Líkamsvirðing er að bera virðingu fyrir líkama sínum og annarra. Þegar við berum virðingu fyrir líkama okkar þá hugsum við vel um hann. Við treystum þeim merkjum sem hann sendir okkur og svörum með viðeigandi hætti. Þegar við erum svöng eða þreytt þá gefum við líkama okkar það sem hann þarfnast. Við reynum ekki að sigrast á honum, pína hann áfram eða refsa honum.
Líkamsvirðing vísar líka til þess að allir líkamar eiga rétt á sömu virðingu. Þetta orð er herör gegn þeim fordómum og mismunun sem almennt ríkja í tengslum við líkamsvöxt.
Líkamsvirðing er mannréttindayfirlýsing. Við eigum öll rétt á því að lifa í sátt við okkur sjálf og líða vel í eigin skinni.
Sigrún Daníelsdóttir
Ummæli (2)
Þorbjörg og Heiða // 13.11 2009 kl. 16:11
Sæl Sigrún, við komum á fyrirlestur hjá þér í síðustu viku í Háskóla Íslands. Við fengum netfangið þitt og ætluðum að senda þér upplýsingar um það sem við erum að gera, en týndum miðanum. Gætirðu nokkuð sent okkur línu með netfanginu þínu?
bestu kveðjur Þorbjörg og Heiða
Ellen // 10.3 2010 kl. 19:53
Sæl Sigrún,
Þakka þér fyrir mjög góðan vef. Ég rakst á eina facebook síðu sem ég vill benda þér á. Ég veit eiginlega ekki hvað ég á að segja um þessa síðu, ég er alveg orðlaus. Síðan kallast „I hate fat girls who think they are the hottest person alive“ Síðan er með 514.401 aðdáenda sem gefur góða vísbendingu um hversu leyfilegir fitufordómar eru. Hér er slóðin á síðuna: http://www.facebook.com/pages/I-Hate-Fat-Girls-Who-Think-They-Are-The-Hottest-Person-Alive/177792239203?v=feed&story_fbid=271457089203
Bestu kveðjur
Ellen
Rita ummæli