Mas og meiningar

Mínir gildisdómar á eyjan.is

NEI við græðgisvæðingu almannaþjónustunnar

18.12 2011 | 23:29 | 1 ummæli

Utanríkisráðuneytinu hefur mistekist að halda til haga þeim meginhagsmunum Íslands “að verja hið norræna form félagslegrar almannaþjónustu”, sem meirihluti utanríkismálanefndar Alþingis skilgreindi sem þær forsendur “sem stjórnvöldum ber að hafa að leiðarljósi í aðildarviðræðum við ESB”.“

Svo hefst afar athyglisverð bloggfærsla sem Páll H. Hannesson hefur birt á bloggsíðunni „ESB og almenningur“ (sjá hér). Í greininni er á mjög trúverðugan hátt lýst hvernig hvergi er fyrir það girt í samningsferlinu og engir fyrirvarar við því settir að velferðarkerfið, almannaþjónustan, verði látin í hendurna á græðgisöflunum og látið lúta markaðslögmálunum.

Því verður einfaldlega ekki trúað að „norræna velferðarstjórnin„, með meintan klassískan jafnaðarmann í utanríkisráðuneytinu, líti á það sem sjálfsagðan hlut að markaðsvæða almannaþjónustuna og jafnvel ganga enn lengra; skerða réttindi og kjör opinberra starfsmanna. Á hinn bóginn gæti verið að klassískur jafnaðarmaður vilji einmitt koma heim með samning sem örugglega verður felldur!

Það kann að vera að fjölmargir í landinu vilji ESB-aðild af því að það kynni að lækka verð í landinu og auka á efnahagslegan stöðugleika. En ef stjórnvöld ætla sér að ná slíku á kostnað norrænna velferðargilda með græðgisvæðingu almannaþjónustunnar þá held ég að NEI-ið verði ansi hávært.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag · Viðskipti og fjármál



Ummæli (1)

  •   Sig. Kr // 24.12 2011 kl. 14:05

    Hvaða bull er þetta annars hjá Páli?

    Maður gæti haldið að Heimsýn væri að borga fyrir þetta!

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af þremur og sex? Svar: