Mas og meiningar

Mínir gildisdómar á eyjan.is

Smánin er biskupsins

1.1 2012 | 12:57 | 14 ummæli

Í áramóta- og kveðjuræðu sinni varð aðalbiskupi Þjóðkirkjutrúfélagsins alvarlega á í messunni. Hann talaði um sanngirni í vestrænu réttarkerfi og kallaði það þjóðarsmán og hefndarhug að efna til landsdómsmáls gegn einum manni.

Ég get tekið undir að Alþingi sýndi mikla ósanngirni í því að ákæra bara einn mann í því máli.

Það er aftur á móti kolrangt hjá biskupi að smánin ligi í því að þarna sé farið fram af hefndarhug og á skjön við réttarríkið. Biskupinn, sem er einn „höfðingja“ landsins ætti frekar að tala um þá þjóðarsmán sem réttarríkið sjálft er að verða, þar sem höfðingjarnir og auðmenn sérstaklega sleppa almennt og yfirleitt við ábyrgð og refsingu af því þeir geta brúkað ótakmarkað af misjafnlega vel fengnu fé til að kaupa færustu (en ekki endilega siðlegustu) lagatækni-lögfræðinga landsins, meðan brotlegir/ákærðir einstaklingar efnaminnstu stéttanna eru varnarlausir eða fá hratið úr lögmannastétt í vörn sína.

Þjóðarsmánin, „herra“ biskup er þegar efnahagsleg og pólitísk staða ræður sekt eða sýknu. Þú hefur nú lagt þitt lóð á vogarskálar í þágu slíkrar þróunar.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál



Ummæli (14)

  •   Vigfús Magnússon // 1.1 2012 kl. 13:44

    Sammála.

  •   þórður guðmundsson // 1.1 2012 kl. 13:46

    gleðilegt ár og takk fyrir það liðna, með ósk um að það beri í skauti sér að ný stjórnarskrá sem komi þeirri skipan á að engir prestar verði á vegum ríkisins nema vegprestar.

  •   Séra Jon // 1.1 2012 kl. 14:02

    Sammála

  •   einsi // 1.1 2012 kl. 14:05

    Greinilegt að þessi dapurlegi biskup kýs ekki að „velta um borðum víxlaranna“.
    Skortur á andagift í ræðunni var átakanleg.
    Niðurlæging kirkjunnar heldur áfram.

  •   Grétar Reynisson // 1.1 2012 kl. 14:06

    —-Þjóðarsmánin, „herra“ biskup er þegar efnahagsleg og pólitísk staða ræður sekt eða sýknu. Þú hefur nú lagt þitt lóð á vogarskálar í þágu slíkrar þróunar.——
    Alveg hárrétt hjá þér Friðrik Þór

  •   Sigurður Hr. Sigurðsson // 1.1 2012 kl. 14:20

    Sammála, Friðrik. „Siðferðislegur áttaviti“ Karls er greinilega truflaður af sérhagsmunum og pólitík.

    Gleðilegt og gæfuríkt nýtt ár!

  •   Valur // 1.1 2012 kl. 14:49

    Já það er mörgu snúið á haus í þessari blessuðu þjóðkirkju.

  •   Guðberg Guðmundsson // 1.1 2012 kl. 20:01

    Af hverju er ekki settur slagbrandur og hengilás fyrir dyr Biskupsstofu ?
    Hvað þarf að gerast til þess að þessu leikriti ljúki?
    Vill fá boðorð kirkjunnar upp á borðið,hún á ekki að vera fyrir pólitíkusa.
    Siðblindur Biskup með 70% siðlausa þjóna og ómaga.
    Hvað tekur þetta batterí mikinn toll frá þjóðinni?
    Hafðu hrós fyrir þetta Friðrik.
    Gleðilegt ár.

  •   Sævar Finnbogason // 2.1 2012 kl. 00:35

    Vel athugað

  •   Friðrik Þór Guðmundsson // 2.1 2012 kl. 01:39

    Þakka undirtektirnar – og gleðilegt ár öll sömul.

    „Er nýtt réttarkerfi komið á hér í landi?“ spurði Karl Sigurbjörnsson. Svarið virðist nokkuð óyggjandi já. Við hliðina á hinu almenna réttarkerfi hefur verið smíðað sérstakt réttarkerfi fyrir ráðamenn og auðmenn.

  •   Kári Jónsson // 2.1 2012 kl. 05:31

    Ef einhver situr einn og yfirgefinn í örfoka eyðimerkur auðn þá heitir hann Karl Sigurbjörsson og er biskup yfir landinu-góða, ennþá.

  •   Árni St. S. // 3.1 2012 kl. 13:45

    „Geit?“

  •   Guðgeir Kristmundsson // 3.1 2012 kl. 17:17

    Vel mælt Friðrik. Tek undir með þér.

  •   Höskuldur Davíðsson // 14.1 2012 kl. 09:06

    Hafðu þökk fyrir þetta innlegg Friðrik.
    Orð í tíma töluð.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og sjö? Svar: