Margir „litlir“ hópar, hver í sínu horni að brölta, með fátt eitt sameiginlegt? Áherslurnar eru vissulega ekki hinar sömu, en miða þó allar að bættu samfélagi aukins lýðræðis og betra samfélags almennt og yfirleitt.

Á kynningarfundi Grasrótarmiðstöðvarinnar í gærkvöldi kynntu sig þau grasrótaröfl sem þar hafa þegar bókað sig til þátttöku eða eru á leiðinni í samstarfið. Hér er að ég hygg tæmandi upptalning á þeim hópum sem kynntu sig: Borgarahreyfingin, Hreyfingin, Frjálslyndi flokkurinn, BÓT, Lýðræðisfélagið Alda, IFRI, Húmanistaflokkurinn, Þjóðarflokkurinn, Samtök fullveldissinna, Zeitgeist, Ný framtíð, Stjórnarskrárfélagið, Gagnauga, Occupy, Attac, Samhljómur menningarheima. Mörg félög, einn vettvangur, samstarf og samröddun.

Og inn kíkti forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, ásamt frú sinni Dorrit, að kynna sér starfsemina og rifja upp þegar hann sjálfur tók þátt í grasrótarstarfi, með Friðarhreyfingunni og fleirum.

Grasrótin ER lýðræðið, sagði forsetinn efnislega….

Ef þetta er ekki Grasrótin…
10.11 2011 | 12:26 | 2 ummæli
Flokkar: Stjórnmál og samfélag
Friðrik Þór Guðmundsson
Ummæli (2)
Sigurður Hr. Sigurðsson // 10.11 2011 kl. 14:24
Hvaða samtök voru þau Ólafur og Dorrit að kynna? Occupy Bessastaðir?
Ásthildur Cesil Þórðardóttir // 10.11 2011 kl. 19:58
Þetta er frábært starf og ber að þakka ykkur sem standið í frosvarið fyrir þau. Megi þetta grasrótarafl vaxa og dafna.
Rita ummæli