Höfundur

    Lára Hanna Einarsdóttir

Viltu styrkja síðuhöfund?

Auglýsingar

Fjölmiðlar og ábyrgð þeirra

Ég hef sagt það áður og segi það enn – ég skil ekki fréttamat íslenskra fjölmiðla. Þeim finnst mikilvægara að etja saman fólki sem er ósammála um einhver smáatriði en að grafast fyrir um eitt alvarlegasta hagsmunamál Íslendinga – söluna á auðlindunum, lögmæti skúffufyrirtækja í Svíþjóð og raunverulegan arð af álbræðslum og hvað þær kosta Íslendinga bæði í beinhörðum peningum og eyðilagðri náttúru.

Eins og sjá má í pistlinum hér að neðan vitna ég í Aidan White, framkvæmdastjóra alþjóðasamtaka blaðamanna sem ræddi um hlutverk fjölmiðla gagnvart almenningi og hvernig þeir brugðust gjörsamlega á árunum fyrir hrunið. Eru þeir að bregðast okkur aftur? Verðum við nútímanýlenda eins og Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði, sagðist óttast ef heldur sem horfir?

Fjölmiðlar segja ekki ennþá frá því sem er að gerast og spyrja ekki ennþá tiltekinna spurninga. Ekki einn einasti þeirra hefur fjallað um það sem ég minntist á í síðasta pistli – hvernig Ross Beaty gengur fram við að selja auðlindina á Reykjanesi og lofar gríðarlegum arði í þúsundir ára – í vasa hluthafa Magma Energy, ekki íslensku þjóðarinnar. Fjölmiðlarnir birta bara fréttatilkynningar frá HS Orku (þ.e. Magma Energy) um hvað allt sé frábært og æðislegt, flytja einhliða fréttir og viðtöl við menn sem eru að selja eitthvað sem ekki er til. Rétt eins og bankamenn og útrásarvíkingar fyrir hrun.

Eins og við öll vitum geta fjölmiðlar stjórnað upplýsingaflæði til almennings, mótað skoðanir fólks og dregið upp mynd af sannleikanum. Þeir gerðu það ekki fyrir hrun, þvert á móti, svo íslenskur almenningur stóð í þeirri trú að hér væri allt í himnalagi. Þeir gera það ekki ennþá – og alls ekki í þessu risastóra hagsmunamáli allra landsmanna og afkomenda okkar um ókomin ár og áratugi. Eru þeir að bregðast þjóðinni aftur?

Eva Joly sagði að fara ætti fram sakamálarannsókn á sölunni á HS Orku. Hún er þrautreynd í svika- og spillingarmálum og þekkir þau af löngu færi. Ekki einn einasti fjölmiðilll hefur farið ofan í saumana á þessari yfirlýsingu hennar og kannað hana nánar. Enginn einu sinni spurt hana hvað hún hafi fyrir sér í þessu. Hér ríkir ærandi þögn vanhæfra fjölmiðla sem sinna ekki þjóðfélagslegu hlutverki sínu og þeirri skyldu sinni að vernda hagsmuni fólksins í landinu.

Og áður en við vitum af verðum við orðin nútímanýlenda kínverskra og kanadískra auðmanna og stórfyrirtækja og spyrjum: „Hey! Hvað gerðist eiginlega? Af hverju sagði okkur enginn frá þessu? Af hverju gerði enginn neitt í þessu?“ Alveg nákvæmlega eins og í hruninu.

Morgunútvarp Rásar 2

Pistill í Morgunútvarpi Rásar 2 – 19. október 2010

Ágætu hlustendur,

Ég veit ekki hvort þið munið eftir því, en í maí 2009 kom hingað til lands Aidan White, framkvæmdastjóri alþjóðasamtaka blaðamanna. Erindið var að ræða ábyrgð og áhrif blaðamanna. Fjölmiðlar geta nefnilega ráðið hvað er efst á baugi og mótað skoðanir fólks eftir því hvað þeir fjalla um og hvernig.

Í aðdraganda hrunsins brugðust fjölmiðlar almenningi og Aidan White spyr í Kastljósi: „Hvers vegna sögðu fjölmiðlar ekki frá því sem var að gerast? Hvers vegna spurðu fjölmiðlar ekki tiltekinna spurninga?“ White segir fjölmiðla hafa verið andvaralausa og að þeir hafi brugðist skyldu sinni á árunum fyrir hrun. Í lokaorðum sínum í viðtalinu í Kastljósi sagði White þetta: „Ein aðallexían sem á að koma út úr öllu þessu hræðilega ferli er sú, að fjölmiðlar eiga að tala máli þjóðfélagsins í heild. Þeir eiga að gegna þjóðfélagslegu hlutverki og vernda hagsmuni fólksins.“

Mér hefur orðið hugsað til þessara orða undanfarna daga þegar ég rýni í umfjöllun fjölmiðla um orð og yfirlýsingar Evu Joly á blaðamannafundum og í viðtali í Silfri Egils á sunnudaginn. Ég skrifaði ítarlegan pistil í vefmiðilinn Smuguna um blaðamannafundinn og pínlega þögn fjölmiðla um hann. Þeir höfðu meiri áhuga á að vita hver greiddi fyrir kveðjuhóf Joly en því sem hún sagði á fundinum. Ég ætla því að gera viðtalið í Silfri Egils að umræðuefni hér.

Í stórum dráttum talaði Eva Joly um þrennt í Silfrinu: Í fyrsta lagi glæparannsóknir embættis Sérstaks saksóknara, í öðru lagi söluna á auðlindum Íslendinga og kaupandann, Magma Energy og í þriðja lagi skoðun sína á inngöngu Íslendinga í ESB. Aðeins eitt af þessum þremur atriðum hefur fengið nokkra umfjöllun í fjölmiðlum – skoðun Joly á inngöngu í ESB.

Ég hef spurt sjálfa mig hvort sé nú mikilvægara fyrir þjóðfélagið í heild – sú staðreynd að Evu Joly finnist að við eigum að ganga í ESB eða alvarlegar viðvaranir hennar um auðlindasöluna og Magma Energy. Hvort skiptir okkur meira máli?

Eva Joly sagði meðal annars þetta um Magma-samninginn og styðst ég við þýðingu Bárðar R. Jónssonar: „Ég vona að við náum að sýna fram á að þetta er heimskulegur samningur fyrir Íslendinga. Evrópskar reglugerðir fara ekki fram á að einkavæða orkuiðnaðinn. Ykkur ber engin skylda til að taka mark á fyrirtæki sem notar sænskt skúffufyrirtæki til að koma sér fyrir á Íslandi.“ Þá vitum við það.

En Eva Joly sagði líka þetta: „Ég tel mjög mikilvægt að nefna, að þetta verkefni var skipulagt af sama fólkinu og einkavæddi bankakerfið ykkar, bjó til úr því bólu og lagði líf fólks í rúst. Því skylduð þið halda áfram og einkavæða orkugeirann með nákvæmlega sama fólkinu, af nákvæmlega sömu ástæðum þar sem almannahagsmunir eru ekki hafðir í fyrirrúmi? Þetta ætti að stöðva.“

Og hún sagði fleira: „Ég á ekki orð yfir samningnum. Þið gefið frá ykkur jarðhitaréttindi ykkar til kanadísks fyrirtækis sem hefur enga reynslu af jarðhitavinnslu. Þið seljið þetta með kúluláni rétt eins og bankarnir gerðu. Þetta eru afleit viðskipti.“

Eva Joly er þrautreynd í meðferð spillingarmála og fljót að skynja svikamyllur. Við eigum að hlusta með athygli þegar hún talar og taka hana grafalvarlega.

Og mér finnst einhvern veginn að það sem hún sagði um einkavæðingu auðlindanna og Magma Energy sé miklu stærri frétt og skipti þjóðina margfalt meira máli en skoðun hennar á inngöngu Íslands í ESB.

Hvað finnst ykkur?

*********************************************************************

Aidan White i Kastljósi 28. mai 2009

Aidan White i fréttum Stöðvar 2 – 28. mai 2009

Eva Joly um HS Orku, Ross Beaty og Magma Energy, auðlindir og AGS í Silfri Egils 17. október 2010

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is