Í síðustu færslu minni ræddi ég út frá niðurstöðu könnunar Capacent, að um 40% svarenda gátu eða vildu ekki tiltaka neinn fjórflokkanna sem sitt val. Nýjasta skoðanakönnun Stöðvar 2 og Fréttablaðsins ýtir enn frekar undir vísbendingarnar um gríðarlega óánægju og óvissu kjósenda með þá pólitísku valkosti sem í boði eru að óbreyttu.
Í könnuninni nú treystu 56,5% svarenda sér ekki til að velja neinn flokk og segir það mikla sögu út af fyrir sig. Einnig má horfa til þess að 57,7% vildu ekki tilnefna nokkurn „fjórflokkanna“ – næstum 60 prósent. Þetta þýðir í raun að lítið er að marka tölur sem gefnar eru um hlutfallslegt fylgi „meðal þeirra sem taka afstöðu“, þ.e. þeirra 43,5% sem treystu sér, jafnvel þráspurðir, til að nefna flokk. Það er með litlu tilkalli til áreiðanleika og réttmætis sem Sjálfstæðisflokkurinn getur áætlað sig staddan í 49,6% fylgi, Samfylkingin í 17,1%, Framsóknarflokkurinn 16,8%, VG með 13,7% og Hreyfingin 2,8%. Í raun og veru eru þær tölur ómarktækar.
Svona er hin raunverulega staða innan heildarinnar:
57,7% vilja ekki kjósa nokkurn „fjórflokkanna“.
21,5% tiltaka Sjálfstæðisflokkinn eftir allt að þremur spurningum.
7,4% tiltaka Samfylkinguna.
7,3% tiltaka Framsóknarflokkinn.
6,0% tiltaka VG
Þetta er staðan. Í 800 manna úrtaki vildu um 460 manns ekki lýsa yfir stuðningi við neinn „fjórflokkanna“, jafnvel þráspurðir (til að reyna að minnka óvissuna í könnuninni). Gagnlegt væri að upplýst yrði hveer staðan var eftir fyrstu umferðina í könnuninni, áður en spurt var út frá líkindum.
Þetta er vitaskuld allsvakalegur áfellisdómur yfir „gömlu“ flokkunum og ljóst að vantraust í garð hefðbundinna stjórnmálaafla er síst að minnka. Jarðvegurinn fyrir annars konar pólitíska valkosti er augljóslega frjór. Einkum, að mínu mati, framboð sem lætur sér raunverulega annt um hag almennings og stöðu heimilanna og vill berjast af hörku fyrir róttækum lýðræðisumbótum, ekki síst framgangi frumvarps Stjórnlagaráðs. Enda liggur fyrir að ég best veit að hið minnsta á þremur vettvöngum sé verið að smíða framboð í þá veruna eða ámóta.
Friðrik Þór Guðmundsson
Ummæli (5)
Pétur Örn Björnsson // 10.12 2011 kl. 15:14
Maður les um „niðurspírala“ fjármálakerfisins á glóbal vísu.
Það eru rosalegar sviptingar núna og ekki bara markaðspaníkk.
Vantraustið er orðið viðvarandi og hrynjandin magnast.
Hví skyldi vantraustið ekki ná til íslenska 4-flokka kerfisins?
Það sér það hver heilvita maður að það er handónýtt, en hjarir
sem hundur á roði, meðan óbreyttur almenningur biður bara um
heiðarleika, gegnsæi, sanngirni, réttlæti og jafnrétti,
en fær ekkert af þessu. Við biðjum bara um lýðræði, en ekki
4-faldar flokka lygar á 4-urra áranna frestinum.
joi // 10.12 2011 kl. 21:55
Eru nú vinstri menn farnir að notfæra sér allt? Óákveðið fylgi er dæmt sem dauð atkvæði fyrir flokkana sem sitja inni á þingi núna? Eru stóru fréttirnar í þessari könnun ekki þær að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn með 50% fylgi og fylgi samfylkingarinnar sé komið niður í það sem ISG kallaði gjarnan „léttvínsfylgi“ þegar hún vildi núa salti í sár Framsóknarmanna eftir að þeir skoruðu lágt í könnunum?
Grunar að það verði ekki 60% af kjósendum sem kjósi nýja flokka, af hverju gerðu þeir það þá ekki í síðustu kosningum?
JR // 11.12 2011 kl. 02:20
,,Eru stóru fréttirnar í þessari könnun ekki þær að Sjálfstæðisflokkurinn sé kominn með 50% fylgi ..“
Jú, það eru stórfréttir !
Að einhver skuli ljá þessu glæpagengi atkvæði sitt segir okkur eitthvað ?
Það er verið að ráðast á einhverja ímyndaði óvini í líki mótorhjólagengja, en síðan er heil glæpasamtök sem heita sjálfstæðisflokkur, sem skapaði gjaldþrot heillar þjóðar sem hún hefur ekki komist upp úr, og þá er til fólk eins fjölmiðlafólk 365 sem er að hjálpa þessum glæpasamtökum !
er alveg sannfærður um að þessi könnun er ekki í lagi !!!!
Leifur A. Benediktsson // 11.12 2011 kl. 02:54
JR,
Góður, þessi glæpasamtök munu aldrei fá þetta fylgi. Þessi könnun er ekki marktæk. Enda eitt og hálft ár í kosningar og ,,sérstakur“ á eftir að koma fram með ákærur.
Það mun breyta landslagi stjórnmálanna. Viðbjóðurinn er ennþá ekki allur kominn upp á yfirborið. Fall sparisjóðanna á eftir að koma stjórnmálaelítunni í verulega slæm mál. Rannsókn á þeim viðbjóði,sem þar fór fram á eftir að valda gríðarlegum titringi.
joi // 11.12 2011 kl. 22:14
Hvað er sérstakur búinn að gefa út margar ákærur? Hvað er búið að dæma í mörgum þeirra? Hvernig fór niðurstaðan í baugsmálinu fyrir helgi? Gefur það Leifi A.Ben. einhverjar vísbendingar um hvernig staðan er í þessum málum sérstaks? Af hverju hjólaði ekki sérstakur beint í að skoða söluna á stofnfjárbréfum í SPRON á gráa markaðinum? Náunginn sem sagðist ekki hafa „hundsvit á business“ náði nú samt að beila út 70 milljónum með sölu bréfanna þegar allir aðrir voru að kaupa. Af hverju er þetta ekki skoðað?
Rita ummæli