Er það virkilega? Hvaða erindi?
Fyrirtækið ja.is, sem gefur m.a. út Símaskrána, hlaut viðurkenninguna „Gæfusporið“ hjá FKA, Félagi kvenna í atvinnurekstri, í síðustu viku. Þar eru í forsvari Hafdís Jónsdóttir, annar eigenda World Class, og Svava Johansen, eigandi NTC sem rekur m.a. verslunina 17. Í forsvari fyrir ja.is eru nokkrar konur og einn karl.
Í lok september 2010 var kunngert að einn umdeildasti maður samtímans ætti að vera andlit og ímynd Símaskrárinnar fyrir árið 2011. Mótbárur þeirra sem voru ósáttir við það voru hunsaðar – enda voru það bara einhverjir „pappakassar sem höfðu rass í staðinn fyrir andlit“, eins og ímyndin sagði svo hressilega. Gæfuspor?
Símaskráin kom svo út um miðjan maí 2011 og hlaut vægast sagt neikvæða athygli þótt alltaf séu þó nokkrir sem halda að útlit skipti meira máli en innihald. Fljótlega kom í ljós að ímyndin var ekki bara fölsuð vara heldur stórgölluð að auki.
Nú reynir ja.is að klóra yfir mistökin með því að gefa límmiða til að líma yfir ímyndina. Um þetta má lesa hér, hér og hér. Aðeins nokkrum dögum eftir afhendingu „Gæfusporsins“ er reynt að klóra yfir klúðrið með enn meira klúðri. Ekki beint gæfulegt spor.
Um leið og Símaskráin kom út um miðjan maí í fyrra fengu 18 konur og 1 karlmaður í starfsstöð ja.is á Akureyri reisupassann. Það átti að „hagræða“ og loka starfsstöðinni. Áður hafði starfsstöðvum ja.is á Ísafirði og Egilsstöðum verið lokað, væntanlega líka í hagræðingarskyni. Gæfuspor? Líklega fer það eftir því hvernig á málið er litið. Ef það er gæfuspor að reka tugi kvenna úr vinnu til að eigendur fái meira í eigin vasa má sjálfsagt líta þannig á það.
Ímynd ja.is hefur einnig verið ímynd 365 miðla um árabil. Hvort sem það var til að eiga fyrir launum hennar eða í „hagræðingarskyni“ sagði fyrirtækið upp síðustu prófarkalesurum skjátexta hjá miðlinum. Tveimur konum. Skítt með íslenskt mál – málvillur, innsláttarvillur og annan ósóma sem prófarkalesarar leiðrétta – ímyndin verður að vera í lagi.
En ég spyr: Hvert er siðferðilegt og samfélagslegt hlutverk fyrirtækja, hvort sem þau eru í almannaeigu eða einkaeigu? Hvaða máli skiptir lúkkið og ímyndin ef innihaldið er ekkert – eða í besta falli stórgallað – og innrætið afleitt?
„Hann á erindi við þjóðina“ – Gæfuspor FKA og ja.is
Lára Hanna Einarsdóttir