Sigurjón Þórðarson úr Frjálslynda flokknum hefur tekið af skarið og upplýst á mbl.is að viðræðufundir hafi verið í gangi meðal fulltrúa og einstaklinga úr röðum Borgarahreyfingarinnar, Hreyfingarinnar, Frjálslyndra, fullveldissinna og fleiri um myndun breiðfylkingar-framboðs í næstu þingkosningum.
Sem formaður Borgarahreyfingarinnar get ég staðfest að þessar viðræður hafa verið í gangi og það allt frá því í nóvember. Ég get og staðfest að ýmsir einstaklingar hafa sem slíkir komið að þessum viðræðum, meðal annars nokkrir stjórnlagaráðsmenn. Staðan í þessum viðræðum er sú að undirbúningsstigi fer senn að ljúka; málefnahópar eru að ganga frá stefnuramma og tillögum um skipulag/form hins nýja afls.
Samstaðan um lykil-baráttumál hefur verið eindregin á þessum fundum. Höfuðáherslurnar eru á nýja stjórnarskrá í samræmi við frumvarp Stjórnlagaráðs, alvöru skjaldborg um heimilin, uppstokkun kvótakerfisins og siðvæðingu stjórnsýslunnar og fjármálamarkaðarins. Það er og gengið út frá því að samningsviðræðum við ESB ljúki og niðurstaðan verði borin undir þjóðina. Reikna má með því að undirbúningsvinnunni ljúki bráðlega og þá verður „allt galopnað“ og öll pólitísk öfl og einstaklingar boðnir velkomnir í breiðfylkinguna utan um téðan stefnu-kjarna og til aðkomu að nánari útfærslu hans.
Samstarf þetta þarf ekki að koma á óvart. Síðustu mánuði hefur samstarf Borgarahreyfingarinnar og Hreyfingarinnar aukist og hratt fennt yfir „fornar“ deilur. Fyrri klofningur er engin fyrirstaða lengur og fólk einhuga um að láta málefnin ráða för.
Friðrik Þór Guðmundsson
Ummæli (12)
aagnarsson // 3.1 2012 kl. 20:10
Uppstokkun kvótakerfisins er frelsi, til handfæraveiða, sem leysir
vanda gjaldþrota þjóðar.
Halldór Guðmundsson // 3.1 2012 kl. 21:58
Held að það sé nokkuð ljóst, að það verður engu breytt í þessu landi, nema með breyðfylkingu fólksins í landinu, stór hluti félagsmanna HH. væri örugglega til í að leggja hönd á plóginn, og þessum aðildarviðræðum við ESB verður nú sjálfhætt, en hvernig umhorfs verður þar eftir 3-4 ár, er altönnur Ella.
Friðrik Þór Guðmundsson // 3.1 2012 kl. 22:05
Já Halldór, við erum einmitt með þá Ellu. Ritari BH er Ella K. Kristjánsdóttir
Valur // 4.1 2012 kl. 05:43
Friðrik, tekur þú undir það sem Halldór segir um að aðildarviðræðum sé sjálfhætt? Þú segir nefnilega í pistli þínum að aðildarsamningur verði borin undir þjóðina. Eða er ég eitthvað að misskilja svar þitt til Halldórs?
Friðrik Þór Guðmundsson // 4.1 2012 kl. 10:44
Já Valur, þú ert að misskilja aulafyndni-svarið. Ég er að segja að þetta mögulega framboðsafl sé sammála um það að vera innbyrðis ósammála um hvort ESB-aðild sé æskileg, það eigi hins vegar að klára samningaferlið og leggja niðurstöðuna fyrir þjóðina í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þjóðin ráði þessu.
Sjálfhætt? Aðallega blasir sú staða við mér að samningurinn þyrfti að verða ofurmannlega góður til að hljóta náð í augum meirihluta þjóðarinnar. Að óbreyttu.
Elín Sigurðardóttir // 4.1 2012 kl. 11:28
Gott til þess að vita að Hreyfingin og Borgarahreyfingin hafi náð saman. Það er strax betri árangur en hjá Röddum fólksins og Occupy Reykjavík. Nú þarf Breiðfylkingin bara að ná saman við Samfylkinguna. ESB er óneitanlega stór snertiflötur þessara tveggja fylkinga. Veistu til þess að þessar tvær fylkingar hafi rætt saman á bak við tjöldin Friðrik?
Friðrik Þór Guðmundsson // 4.1 2012 kl. 12:06
Áttu við að við höfum rætt við Samfylkinguna, Elín? Ef svo er þá er svarið nei, enda full ástæða til að veita „gömlu“ flokkunum ærlegt aðhald. Og hvað okkur varðar, sem höfum undanfarið fundað (enn óformlega) um framboð (breiðfylkingu ýmissa afla og einstaklinga) þá erum við sammála um að vera fyrirfram sem heild hvorki með eða á móti ESB-aðild, heldur um að samningaferlið fái að klárast og síðan ráði þjóðin sjálf hvort hún samþykkir afurðina eða hafnar.
Elín Sigurðardóttir // 4.1 2012 kl. 12:42
Ærlegt aðhald. Erum við að tala um extreme makeover?
http://www.mbl.is/smartland/utlit/2011/10/31/mittid_mjokkadi_um_8_sm_i_adhaldsfatnadi/
Friðrik Þór Guðmundsson // 4.1 2012 kl. 13:12
http://ruv.is/frett/nytt-frambod-a-dofinni
Hádegisfréttir RÚV í dag. Upplýsingar um nöfn stjórnlagaráðsmanna komu ekki frá mér, svo það sé á hreinu.
„Hreyfingin, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn og fleiri eiga í viðræðum um sameiginlegt nýtt framboð í næstu Alþingiskosningum. Formaður Borgarahreyfingarinnar segir nýja stjórnarskrá, uppstokkun fiskveiðikerfisins og alvöru skjaldborg um heimilin verða setta á oddinn.
Viðræður hafa staðið síðan í nóvember milli nokkurra hópa og einstaklinga um myndun framboðsins. Þeirra á meðal eru Hreyfingin, sem á þrjá fulltrúa á Alþingi, Borgarahreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, sem datt út af þingi í síðustu kosningum, Samtök fullveldissinna, Þjóðarflokkurinn og einstaklingar sem sátu í stjórnlagaráði.
Þar ber helst að nefna Lýð Árnason, sem tekið hefur þátt í viðræðunum, en aðrir hafa fylgst með þeim, til dæmis Andrés Magnússon, Gísli Tryggvason og Þorvaldur Gylfason. Friðrik Þór Guðmundsson, formaður Borgarahreyfingarinnar, segir stefnt að framboði á landsvísu í næstu alþingiskosningum, hvenær sem þær verða.
Undirbúningur verði að teljast nokkuð langt kominn. Fundahöld hafi verið nokkur, málefnahópar séu að störfum og fjalli um stefnukjarna, skipulag leikreglur og form. Allar líkur séu á að það klárist í janúar.
Friðrik Þór segir að stefnumálin eigi eftir að útfæra nákvæmlega en helstu málaflokkar liggi þó fyrir þeir séu; alvöru skjaldborg um heimilin, ný stjórnarskrá í samræmi við frumvarp stjórnlagaráðs, siðvæðing stjórnsýslunnar og fjármálakerfisins, uppstokkun kvótakerfisins og loks séu menn sammála um að vera ósammála um ESB aðild. Aðildarviðræðurnar eigi að klárast og þjóðin ákveði sjálf hvort af aðild verði“.
Jón Ólafs. // 4.1 2012 kl. 14:00
Þetta eru að sönnu fyrstu jákvæðu fréttirnar, sem þjóðin fær í langan tíma.
Lýst mjög vel á að setja skjaldborg um heimilin í forgang, því það er skelfilegt hvernig erlendir vogunarsjóðir hafa verið látnir komast upp með að blóðmjólka þjóðina, af hæstu vöxtum í heimi, og vitlausri verðtryggingu að auki,og bjóða upp heimili fóks, vegna ólöglegra gengistryggðra lána, og ólöglegra reiknaðra verðtryggðra lána, þar sem stór hluti afborgunar, er settur ofan á höfuðstól, með margfeldisáhryfum, sem engin lagastoð er fyrir.
Hefði viljað sjá Marinó, Andreu og fleiri frá HH. í hópnum.
Og ágreinigsmál sem upp koma verði leyst með atkvæðagreiðslu, félagsmanna, fult lýðræði.
Friðrik Þór Guðmundsson // 4.1 2012 kl. 14:19
Það er verið að vinna með hugmyndir um mjög lýðræðislegt skipulag og stefnumótun, í anda hugmynda Lýðræðisfélagsins Öldu, hugmynda Betri Reykjavíkur og fleiri.
Ásthildur Cesil Þórðardóttir // 4.1 2012 kl. 17:55
Mesta gleðifréttin í langan tíma, og löngu tímabært.
Rita ummæli