Höfundur

    Lára Hanna Einarsdóttir

Viltu styrkja síðuhöfund?

Auglýsingar

Ég ákæri!

Þetta er síðasti RÚV-pistillinn minn. Flestir pistlarnir sem ég hef birt hér undanfarið, bæði RÚV- og Smugupistlar, fela í sér harða gagnrýni á ríkisstjórnarflokkana vegna ýmissa mála, kannski þó einkum orku- og auðlindamála. Þetta eru gríðarlega mikilvæg mál sem ég hef reynt að vekja fólk til vitundar um í nokkur ár með misjöfnum árangri. Þau varða búsetuskilyrði og velferð komandi kynslóða óralangt fram í tímann – en valdhafar virðast ekki enn geta horft nema fram að næstu kosningum.

Í síðustu viku birti Skipulagsstofnun sameiginlegt mat á umhverfisáhrifum álvers á Bakka við Húsavík, Þeistareykjavirkjunar, Kröfluvirkjunar II og háspennulína frá Kröflu og Þeistareykjum að Bakka við Húsavík. Þessi skýrsla er merkileg að mörgu leyti. Skipulagsstofnun notar í henni alvarlegustu orðin sem hún getur og metur framkvæmdirnar svo skelfilegar að það hálfa væri meira en nóg. Á mannamáli segir hún einfaldlega að það væri óðs manns æði að virkja eins og áætlað er fyrir norðan. Eins og margir muna var ekki heimilað að meta framkvæmdir sameiginlega hér fyrir sunnan í tengslum við Helguvíkurálver (af lagatæknilegum ástæðum, ef ég man rétt), en ég er handviss um að niðurstöðurnar hefðu ekki verið síður alvarlegar ef það hefði verið gert.

Í gær birti orkubloggarinn Ketill Sigurjónsson magnaðan pistil sem hann kallar Porter og skammsýnir alþingismenn. Hversu mikið sem þið hafið að gera næstu dagana, ágætu lesendur – gefið ykkur tíma til að lesa pistil Ketils frá upphafi til enda OG smella á ítarefnið sem hann vísar til í pistlinum með tenglum. Þetta er stórmerkileg lesning og sýnir okkur svo ekki verður um villst að þrátt fyrir hrunið hafa alþingismenn ekkert lært. Þeir eru nú þegar búnir að steingleyma Skýrslunni, stunda grímulausar atkvæðaveiðar og pólitískt plott á kostnað okkar og afkomenda okkar. Þeir víla ekki fyrir sér að afhenda nýtingarrétt auðlinda þjóðarinnar og framtíðararðinn af þeim, rétt eins og þeir gerðu hér fyrir sunnan. Smákóngapólitíkin er enn í algleymingi og enginn sýnir fyrirhyggju eða skynsemi.

Ég bið fólk lengst allra orða að minnast þess, að Ísland er sameign okkar allra. Það sem verið er að gera á norðurlandi kemur okkur öllum við, rétt eins og það sem gert var fyrir austan og það sem verið er að gera hér fyrir sunnan. Við búum í litlu, fámennu landi og við verðum að standa saman og vinna að hagsmunum heildarinnar. Hreppa-, kjördæma- og landsbyggðar-þéttbýlisríg verður að linna og við verðum að fara að hugsa sem ein heild, eitt samfélag, eitt land.

Morgunútvarp Rásar 2

Pistill í Morgunútvarpinu á Rás 2 – 2. nóvember 2010

Ágætu hlustendur,

Ég ætla að taka mér fræg orð í munn og segja: Ég ákæri!“ Listi hinna ákærðu er langur og ákæruatriðin mörg en hér ætla ég aðeins að beina orðum mínum og ákæruskjali til ríkisstjórnarflokkanna tveggja og fjölmiðla – í einu máli.

Við erum líklega ansi mörg sem erum orðin langþreytt á vesaldómi stjórnarflokkanna hvað varðar eignarhald á auðlindum þjóðarinnar og tregðu þingmanna og ráðherra til að setja sig inn í mál og gera eitthvað í þeim.

Í stað þess að spyrna við fótum strax vorið 2009, þegar ljóst var að kanadíska fyrirtækið Magma Energy ætlaði að kaupa HS Orku, hefur ríkisstjórnin dregið endalaust að taka afgerandi ákvarðanir í þágu þjóðarinnar og stöðva hið stórhættulega ferli sem einkavæðing orkufyrirtækja og nýtingarréttar auðlindanna er.

Skipaðar eru nefndir og starfshópar sem skila niðurstöðum. En ekkert er gert með niðurstöðurnar og vissir fjölmiðlar komast upp með að rangtúlka þær að vild. Enginn leiðréttir bullið.

Í gær var eina ferðina enn fullyrt í fjölmiðli að niðurstaða svokallaðrar Magma-nefndar, sem falið var að skera úr um lögmæti eignarhalds skúffufyrirtækis á HS Orku, hafi verið sú að kaupin væru lögmæt. Það er alrangt. Þrátt fyrir að hið rétta hafi komið fram á ýmsum vettvangi og í netmiðlum kjósa stærri fjölmiðlar að hunsa sannleikann og segja þjóðinni ósatt.

Ég ætla að lesa hér örstuttan kafla úr skýrslu nefndarinnar, sem virðist gjörsamlega hafa farið fram hjá bæði fjölmiðlum og ríkisstjórn, en hér segir meðal annars: Þau álitamál sem hér hafa verið reifuð eru lagalega flókin en varða jafnframt ríka almannahagsmuni. Það er niðurstaða nefndar um orku- og auðlindamál að það sé ekki á færi annarra en dómstóla að kveða endanlega upp úr um hvernig beri að líta á staðreyndir í máli sem þessu og hvaða túlkun laganna sé rétt.“

Í niðurstöðum nefndarinnar kom nefnilega mjög skýrt fram að þau lög sem fjalla um auðlinda- og orkumálin eru svo loðin, mótsagnakennd og óskýr að ekki hafi verið mögulegt að komast að niðurstöðu um lögmætið og því þurfi að skera úr um Magma-málið fyrir dómstólum. Skýrara gæti það ekki verið og mér er hulin ráðgáta hvers vegna fjölmiðlar kjósa að segja ósatt um málið.

Nú eru líka blikur á lofti í virkjanamálum á Norðurlandi þar sem hugmyndir eru uppi um að erlendir einkaaðilar komi að byggingu virkjana strax frá upphafi – og eigi þá auðvitað virkjanirnar. Þvert ofan í alla skynsemi og fyrirhyggju er þar meira að segja verið að tala um erlendar álbræðslur sem myndu þá selja sjálfum sér orkuna og stýra verðmyndun á henni. Og til að kóróna fíflaskapinn vinnur að þessum hugmyndum fjárfestingabankinn Saga Capital sem var bjargað frá gjaldþroti eftir hrun með vaxtalausu láni frá skattborgurunum og hefur verið duglegur að ráða til starfa ýmsa vafasama hrunverja.

Nú spyr ég: Hvað gengur ríkisstjórninni til með því, að taka ekki ákveðið í taumana nú þegar? Hún á að leggja Magma-málið fyrir dómstóla, setja ótvíræð lög um eignarhald og skynsama nýtingu á auðlindunum og kæfa þessa endemis vitleysu fyrir norðan í fæðingu.

Ég spyr líka: Hvað gengur fjölmiðlunum til með því, að segja þjóðinni ítrekað ósatt um þessi mál í stað þess að gegna skyldu sinni við að grafa upp og segja sannleikann?

Er nokkur furða að fylgið hrynji af ríkisstjórninni?

***************************************************************

Hér skal tekið fram að eftir birtingu pistilsins hafði Brynhildur Ólafsdóttir, forstöðumaður samskiptasviðs Saga fjárfestingabanka, samband við mig og vildi leiðrétta þetta með vaxtalausa lánið. Hún sagði að téð lán hefði verið hluti af hinum svokölluðu „ástarbréfum Seðlabankans“ og Saga banki væri sá eini sem hefði borgað af láninu. Ég skildi mest lítið af því sem hún sagði og þeim, sem vilja fræðast nánar um málið, er bent á að hafa samband við Brynhildi.

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is