirðingar  gætu þeir ekki einu sinni þar í bæ knúið fram atkvæðagreiðslu um inngöngu i sambandið. Þar þarf undirskrift  25 % bæjarbúa til þess að ná fram atkvæðagreiðslu um stórmál. Skoðunarkönnun MMR leiðir hins vegar í ljós að  aðeins 24 % Íslendinga eru fylgjandi því að haldið sé áfram viðræðum við ESB.  Viðbrögð ESB sinna  við niðurstöðu hennar er bræði  og svo er auðvitað ráðist að persónum með uppnefnum og skítkasti.  Það er í meira lagi undarlegt að í lýðræðisþjóðfélagi skuli algjör minnihluti, með vond rök, telja sig hafa leyfi til að ráðskast svona með þjóðina.  -Æ, ég gleymdi því, þjóð er bannorð hjá ESB-sinnum! Af hverju ætli það sé?

Flokkar: Óflokkað



Ummæli (17)

  •   Hlynur // 14.6 2010 kl. 15:20

    Sæl.
    Þjóð er ekki bannorð hjá ESB-sinnum, alls ekki. Ég veit ekki betur en að slagorð helstu já-hreyfingarinnar sé einmitt „Þjóð meðal þjóða“.

    Vera má að sumir stuðningsmenn ESBaðildar beiti uppnefnum, þó ég hafi ekki séð það sjálfur. Langflestir þeirra halda sig málefnaleg rök með aðild og á það hefur verið lögð rík áhersla. Það er öfugt við marga andstæðinga ESB, sbr. nýlega auglýsingu ungbænda, að ógleymdum útúrsnúningum sem víða sjást.

  •   María Kristjánsdóttir // 14.6 2010 kl. 15:32

    Hlynur, Lestu blogg þessa ágæta manns Jóhanns Haukssonar á dv. í dag. Sömuleiðis Ólaf á Pressunni. Eiríkur Jónsson staðhæfir sömuleiðis á dv: fólk er fífl.

  •   Gunnar Gunnarsson // 14.6 2010 kl. 18:22

    María, íslenskir valdamenn hafa farið með fjármál þjóðarinnar einsog óvitar, komið auðlindum og öllum arði í eigin vasa, lækka skatta á ofurlaun, skammta sér bónusa sem almenningur gæti ekki unnið fyrir á starfsævinni, verðbólga, gengisfellingar og rugl. Í Esb nágrannalöndum okkar er þessu öfugt farið. Þar er verðlag stöðugt, þú greiðir niður lánið þitt osfrv. Nú erum við að sækja um aðild og kjósum svo um samninginn. Ef hann reynist okkur óhagstæður þá fellum við hann. Ef við hins vegar drögum umsóknina til baka, þá verður Esb málið endalaust þras og leiðindi. Vilt þú frekar hafa máli hér á Íslandi í sama fari og hefur verið okkar líf? Treystir þú íslensku krónunni og hennar stjórnendum betur en að vera í samstarfi með þróaðri þjóðum en okkur aumum. p.s. Ég hef búið í Danmörku og Svíþjóð og þekki muninn á því að geta treyst morgundeginum svo framalega sem hann rennur upp.

  •   Þórður Áskell Magnússon // 14.6 2010 kl. 18:23

    María, óttalega er þetta aumur og ómerkilegur málflutningur. Ég er hlynntur aðildarumsókn en geri mér grein fyrir því að sökum aðstæðna í evrópu og á íslandi er vart hægt að finna verri tíma til að sækja um. Á þeim grundvelli ættum við að draga umsókn okkar til baka vegna þess að það sem við erum að gera er ekki okkur til framdráttar. Allir viðsemjendur okkar gera sér einnig grein fyrir stöðunni og gerir það samningsstöðu okkar verri, þar sem nokkuð ljóst er að hvaða samningur sem er verður felldur eins og sakir standa. Í þeirri stöðu verður hugsandi fólk að endurmeta stöðuna og bíða eftir að hagstæðari vindar blási. Það virðist vera sem einangrunarsinnum hafi vaxið fiskur um hrygg og þjóðernissinnar blómstra sem aldrei fyrr.

    Spaugilegt/Hryggilegt í ljósi aðstöðunnar sem þjóðin kom sér sjálf í en staðreynd engu að síður.

    Hins vegar eru rök þín; „Æ, ég gleymdi því, þjóð er bannorð hjá ESB-sinnum! Af hverju ætli það sé?“ svo aum að þau gera þig aumkunarverða. Afhverju þarftu að fara niður á þetta plan til þess að finna hugsunum þínum stað?

  •   María Kristjánsdóttir // 14.6 2010 kl. 19:12

    Eins og þú sennilega veist, Gunnar, þá er ég andstæðingur þess að við göngum í ESB og er þeirrar skoðunar að Samfylkingin hafi stigið óskynsamlegt óheillaspor þegar hún fékk VG til að leggja inn umsókn núna. Við höfum nóg annað að starfa í þessu landi og lítið fé til að henda í aðildarumræðurnar. Einnig margt sem hindrar og truflar vitrænar umræður um ESB. Og með fullri virðingu fyrir smáum minnihlutahópum og millistéttinni í þessu landi, þá sé ég yfirleitt enga ástæðu til að vera troða þessu gæluverkefni SF niður í þjóðina. Ég hef líka verið löngum búsett í Svíþjóð og dvalið um lengri tíma víða um Evrópu. En ef við getum ekki ráðið við drekana í eigin landi þá verðum við varla upp á marga fiska frammi fyrir stórveldunum í Bruxelles.
    Þórður Áskell ég sé ekki að ég sé að fara niður á neitt sérstakt plan þegar ég tala um afstöðu ESB sinna til þjóðar og þjóðernis. Þegar margir þeirra gagnrýna andstæðinga sína þá – ef þeir kallar okkur ekki fífl eins og Eiríkur Jónsson – er það mjög oft ýmist fyrir einangrunarstefnu eða þjóðernishyggju. Enginn umræða hefur samt farið um það hvernig þessi hugtök eru notuð og beinlínis til dæmis tengjast hugmyndafræði alþjóðavæðingar . Það þyrfti að rannsaka það og ræða það. En ef þið viljið endilega klína orðaleppum eins og aumkunarverður og fífl á þá sem eru á öndverðri skoðun við ykkur, þá verður náttúrulega aldrei nein umræða.

  •   María Kristjánsdóttir // 14.6 2010 kl. 19:14

    óskynsamlegt, óheillaspor er nú kannski einum of fast að orði kveðið!

  •   Þórður Áskell Magnússon // 14.6 2010 kl. 19:26

    Það eru ekki mín orð að kalla nokkurn mann fífl þótt sumt sem kemur frá fólki geti vissulega verið fíflalegt. En hvernig heldur þú að það sé, heldur þú að frakkar telji sig ekki þjóð? En ítalir? Hvaða þjóð af evrópusambandsríkjum telur þú að telji sig ekki lengur þjóð? Ert þú meiri íslendingur en ég til dæmis og stærri hluti af menginu íslendingar vegna andstöðu þinnar við esb? Hverra orð eru það að esb sinnar séu á móti þjóðum eða þjóðríkjum? Svona talandi um orðaleppa. En í alvöru rökræðu er bæði ég og öruggleg fleiri alveg tilbúinn í, mér fannst ekkert sérstaklega boðið upp í svoleiðis með upphafsinnlegginu

  •   María Kristjánsdóttir // 14.6 2010 kl. 20:01

    Blogg mitt ,Þórður Áskell, var fyst og fremst viðbragð við viðbrögðum ESBsinna við skoðanakönnuninni. Svo er náttúrlega engin glóra af SF að vera troða þessu í gegn í andstöðu við þjóðina og samstarfsflokkinn.

  •   Benedikt // 14.6 2010 kl. 21:48

    Afstaða þjóðarinnar til ESB hefur sveiflast fram og til baka og auðvelt að fyllast einhverri þórðargleði núna þegar andstaðan gegn ESB er í hámarki og tala um „vond rök“ án raka. En er ekki rétt að fá að sjá kostina? Það er einmitt heimskulegt að hafna því að fá sjá á spilin. Það er tómt mál að tala um einhver rök með eða á móti án þess að sjá hvað er í boði. Þá vitum við hverju við erum að hafna, eða hvað við erum samþykkja.

  •   Benedikt // 14.6 2010 kl. 21:52

    Annars eru rök ESB-sinna ágætlega sett fram hér: http://www.sterkaraisland.is/á skýran og málefnalegan hátt. María getur kallað þau „vond“ ef henni sýnist, en þau standa óhögguð fyrir því.

  •   gunnur // 15.6 2010 kl. 08:15

    María, þetta fannst mér nú full smáborgaralega til orða tekið af sæmilega vel gefinni manneskju.

    Það er sjálfsagt að fara í aðildarumræður svo við vitum um hvað málið snýst – þá kemur í ljós hvort við getum sætt okkur við aðild.

    Ef ég treysti íslenskum stjórnvöldum (allra tíma) þá væri ég sjálfsagt alfarið á móti aðild, en síðan Davíð stjórnaði hér með ofríki og frekju hef ég snúist í afstöðu minni. Við erum stundum svo hrikalega útúrboruleg.

  •   María Kristjánsdóttir // 15.6 2010 kl. 10:07

    Smáborgaraleg er ég vafalaust,Gunnur, eins og allt þetta samfélag – en ég er ekki full þórðargleði, Benedikt. Mér finnst dapurlegt að við séum að nota tíma í ESB sem annars ætti að fara í að skoða innviði þessa samfélags og breyta því í grundvallaratriðum – .

  •   Benedikt // 15.6 2010 kl. 10:16

    Fyrirgefðu María, ég ætla þér ekki neitt illt og mjög oft er ég sammála þér.

    Ég er reyndar mjög sammála Gunni með að áhugi minn á ESB aðild er meðal annars til kominn vegna þess að ég treysti ekki íslenskum pólitíkusum. Davíð sýndi að það er hægt að kúga heila þjóð (að vísu litla), en það er fjandakornið ekki hægt að kúga tugi þjóða af fámennu valdi með svipuðum hætti og Davíð gerði á stundum.

    Svo hef ég trú að að við getum gert fleira en eitt í einu.

  •   María Kristjánsdóttir // 15.6 2010 kl. 10:27

    Benedikt,ég álít að herra og þjónn séu tvær hliðar á sama peningi -og sú spurning sem kallar mest á að vera svarað í dag sé: Hvers vegna urðu við svona góðir þjónar?

  •   María Kristjánsdóttir // 15.6 2010 kl. 11:18

    Þetta síðasta var skrifað með hraði- allt fullt af málvillum og vitleysum og biðst ég afsökunar á því. Mætti kannski vera svona:
    Benedikt, ég álit að herra og þjónn séu tvær hliðar á sama peningnum og spurningin sem kallar því á svar í dag sé : Hvers vegna var Davíð þjónað svona vel?

  •   Uni Gíslason // 16.6 2010 kl. 17:03

    Eins og þú sennilega veist, Gunnar, þá er ég andstæðingur þess að við göngum í ESB og er þeirrar skoðunar að Samfylkingin hafi stigið óskynsamlegt óheillaspor þegar hún fékk VG til að leggja inn umsókn núna.

    Það er enginn tími nema dagurinn í dag. Það hefur ekkert upp á sig að ýta hlutunum á undan sér, svo það meikar ekkert sens að núna sé verri tími en áður eða seinna að sækja um aðild að ESB.

    Viðbrögð ESB við umsókninni sýna einnig að tímasetningin var góð.

    Við höfum nóg annað að starfa í þessu landi og lítið fé til að henda í aðildarumræðurnar.

    Ekki meikar þetta mikið sens heldur, enda er alltaf nóg að gera í þessu landi. Á meðan fæst fólk í þetta og kostnaður er forsvaranlegur – þ.e. skapar störf, er ekki bruðlað með í lúxus etc. þá er þetta allt í góðu. Kostnaðurinn sjálfur í krónum talið er ekki mikill og má þá skera niður af þeim 10 milljörðum sem fara á ári til Bændasamtakanna ef upp á vantar. Þá yrði m.a.s. töluverður peningur afgangs!

    Einnig margt sem hindrar og truflar vitrænar umræður um ESB.

    Þetta er ansi hörð fullyrðing m.t.t. upphaflegs innleggs þíns efst á síðunni – sem er fullkomlega ómálefnaleg og varla vitræn. Það gengur ekki að kvarta yfir umræðunni á aðra hönd og stunda svo slappar umræður á hina, er það?

    Og með fullri virðingu fyrir smáum minnihlutahópum og millistéttinni í þessu landi, þá sé ég yfirleitt enga ástæðu til að vera troða þessu gæluverkefni SF niður í þjóðina.

    Gæluverkefni xS er þetta varla, og ómálefnalegt að tengja þetta alltaf við einhvern einn flokk. Það finnast aðildarsinnar í öllum flokkum og jafnvel Framsóknarflokkurinn ákvað það í flokkssamþykkt að skynsamlegt væri að sækja um aðild að ESB (að uppfylltum ákv. skilyrðum).

    Það er heldur enginn að troða nokkrum sköpuðum hlut upp á neinn þegar það er þjóðaratkvæðagreiðsla um málið. Afskaplega ómálefnaleg framsetning hjá þér.

    Ég hef líka verið löngum búsett í Svíþjóð og dvalið um lengri tíma víða um Evrópu. En ef við getum ekki ráðið við drekana í eigin landi þá verðum við varla upp á marga fiska frammi fyrir stórveldunum í Bruxelles.

    Iss, ég hef búið lengi í Svíþjóð og Noregi og einnig öðrum löndum Evrópu utan Íslands, en það hefur ekkert með þetta að gera. Ísland er Ísland og ræður ágætlega við þau verkefni sem það tekur að sér. Ekki skil ég hvaðan þessi minnimáttarkennd kemur, Íslendingar eiga margt afskaplega fært fólk.

    Það leynast engir drekar í útlöndum, hvaðþá hér. En það liggur á borðinu tregt og sérhlífið stjórnkerfi sem tók miklum og jákvæðum breytingum við aðild að EES. Ekki tel ég að þú vildir sjá íslenska stjórnsýslu eins og hún var fyrir 1994. Aum er hún nú, en þá var hún beinlínis á banana-plani.

    Umskipti þau sem hafa orðið í neytenda og atvinnumálum á Íslandi síðan EES eru ómetanleg.

    En þú vilt hafa meiri áhyggjur af Palestínuaröbum en framtíð Íslands og nútíð. Talandi um að troða gæluverkefnum ofan í aðra!

  •   Danial Sarault // 8.11 2010 kl. 22:04

    Useful reading. Thanks, finally a decent website with good information in it.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af sjö og fjórum? Svar: