Mas og meiningar

Mínir gildisdómar á eyjan.is

Vantraust og hungur í nýtt afl

21.11 2011 | 11:56 | 4 ummæli

Staðan í könnunum um fylgi flokka er nokkuð ljós; hún getur varla verið ómarktækari – nema um mikla óánægju með valkostina sem í boði eru að óbreyttu og löngun í nýjan sterkan valkost!

Í nýlegri könnun Capacent kváðust samtals 29% svarenda vera óákveðnir eða ætla ekki að kjósa/skila auðu og 13% til viðbótar völdu ekki einn „fjórflokkanna“ – samtals 42%. Í mælingum MMR hefur komið fram mikill hugsanlegur stuðningur við framboð á vegum Guðmundar Steingrímssonar og/eða Besta flokksins. Í mælingum hefur og komið fram algert vantraust á bæði stjórnarmeirihluta og stjórnarandstöðu.

Þetta segir mér að pólitískar afleiðingar Hrunsins séu enn miklar, að uppgjörinu sé ekki lokið og að mikið hungur sé í ný öfl eða helst nýtt afl. Kjósendur húðstrýktu Sjálfstæðisflokkinn í síðustu þingkosningum og margir eru óánægðir með ríkisstjórnina sem tók við.

Það myndi sjálfsagt ekki „leysa málið“ fyrir óákveðna og óánægða kjósendur að mörg ný en lítil öfl sæktu fram á vettvanginn. En öflugt og trúverðugt nýtt afl, sem legði áherslu á lýðræðisumbætur í anda frumvarps Stjórnlagaráðs, siðvæðingu stjórnsýslunnar og fjármálakerfisins og baráttuna fyrir hagsmunum heimilanna (en ekki banka-elítunnar) hefði að mínu mati afar góða möguleika á sterkri útkomu í þingkosningum.

Flokkar: Stjórnmál og samfélag



Ummæli (4)

  •   Sigurður Hr. Sigurðsson // 21.11 2011 kl. 14:37

    Sammála því að gildistaka nýrrar stjórnarskrár sé grundvallarforsenda þess að bananafnykurinn fari minnkandi hér á Íslandi.

  •   Steinarr Kr. // 21.11 2011 kl. 14:43

    Hef litla trú á að baklandslaus kaffihúsastefnuframboð eigi mikinn séns. Borgara- Hreyfingin sýndi það og sannaði síðast. Náði að hrista smæsta flokkinn út af þingi (Frjálslyndir) og sprakk svo í loft upp, þannig að maður hefur ekki einu sinni séð skemmtilega spretti í stjórnarandstöðu hjá þeim.

    Vara líka við oftrú á því sem þetta stjórnlagaráð gerði og skjalinu frá þeim. Þekki engann sem finnst þetta hafa verið kostnaðarins virði og því lengur sem líður, því minna verður gert með þetta plagg. Önnur atriði sem þú nefnir eru smáatriði ef viðkomandi flokkur hefur ekki einhverjar hugmyndir eða svör varðandi atvinnumálin. Það verður málaflokkurinn sem skilur á milli alvöru og amatöra. (Ekki svo að þeir sem sitji á þingi núna hafi einhver svör).

  •   Guðmundur Brynjólfsson // 21.11 2011 kl. 15:36

    Það verður æ alengara þegar maður heyrir í mönnum varðandi pólitík að þeir hafi á orði „Ég kýs allavega ekkert af þessum gömlu flokkum“ – eða eitthvað í þá veruna. Sumir taka jafnvel svo djúpt í árinni að skeyta því við að þeir muni „aldrei“ kjósa neinn af fjórflokknum.

    Hvað er þá til ráða? Ég tel að nýtt afl – og þá undirstrika ég nýtt! – verði að koma fram og boða störf (og starfa frá upphafi) með lýræði og hreinlyndi að leiðarljósi. Það má vel vera – þó ég efist um það – að einstaka núverandi þingmenn séu tækir í svona fylkingu. Þarna tel ég að þurfi fyrst og fremst að koma að fólk sem hefur sýnt það og sannað – eða er með öðrum hætti trúverðugt – að það getur sameinast í erfiðum málum án undansláttar þegar á herðir; borið virðingu hvort fyrir öðru þó það sé ekki sammála og unnið út frá manngildisjónarmiðum þegar svo stendur á og svo tekið höndum saman þegar næsta mál kemur upp; það vill segja: hér vantar fólk sem getur unnið fyrir aðra án þess að vera með sjálft sig í forgrunni, persónu sína og fjárhagslega velferð.

  •   Elín Sigurðardóttir // 22.11 2011 kl. 08:10

    Hungurtilfinning lýsir ekki ástandinu að mínu mati. Flökurleiki og lystarleysi nær því aðeins betur. Flokkshestar munu jú drattast á kjörstað. Þeir sem vilja sígarettur í apótekin og súpur í tjöldin haka við Hreyfinguna. Hinir láta ekki sjá sig.

Rita ummæli

Kæfuvörn:   Hver er summan af núlli og fjórum? Svar: