Höfundur

    Lára Hanna Einarsdóttir

Viltu styrkja síðuhöfund?

Auglýsingar

Menn og málefni

FjölmiðlarStundum getur verið erfitt að lifa. Ekki grunaði mig þegar ég byrjaði að tjá mig opinberlega hér á blogginu að með tíð og tíma myndi það koma fyrir að  ég sjálf yrði meira til umræðu en málefnin sem ég skrifa um. Mér finnst þetta afleitt. Vona að mér takist þó engu að síður að vekja athygli á þeim málum sem ég fjalla um hverju sinni.

Brotthvarf mitt sem pistlahöfundar á RÚV hefur dregið dilk á eftir sér. Ég tók sérstaklega fram í tveimur pistlum þar sem ég fjallaði um málið að í mínum huga snerist það ekki um mig eða mína persónu og skýri það nánar – sjá hér og hér. Mér finnst það ennþá.

Ég sendi bréf skömmu eftir hádegi á laugardegi sem ég birti opinberlega á hádegi, nánar til tekið kl. 12:28, á miðvikudegi – fimm sólarhringum síðar. Það bréf má sjá hér. Tæpum klukkutíma eftir birtingu pistilsins, eða kl. 13:22 barst mér svar frá RÚV, sjá hér að neðan. Ég hafði hugsað mér að klára pistlabirtingu haustsins eins og ég nefndi í þeim fyrsta, og ljúka síðan þessu máli með að endurbirta mitt bréf og svarið við því.

En í gær barst yfirlýsing frá starfsfólki RÚV sem ég sá að var birt á Smugunni í gær og á Eyjunni í morgun. Tilefnið er undirskriftarsöfnun á síðunni uppsögn.com, sem bréfritarar virðast telja að snúist aðeins um mig og uppsögn mína. Ef betur er að gáð snýst hún um lýðræðislegar skyldur RÚV og vísar þar m.a. í frambjóðendur til stjórnlagaþings, en úr því máli ætlar RÚV að bæta á einhvern hátt. Seinna atriðið, skoðanakúgun undir yfirskyni hlutleysis, er m.a. tilvísun í mitt mál og væntanlega fleiri. Ég tek skýrt fram að ég átti ekki hugmyndina að undirskriftarlistanum, vissi reyndar ekkert um hann fyrr en skömmu áður en hann var birtur þegar ég var beðin um að benda á náttúruverndarfólk til að vera með á listanum og að skrifa undir hann sjálf.

Mér finnst leitt að þetta mál sé látið snúast um mig, því það snýst um meiri og stærri hluti en svo. Í mínum huga snýst það um mál- og tjáningarfrelsi eins og lesa má í pistlunum sem ég vísa í hér að ofan. Í öðrum þeirra segi ég m.a. frá því að RÚV-pistlarnir mínir birtust í Smugunni í nóvember og desember 2009 – án endurgjalds eða athugasemda af hálfu RÚV.

Þegar mér var boðið að skrifa pistla í Smuguna gegn gjaldi í lok september spurði ég hvort Smugan vildi þá ekki birta RÚV-pistlana líka. Texti pistlanna var hættur að birtast á vefsíðu RÚV með hljóðupptökunni eins og var framan af og bloggsíðan mín lá niðri, en á henni hafði ég ævinlega birt RÚV-pistlana, alveg frá upphafi, og haft hljóðskrá hvers pistils með. Þetta þáði Smugan, en greiddi ekki fyrir þá, aðeins fyrir frumsömdu helgarpistlana eins og eðlilegt er.

Það er því alrangt sem ég hef séð nefnt í bloggum og athugasemdum á netinu að ég hafi tvíselt pistlana. Það gerði ég alls ekki og hef aldrei gert. Ég bað sjálf Smuguna um að birta RÚV-pistlana, henni að kostnaðarlausu, til að textinn birtist einhvers staðar „á prenti“ líka, enda hljóta pistlahöfundar – rétt eins og aðrir höfundar hvers konar texta – að eiga höfundarrétt að skrifum sínum. Þetta hafa aðrir pistlahöfundar RÚV gert á undan mér, t.d. Illugi Jökulsson sem birti sína RÚV-pistla í Tímanum (eða Degi-Tímanum) án þess að vera sakaður um framsóknarmennsku. Og Karl Th. Birgisson gaf marga af sínum RÚV-pistlum út í bókinni Orð í eyra sem ég á hér uppi í hillu.

Eins og ég segi í bréfi mínu til RÚV og lesa má hér vita allir sem vilja vita að ég tengist engum stjórnmálaflokki. Ég tala ekki fyrir hönd annarra en sjálfrar mín og minna eigin skoðana. Endalaust má svo deila um hvort þær skoðanir hallast til hægri eða vinstri, norður eða niður. Ég er afar ósátt við þá tilhneigingu sem ríkt hefur að troða öllum í einhver hólf. Sem hugsandi einstaklingur á hver og einn að geta kynnt sér mál og tekið afstöðu til þeirra samkvæmt sinni eigin sannfæringu án þess að fá á sig einhvern stimpil. Í athugasemdum á blogginu hef ég verið kölluð samfylkingarkelling, argasti kommi og jafnvel anarkisti – sem segir ekkert um mig en allt um athugasemdaskrifarana.

Ég skil vel að aðstandendum Smugunnar sé misboðið þegar skrif í hana eru notuð til að afþakka pistla hjá RÚV. Eins og sjá má í Ósamrýmanlegt hlutverk - Morgunblaðið 12. nóvember 2010viðtalinu við Pál Magnússon, útvarpsstjóra, sem ég set inn hér til hliðar (smellið í læsilega stærð) þá er ekki sama hver miðillinn er og hvort hann er álitinn „málgagn“. Samkvæmt þessu hefði að því er virðist ekki verið brugðist eins við fólki sem skrifar í Pressuna, sem hingað til hefur verið fjármögnuð af auðmönnum og ritstýrt af framsóknarmönnum – en ekki er vitað hver á nú eftir hlutafjáraukningu. Eða í Moggann eða á mbl.is, sem er miðill í eigu kvótaeigenda og ritstýrt af einum aðal hrunvaldinum. (Ég var með bloggið á mbl.is í tvö ár án þess nokkurn tíma að vera orðuð við Sjálfstæðisflokkinn mér vitanlega.) Eða í Fréttablaðið eða á visir.is sem er í eigu Jóns Ásgeirs, a.m.k. ennþá. Í Pressuna skrifa þingmenn ýmissa flokka, alls konar hagsmunaaðilar og óháðir einstaklingar. Sama má segja um Eyjuna, sem og Fréttablaðið/visir.is og Smuguna, bæði sem fastir pennar og með aðsendum greinum. Smugan heldur ekki úti bloggi eins og áðurnefndir miðlar.

Og það skal tekið fram að vinkona mín, Lilja Skaftadóttir, er einn eigenda Smugunnar og reyndar einn af stærstu eigendum DV einnig. Hún er mikil áhugamanneskja um frjálsa og óháða fjölmiðlun sem og mál- og tjáningarfrelsi. Það er ég líka.

Mér finnst óendanlega hvimleið og ósanngjörn þessi tilhneiging samfélagsins að stimpla fólk og líta þannig á að einstaklingar geti ekki tjáð sig nema vera málpípur einhverra annarra en sjálfra sín. Það hvarflar varla að neinum að allir Pressupennar séu málpípur auðmanna eða Framsóknarflokksins eða að t.d. flokksbundnir samfylkingarmenn séu „á mála“ eða tengdir Vg sérstaklega þótt þeir skrifi reglulega pistla í Smuguna. Hvað þá að allir Moggabloggarar séu hallir undir Sjálfstæðisflokkinn eða greinahöfundar og bloggarar á Fréttablaðinu og Vísi séu „Baugspennar“ eða ESB-sinnar eins og ritstjórinn. Það væri fáránlegt að hugsa þannig og ég held að allir sjái það.

MálfrelsiMín bjargfasta skoðun er sú, að öllum eigi að vera frjálst að tjá sig hvar sem þeim sýnist án þess að vera dregnir í dilka eða eiga á hættu að það bitni á þeim á einhvern hátt. Umfjöllunarefnið hverju sinni á að vera aðalatriðið, ekki hvar viðkomandi umfjöllun birtist.

Ég bað ekki um leyfi til að birta pistla á Smugunni, það hvarflaði einfaldlega ekki að mér að ég mætti ekki birta skrif mín hvar sem væri. Kannski voru það mín mistök, mín einfeldni – birtingarmynd þeirrar sannfæringar minnar að í lýðræðisþjóðfélagi þar sem á að ríkja tjáningarfrelsi sé öllum frjálst að tjá sig um hvað sem þeir vilja og hvar sem þeir vilja án þess að einhverjar afleiðingar hljótist af því. Ég gerði mér vonir um að íslenskt samfélag væri að breytast, en líklega hefur mér skjátlast.

Mér svíður einna sárast að hvergi í allri umræðunni hef ég séð nokkurn mann nefna umfjöllunarefni þeirra pistla sem málið snýst um. Gagnrýnina á ríkisstjórnina og fréttamat fjölmiðlanna, Magma-málið og Ross Beaty, auðlindasöluna, óskiljanlega forgangsröðun þingmanna og fleira. Ég hef staðið í þeirri trú að málefnin skipti meira máli en persóna pistlahöfundar eða miðillinn þar sem skrifin birtast og fer ekkert ofan af því. Vonandi lærist okkur með tímanum að líta þannig á málin og förum að hugsa og haga okkur samkvæmt því. Ræða málefnin, ekki manneskjurnar.

En hér er svarið sem mér barst tæpum klukkutíma eftir að ég birti fyrst bréf mitt til RÚV. Ég bið fólk að lesa það aftur áður en það les svarið. Þessu máli er lokið af minni hálfu, ég ber engan kala til RÚV eða starfsmanna þess – og vonandi er það gagnkvæmt. Ég kæri mig ekkert um að eiga í útistöðum við fólk og mér þykir alveg jafnvænt um RÚV eftir sem áður. Ég mun verja stofnunina ef mér þykir ómaklega að henni vegið og þakka það sem vel er gert eins og ég gerði t.d. í pistlunum Sparnaðarhugmyndir framsóknarmanns og Athyglisverð umræða um RÚV og Ég þakka fyrir mig. En jafnframt held ég líka áfram að gagnrýna jafnt RÚV og aðra fjölmiðla ef mér finnst þeir standa sig illa eins og ég hef margoft gert, nú síðast í pistlunum Glæpur eða gáleysi, Sofandi að feigðarósi – aftur? og Fjölmiðlar og ábyrgð þeirra. Ég vil að RÚV verði áfram í þjóðareigu þótt líkast til verði aldrei allir á eitt sáttir um stjórnun þess, efnisval eða annað. Þannig hefur það alltaf verið og verður væntanlega áfram.

Ef ég held áfram að tjá mig á opinberum vettvangi verður það þar sem mér sýnist og hjá þeim miðlum sem vilja birta skrif mín, burtséð frá því hverjir aðrir skrifa í þann miðil. Hér eftir sem hingað til verða það málefnin sem skipta öllu máli. Mér þykir leitt ef lesendum finnst trúverðugleiki minn fara eftir því hvar ég tjái mig, ekki um hvað og hvernig. En eins og ég sagði í upphafi – stundum getur verið erfitt að lifa.

Sent: Wednesday, November 10, 2010 1:22 PM

Sæl Lára Hanna.

Það er rétt að við höfum almennt verið ánægð með pistlana þína. Málið snýst ekki um það. Hlutleysi pistlahöfunda er mikilvægt og nú þegar þú ert orðin fastur penni á smugan.is,  vefriti sem kostað er af Vinstri grænum og haldið úti af flokknum, er ekki lengur hægt að færa rök fyrir því að þú tengist ekki stjórnmálaflokki. Aðrir fastir pennar á smugunni eru meðal annarra Ásmundur Daði Einarsson, þingmaður Vg og Björn Valur Gíslason, þingmaður Vg.  Smugan er málgagn stjórnmálaflokks.  Við höfum af og til fengið símtöl og tölvubréf þar sem þú ert gagnrýnd fyrir að tala máli vinstrimanna. Við höfum svarað því til að þú tengist engum flokki. Það getum við ekki fullyrt lengur.  Og þess vegna var ákveðið að hætta samstarfi við þig.

  1. Tímasetningin er tilviljun.  Eins og ég sagði þér þá vissi ég ekki fyrr en um miðja síðustu viku, að þú værir að vinna fyrir Smuguna. Hefði ég vitað það fyrir rúmum þremur vikum hefðir þú ekki þurft að velja Rúv umfram framboð til stjórnlagaþings.
  2. Þeir sem tengjast HS Orku koma þessu máli ekkert við. Reyndar hafa hagsmunaaðilar ekki kvartað undan pistlum þínum. Það hefði heldur engu máli skipt þó þeir hefðu kveinkað sér undan þeim. Við látum slíkt ekki á okkur fá. Höldum ótrauð áfram þrátt fyrir gagnrýni.
  3. Eins og ég sagði í byrjun bréfsins höfum við almennt verið ánægð með pistlana þína.
  4. Það er þegar búið að birta nokkra pistla eftir þig á Smugunni. Þar á meðal pistla sem þú hafðir flutt í Morgunútvarpinu og RÚV greitt þér fyrir.  Það er of seint að breyta því.  Þú ert að vinna á vef sem kostaður er af stjórnmálaflokki.
  5. Sú staðreynd að þú skrifar pistla á fréttavef Vg býður þeirri hættu heim að hlustendur Morgunútvarpsins líti svo á að um boðskap Vg sé að ræða. Þú segist eiga erfitt með að skilja þessa ákvörðun en segjum sem svo að þú hefðir, í lok lesturs pistla þinna í Morgunútvarpinu, tilkynnt hlustendum að þeir gætu lesið pistilinn á smugan.is. Hefði þér fundist það eðlilegt?

Innihald pistlanna hafði ekkert með það að gera að samstarfinu við þig var hætt. Það er fáránlegt að halda slíku fram. Þöggunin sem þú minnist á nær ekki inn fyrir veggi fréttastofunnar. Þú veist betur en að gefa slíkt í skyn. Í fréttum og öllum þáttum fréttastofunnar heyrast gagnrýnisraddir daglega. Og fólk gagnrýnir allt milli himins og jarðar. Þú ert ekki ein um það að vera gagnrýnin Lára Hanna.

Ég óska þér alls hins besta á nýjum vettvangi

Kveðja,
Margrét Marteinsdóttir

*****************************************************

„Því hefur verið haldið fram að íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með þvi að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“ Halldór Laxness í Innansveitarkróníku

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is