María Kristjánsdóttir

blogg á eyjan.is

Björgvin G- til upplýsingar

18.3 2010 | 13:05 | 13 ummæli

sprengjurTil upplýsingar fyrir Björgvin G. og Kristján Möller:

Þetta er  hernaður:iraqfallujahhomeap-afghanistan2

→ 13 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Til hvers eru listamenn?

17.3 2010 | 18:43 | 11 ummæli

Nú rífa menn sig oní rass útaf starfsstyrkjum listamanna. Það gerist sama dag og Friðrik Sófusson,formaður bankaráðs Íslandsbanka(sem lýst hefur því yfir að hann hafi ekkert vit á bankamálum og  var einn af höfundum Kárahnjúkavirkjunar) hættir við að auglýsa  stöðu bankastjóra Íslandsbanka  og ræður áfram Birnu. Hin raunverulegu völd eru smátt og smátt að færast aftur í hendur hrunverja.  Þá er nú gott að eiga listamenn til  að fjargviðrast yfir!

→ 11 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Hvar er Geir Haarde?

17.3 2010 | 09:35 | 3 ummæli

Í Orðinu á götunni er bent á að á Morgunblaðinu vilji menn ekki lengur  bera ritstjórnarlega ábyrgð á moggablogginu. Þar hafi nú allt verið þurrkað burt sem tengist mbl.  Ég bara spyr : Er  svona  dramatísk  aðgerð nauðsynleg? Fari  einhver bloggarinn  yfir mörkin, geta ritstjórar  þá ekki bara eins og venjulega kennt Geir Haarde um?

→ 3 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Í fréttum er þetta helst

16.3 2010 | 10:37 | 5 ummæli

Fréttin á Vísi.is frá því í gær um að unnið sé að því að nútímavæða RÚV í menntamálaráðuneytinu er ekki fylgt eftir í blaðinu í dag.  Það er slæmt.

Katrín Jakobsdóttir skipaði skömmu eftir að hún tók við ráðherraembætti starfshóp til að skoða stöðu Ríkisútvarpsins. Sú nefnd skilaði tillögum í janúar. Það voru einkar kurteislega orðaðar tillögur en einn samfelldur áfellisdómur um starfsemina í Efstaleiti. Þessar kurteisu tillögur  komust aldrei í  umræðu. Þær drukknuðu í viðbrögðunum við ruddalegum uppsögnum og yfirlýsingum Páls Magnússonar um niðurskurð á innlendu,framleiddu efni í sjónvarpi.

Í stuttu máli þá lagði nefndin til að skoðuð verði breyting á rekstrarformi RÚV ohf, opinbera hlutafélagaformið henti ekki  almenningsútvarpi því það hafi ekki fjárhagslega arðsemi að leiðarljósi; breyta þurfi innra skipulagi það sé ólýðræðislegt og lúti einræðisvaldi eins manns; breyta þurfi ekki aðeins hæfniskröfum sem gerðar séu til stjórnar RÚV heldur einnig  því hlutverki þess að vera aðeins rekstrarstjórn, menn með faglega þekkingu og starfsmenn þurfi að koma þar inn; stofna þurfi fagráð almennings til menningarlegs stuðnings við yfirstjórn; tryggja þurfi fjárhagslegt sjálfstæði Ríkisútvarpsins svo því sé gert kleift að gera áætlanir fram í tímann.  Tryggja þurfi betur öryggi og réttindi starfsmanna.

Allt sem sagt sem  lýtur að ytra og innra skipulagi stofnunarinnar fékk því falleinkunn hjá starfshópnum.

Samkvæmt fréttinni á Vísi telur svo menntamálaráðuneytið þar að auki að : „Ef Ríkisútvarpið leggi ekki áherslu á nýtt og fjölbreytt efni fyrir nýjar miðlunarleiðir verið starfseminni sjálfhætt innan tíðar þegar núverandi notendur verða horfnir á braut.“

Hverjir núverandi notendur eru og hvenær þeir fara yfir móðuna miklu kemur ekki fram í fréttinni. En við vitum að ungt fólk horfir ekki almennt  á sjónvarp, það hefur það aldrei gert. Og eldra fólk sem á kost á breiðbandi eða ljósleiðara horfir fremur á evrópskar stöðvar en RÚV. Báðir hóparnir sækja í auknum mæli  helst fréttir á vefinn. Örfréttirnar sem fluttar eru á öllum rásum  allan liðlangan daginn hljóma orðið  líkt og endurtekið efni úr safni RÚV.

Hverjar hinar nýju miðlunarleiðir eru  sem RÚV ætti að taka upp er ekki greint frá. Og heldur ekki lykilatriðinu: Á ólýðræðislega stofnunarskrýmslið sem  menntamálaráðuneytið  bjó til fyrir nokkrum árum,  og áðurnefndur starfshópur gaf falleinkun, að framfylgja nýjum þjónustusamningi?

Þessi frétt er því eins og ótal aðrar í íslenskum fjölmiðlum allsendis ófullnægjandi.  Hún er bara  stikkorð úr upplýsingum sem berast aldrei til okkar.

→ 5 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Efsta stig lýsingarorða

15.3 2010 | 17:25 | 8 ummæli

„Áfrýjunarnefnd neytendamála hefur staðfest ákvörðun Neytendastofu að banna Hagkaupum að nota fjórar fullyrðingar þar sem efsta stig lýsingarorða er notað.“ segir á RÚV.is í dag.

Loksins  stíga fram almennilegir málverndunarsinnar. Gætu þeir ekki líka tekið að sér ráðgjöf hjá  fjölmiðlum og leikhúsum?

→ 8 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Capacent samfélagið

12.3 2010 | 12:27 | 10 ummæli

Merkilegar upplýsingar koma fram í dv í dag um að Capacent, helsta ráðningarskrifstofa ríkisfyrirtækja og stofnana, ráði sína eigin starfsmenn í stöður sem losna hjá ríkinu m.a. fyrir skömmu hjá Landsvirkjun.Það minnir á það að hún kemur einnig að málum hjá Ríkisútvarpinu. Og vaknar þá sú spurning hvort einhver starfsmanna hennar hafi sótt um stöðu svokallaðs „mannauðs“stjóra RÚV  eða  dagskrárstjóra innlends og erlends efnis sem var auglýst um daginn laust til umsóknar.

Ríkisútvarpið hefur nefnilega mjög vonda reynslu af afskiptum  einkafyrirtækja af rekstri þess. Þannig var það með fyrirtækið  VSO ráðgjöf – sem Björn Bjarnason setti inn í stofnunina til að endurskoða starfsemina og gekk sú endurskoðun og ráðgjöf undir nafninu „Betri rekstur“ og var fyrsta skref í áttina að því að oháeffa RÚV.  Endurskoðunin og ráðgjöfin endaði með því að starfsmaður VSO , Bjarni Guðmundsson, alls ómenntaður á sviði útvarpsrekstrar eða menningarstarfa en harður Sjálfstæðisflokksmaður var ráðinn til stofnunar sem yfirmaður erlends efnis. Síðan hefur hann verið fluttur í starf ráðgjafa útvarpsstjóra en arfleifð hans úr  fyrra starfi, ameríska iðnaðarframleiðslan,   þjakar enn  landmenn alla.

Að ráðgjöf Capacent geti einnig orðið varasöm á fleiri sviðum  bendir þessi leiðbeining til umsækjenda á vefsíðu þess:

Markaðssettu sjálfan þig

Það er ákveðið ferli að koma sér á framfæri á vinnumarkaði og má líkja því við markaðssetningu þar sem skráningin og ferilskráin eru markaðstækin.

Eða  er besti yfirmaður innlends og erlends menningarefnis endilega sá sem kann að markaðssetja sig? Og  hvers konar sýn er þetta  á manneskjuna?


→ 10 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Breytt blogg

11.3 2010 | 21:09 | 3 ummæli

Ég hef ákveðið að kippa út færslu minni  hér í kvöld um Ögmund af því að auðvitað neita Samfylkingarmenn að horfa í eigin barm og nota þá færslu til rangrar greiningar á samstarfi vinstriflokkanna. Ég bið þá vinsamlegast að lesa þess í stað pistilinn minn á Smugunni. Og gera svo athugasemdir. Nema þeir vilji endilega sem ég held að amk. sumir þeirra vilji ekki að þessi ríkisstjórn hallist algjörlega til hægri.

→ 3 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Draumalandsforsetinn

7.3 2010 | 23:38 | 26 ummæli

Í  sjónvarpsfréttum í kvöld  taldi forsetinn ástæðu til að hafa rangt við. Hann vildi leggja að jöfnu þjóðaratkvæðagreiðsluna um lýðveldisstofnun og þessa hina síðari sem fram fór í gær. Sagði báðar hafa haft  90% niðurstöðu. En gleymdi hins vegar að geta þess að þegar kosið var um lýðveldisstofnun mættu lángt yfir 90 %  kosningabærra manna   á kjörstað en í gær  62%.

Og hvað er hann segja þegar hann lýsir því yfir að kosningin hafi sýnt að þjóðin hafi sjálfstæðan vilja? Að þeir sem heima sátu hafi ekki sjálfstæðan vilja? Séu dusilmenni? Ég veit um marga sem ekki mættu vegna þess að kosningin var að frumkvæði forsetans. Þeir hljóta að hafa hlegið  kaldranalega þegar þeir horfðu á hann troða blýhólknum  í  hornstein Kárahnjúkavirkjunar  í Draumalandinu í kvöld.

→ 26 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Ekki almenningsútvarp heldur auglýsingaútvarp?

7.3 2010 | 11:56 | Rita ummæli

Ég ætlaði að reyna  að horfa á Gettu betur í rigningunni í gærkvöld. Mér tókst það ekki. Það gerði að inn í þáttinn var skellt endalausum auglýsingum og  jafnvel hvatningarópum til liðanna tókst að breyta  í auglýsingu fyrir Eldsmiðjuna. Hlutfall auglýsinga er orðið svo mikið í dagskrá RÚV  og    leikarar svo  áberandi í auglýsingum þessa dagana að  spurningin er  hvort Páll Magnússon ætti ekki að fella niður allt nema auglýsingar. Gæti hann ekki   skráð það í bókhaldið sem innlent leikið efni?

→ Rita ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Notagildi ljóða

3.3 2010 | 17:00 | 12 ummæli

Ég fór á Bókamarkaðinn í Perlunni. Við  Perluna er alltaf kalt og hvasst þó maður fari í sólskinsblíðu að heiman. Það þykir mér táknrænt.

Þetta er í annað sinni sem ég fer á markaðinn, þannig plata ég sjálfa mig, eyði hóflega í hvert skipti. Gæti þess hins vegar að leggja  upphæðinar sem ég legg út í hvert sinn ekki saman. Í dag keypti ég meðal annars ljóðabókina hans Vésteins Lúðvíkssonar, „Svona er að eiga fjall að vini“. Það er falleg bók og að ég held í þriðja skipti sem ég verð mér úti um hana. Ég keypti líka þýðingar hans á ljóðum kínverska skáldsins Po Chüi.

Á heimleiðinni hlustaði ég á fjögurfréttirnar á Rás 1.  Þar útvarpaði Jóhanna Vigdís röddum þeirra sem lögðu á okkar Icesaveskuldabaggann og alla hina baggana. „Segjum Nei!“ „Ég segi nei!“ hrópuðu þeir hver á fætur öðrum, nú komnir í búning frelsishetja  í baráttu gegn  eigin glæp!

Mikið skelfing er nú gott að  menn skuli enn yrkja  ljóð á Íslandi. Þau ná að yfirgnæfa ansi margt.

→ 12 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .