Margrét Sverrisdóttir

blogg á eyjan.is

Fáránleg frétt í DV

27.1 2010 | 19:44 | 7 ummæli

Það er varla tilviljun að mjög neikvæð frétt birtist um mig í DV í dag, þegar prófkjör Samfylkingarinnar stendur sem hæst.

DV birtir frétt um að ég fái 170.000 krónur fyrir hvern fund sem ég sæki í vinnu minni sem varaborgarfulltrúi í Reykjavík.

Þetta er fráleitt.

Heildarmánaðarlaun mín hjá Reykjavíkurborg eru 212.449 krónur fyrir skatta. Ég fæ 25% skerðingu á full laun varaborgarfulltrúa vegna þess að ég sit bara í einu fagráði, Umhverfis- og samgönguráði.  Ég á líka sæti í hverfisráði Grafarholts- og Úlfarsárdals og  í borgarmálahóp Samfylkingar, sem hittist oft.  Auk þess hef ég sótt borgarstjórnarfundi en mæting mín þar er aldrei skráð af því ég á ekki seturétt þar.  
Ég er ekki með internet-tengingu á kostnað borgarinnar eins og fullyrt var í fréttinni. 
P.S. Blaðamenn DV geta fengið þessa staðreynd varðandi heildarlaun mín staðfesta hjá skrifstofustjóra borgarstjórnar – og hefðu kannski betur gert það áður en þeir birtu fréttina.

Flokkar: Óflokkað | Facebook



Ummæli (7)

  •   Rósa // 27.1 2010 kl. 20:49

    Situr „bara“ í einu fagráði. Hvað þýðir þetta?

  •   Páll Sig // 27.1 2010 kl. 20:52

    Þú færð aukalega greitt fyrir hvern fund sem þú situr í hverfaráði, sem leggjast ofan á laun varaborgarfulltrúa.

    Varla áttu að fá greitt fyrir að vera í borgarmálahóp Samfylkingarinnar, hversu oft sem þessi hópur hittist.

    Skil heldur ekki af hverju þú ert sérstaklega að taka fram að þú fáir ekki greitt fyrir að mæta á fundi sem þú átt ekki seturétt á. Ekki frekar en ég ætti að fá greitt fyrir að mæta á pallana.

  •   Ásgeir Gunnarsson // 27.1 2010 kl. 20:59

    Þarf væntanlega að þinglýsa kosningaloforðum ?

  •   Kristján // 27.1 2010 kl. 22:10

    Reynsla mín af blaðamönnum DV er að þeir kjósa frekar að staðfesta fréttir eftir á – röng frétt (sem hægt er að leiðrétta með litlum textakubb á innsíðu) er nefnilega betri/söluvænni en engin frétt.

  •   M // 27.1 2010 kl. 22:28

    Myndi ekki hafa áhyggjur, það vita allir að það er ekkert að marka flestar fréttir sem DV birtir.

  •   Bergljot Aðalsteinsd // 27.1 2010 kl. 23:45

    Það er sorglegt þegar verið er að reyna að draga heiðarlegt fólk með ósannindum niður í svaðið. Ég dáðist að Margréti þegar hún stóð með sinni samfæringu þegar Kjartan og Villi lóðaskortur reyndu að lokka hana með gylliboðum til að fylgja Ólafi. Ég óska Margréi góðs brautargengis í komandi prófkjöri.

  •   Ómar Þ. Ragnarsson // 27.1 2010 kl. 23:59

    Ari fróði lagði línuna: Hafa skal það er sannara reynist. Það er einfalt siðalögmál sem fjölmiðlar eiga að fara eftir að fari þeir rangt með staðreyndir eigi þeir að birta hið sanna á jafnáberandi hátt.

    Þess ber að krefjast í þessu máli sem öllum öðrum.

Rita ummæli

Kæfuvörn (gildin skulu vera óbreytt):