Margrét Sverrisdóttir

blogg á eyjan.is

Vanhæfur útvarpsstjóri

29.1 2010 | 00:20 | 8 ummæli

Eins og fleirum blöskrar mér sá niðurskurður sem útvarpsstjóri hefur ákveðið að fara í á kaupum á innlendu efni. Um margra ára skeið hef ég verið félagi í Hollvinum Ríkisútvarpsins og formaður á tímabili, en markmið þeirra samtaka er að standa vörð um menningarhlutverk RÚV.
Með nýjustu ákvörðun útvarpsstjóra sýnist mér að menningarhlutverk stofnunarinnar sé endanlega fyrir bí. Nýlega var lagður á þjóðina nefskattur til að standa undir rekstri RÚV, en ég efast um að fólk sé almennt sátt við að þeim fjármunum sé varið til kaupa á ódýru og heimskulegu engilsaxnesku efni til að halda úti dagskrá til miðnættis.
Bið ég þá frekar um að við eflum innlenda dagskrárgerð, sýnum innlendar kvikmyndir og látum nægja að sjónvarpa til tíu á kvöldin. Ef það dugir ekki til mætti alveg hætta að sjónvarpa á fimmtudögum, eins og hér áður fyrr.  Það gæti kannski bætt mannlífið til muna á þessum síðustu og verstu tímum…

Í lokin langar mig að láta fylgja með ályktun sem stjórn Hollvina samtaka RÚV lét frá sér fara:

,,Stjórn Hollvina Ríkisútvarpsins harmar þann niðurskurð sem nú hefur dunið á Ríkisútvarpinu, í þriðja sinn á skömmum tíma, vegna ákvörðunar Alþingis að klípa tíunda hluta af útvarpsgjaldi því sem er undirstaða tekna RÚV. Í ályktun sem stjórnin hefur sent frá sér segir að allt of langt sé gengið í vanhugsuðum niðurskurði og ekki hafi verið reynt að gæta þess að verja meginhlutverk RÚV, að efla innlenda dagskrárgerð. Sjaldan hafi verið jafnmikil þörf fyrir öflugt almannaútvarp, áreiðanlega fréttaþjónustu og umfjöllun um framvindu mála og nú.“

→ 8 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Fáránleg frétt í DV

27.1 2010 | 19:44 | 7 ummæli

Það er varla tilviljun að mjög neikvæð frétt birtist um mig í DV í dag, þegar prófkjör Samfylkingarinnar stendur sem hæst.

DV birtir frétt um að ég fái 170.000 krónur fyrir hvern fund sem ég sæki í vinnu minni sem varaborgarfulltrúi í Reykjavík.

Þetta er fráleitt.

Heildarmánaðarlaun mín hjá Reykjavíkurborg eru 212.449 krónur fyrir skatta. Ég fæ 25% skerðingu á full laun varaborgarfulltrúa vegna þess að ég sit bara í einu fagráði, Umhverfis- og samgönguráði.  Ég á líka sæti í hverfisráði Grafarholts- og Úlfarsárdals og  í borgarmálahóp Samfylkingar, sem hittist oft.  Auk þess hef ég sótt borgarstjórnarfundi en mæting mín þar er aldrei skráð af því ég á ekki seturétt þar.  
Ég er ekki með internet-tengingu á kostnað borgarinnar eins og fullyrt var í fréttinni. 
P.S. Blaðamenn DV geta fengið þessa staðreynd varðandi heildarlaun mín staðfesta hjá skrifstofustjóra borgarstjórnar – og hefðu kannski betur gert það áður en þeir birtu fréttina.

→ 7 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .

Í fyrsta sinn í prófkjöri

15.1 2010 | 11:31 | 3 ummæli

Sæl, þetta er fyrsta bloggfærslan mín á Eyjunni og í fyrsta sinn er ég að taka þátt í prófkjöri, þó ég sé ekki nýgræðingur í pólitík. Ég óska eftir stuðningi til að starfa í borgarstjórn með því hæfa fólki sem leiða mun borgarmálin fyrir hönd Samfylkingarinnar.
Ég hef verið varaborgarfulltrúi frá árinu 2002 og hef átt sæti í ýmsum nefndum og ráðum á vegum Reykjavíkurborgar; var forseti borgarstjórnar í ,,Hundrað daga meirihlutanum“  árið 2007, formaður menningar- og ferðamálaráðs, hef setið í menntaráði, í umhverfis- og samgönguráði og hverfisráði Grafarholts og Úlfarsárdals, svo nokkuð sé nefnt.

  • Ég tel mikilvægt að endurvinna traust í stjórnmálum með því að vinna fyrir opnum tjöldum.
  • Ég hef félagslegan jöfnuð að leiðarljósi og tel brýnt að huga sérstaklega að þeim sem eiga erfiðast uppdráttar í samfélaginu.
  • Metnaður, menning og virðing fyrir sögunni á að einkenna alla uppbyggingu borgarinnar.
  • Áhrif kvenna hafa ekki aukist þrátt fyrir hrunið og konur eru í miklum minnihluta á sveitarstjórnarstiginu. Atkvæði þitt getur breytt því.
  • Reykjavík á að vera höfuðborg allra landsmanna, ekki eingöngu borgarbúa.
  • Velferðar, mennta- og menningarmál hafa verið mér hugleikin og ég hef áhuga á að auka nærþjónustu og sjálfstæði hverfa.

Bestu kveðjur, Margrét

→ 3 ummæliFlokkar: Óflokkað| Facebook .