Hvaða töggur eru í þjóð sem nánast gefur auðlindir sínar, vitandi vits um að verið er að arðræna hana? Hvers konar þjóð lætur kyrrt liggja að braskarar láti auðlindir hennar ganga kaupum og sölum í erlendum kauphöllum? Hvers konar ríkisstjórn líður braskara að vaða uppi í erlendum fjölmiðlum og selja auðlindir þjóðarinnar með lygum og þvættingi til að auðga sjálfan sig? Hvers konar þjóð líður fjölmiðlum að þegja um þessa hlið mála? Maður spyr sig…
Pistill í vefritinu Smugunni – 16. október 2010
Nú hef ég skrifað um náttúruvernd, virkjanir, álbræðslur, auðlindir, einkavæðingu og þvíumlíkt í þrjú ár. En ég furða mig endalaust á áhugaleysi fjölmiðlanna á þessum málum og auðlindamálunum almennt. Meira að segja eftir Hrun, þegar hamrað var á að við ættum nú auðlindirnar okkar og værum því ekki á vonarvöl, horfa fjölmiðlar á eftir HS Orku og ferskvatninu í hendur erlendra braskara. Lyfta ekki litlafingri til að upplýsa þjóðina um arðránið og sumir hampa meira að segja og tala upp framkvæmdir sem eiga eftir að þurrausa orkuauðlindir og valda þjóðinni enn meira tjóni en nú þegar hefur orðið. Tala bara við annan aðilann, þann sem ætlar að græða, en minnist ekki orði á allar röksemdirnar sem mæla gegn framkvæmdunum. (Halló, Kristján Már!)
Tveir fundir voru haldnir á innan við viku um kaup Magma á HS Orku. Annar í tengslum við Magma-nefndina sem ég skrifaði um í pistlinum Glæpur eða gáleysi hér á Smugunni fyrir viku. Ég varð ekki vör við neina fjölmiðlaumfjöllun um hann nema á Smugunni og í Speglinum á Ríkisútvarpinu. Mér hefur þó kannski yfirsést eitthvað. Ævar Kjartansson hjá RÚV á þó líklega eftir að fjalla um fundinn. Aðrir fjölmiðlar þögðu þrátt fyrir að þar hafi margt athyglisvert komið fram sem þjóðin þarf að vita.
Hinn fundurinn var haldinn á miðvikudaginn og í honum fólst sú stórfrétt að Eva Joly, sem þá var hætt störfum sem ráðgjafi sérstaks saksóknara, slóst í lið með okkur sem höfum árangurslaust reynt að benda á glæpina sem verið er að fremja með gríðarlegum náttúruspjöllum, auðlindasölu og mögulegri ofnýtingu orkunnar. Það eina sem fjölmiðlar gripu á lofti um þann fund voru orð Evu Joly um að ef hún væri ríkissaksóknari á Íslandi myndi hún láta fara fram sakamálarannsókn á söluferli HS Orku. Punktur. Þrátt fyrir þessa grafalvarlegu yfirlýsingu fór ekki einn einasti fjölmiðill nánar í saumana á orðum Joly. Birtu bara andmæli Geysis Green Energy daginn eftir og gleymdu jafnvel að nafngreina talsmanninn. Allir vita þó að Joly er þrautreynd í meðferð svika- og spillingarmála og þegar hún finnur lykt af slíku og segir svo afdráttarlaust frá því er vert að sperra eyrun. Aðhafast jafnvel eitthvað. Þögnin er ærandi og aðgerðaleysið óskiljanlegt.
En Eva Joly sagði ýmislegt fleira áhugavert á fundinum. Hún er þingmaður á Evrópuþinginu og þekkir innviðina þar. Hún bar mjög ákveðið til baka þær fullyrðingar að ESB krefðist þess að aðildarríki einkavæddu orkuvinnslu sína og -dreifingu. Hún sagði að aðildarríkjum væri alfarið frjálst að haga slíku að vild. Þá vitum við það.
Joly benti jafnframt á að í tilskipun Evrópuþingsins nr. 2003/54 er undanþáguheimild til handa fámennum löndum þar sem uppskipting orkufyrirtækja í framleiðslu annars vegar og dreifingu hins vegar er ónauðsynleg ef viðskiptavinir eru færri en 100.000 eða þjóna litlum, einangruðum kerfum. Gerir fólk sér grein fyrir hvað þetta þýðir?
Þetta þýðir að uppskipting Hitaveitu Suðurnesja í HS Orku og HS Veitur var óþörf. Hitaveita Suðurnesja þjónaði örugglega ekki fleiri en 100.000 viðskiptavinum og hér erum við
ekki að telja hausa. Í enskri útgáfu tilskipunarinnar er talað um „connected customers“ og í íslensku þýðingunni heitir það „tengdum viðskiptavinum“. Þetta þýðir líka að fyrirhuguð uppskipting Orkuveitu Reykjavíkur ætti að vera óþörf. (Halló, Besti flokkur!)
Mín kenning er sú, að uppskipting orkufyrirtækja sé beinlínis gerð til að einkavæða framleiðsluþáttinn og að með fyrirhugaðri uppskiptingu OR sé verið að undirbúa sölu orkuveitunnar. Það gæti núverandi meirihluti í borginni hæglega komið í veg fyrir með því að skoða betur forsendurnar á bak við uppskiptinguna.
Eva Joly talaði um orkuverðið til stóriðju á Íslandi og tengingu þess við heimsmarkaðsverð á áli. Hún sagði álverð byggjast mikið á því að ekki verði kreppa í Kína og að hagfræðingar óttuðust að eftir mikla efnahagsbólu þar myndi hagkerfi Kínverja dragast saman og valda minni eftirspurn eftir áli sem lækkar álverð og þar með verð á raforku til ábræðslna á Íslandi.
Á fundinum fór Eva Joly yfir kaup Magma Energy á HS Orku. Hún minntist á blekkingar Ross Beaty um eilífa orku í söluræðunum sem ég sagði frá í pistlinum Glæpur eða gáleysi fyrir viku. Svo sagði hún í lauslegri þýðingu: „Þið veljið fyrirtæki eins og Magma, sem er stofnað 2008, og er með mjög ógagnsætt eignarhald þar sem 46,4% hlutur er í félagi sem kallast Sitka og er skráð í skattaskjóli svo þið munuð aldrei vita hverjir þeir eru. Svo sé ég á vefsíðu Magma að ónefndir hluthafar eiga 34,5%. Svo spyr ég mig hverjir þessir hluthafar eru sem eiga ekki fulltrúa í stjórninni því hana skipa menn sem eru tengdir Ross Beaty á einn eða annan hátt. Þetta er furðulegt.“
Og Joly hélt áfram: „Svo er það verðið. Þið gefið náttúruauðlindir ykkar manni sem hefur ekkert sannað. Hann stofnaði fyrirtækið 2008. Það kom út með tapi 2009 og framleiddi smáræði í Nevada. Ekkert í samanburði við ykkur hér. Hann hefur enga reynslu. Fyrirtækið er ekki vel fjármagnað og það þarf fjármagn til að reisa virkjanir og hvaðan kemur það? Þeir taka lán. Og þeir geta ekki borgað því ef upphæðir sem ég hef í höndunum eru réttar var mikill meirihluti greiddur í hlutabréfum í fyrirtæki sem er varla til ennþá. Hvers konar trygging er það? Hvers konar viðskipti eru það, þegar seljandinn fjármagnar kaupandann með eins konar kúluláni? Þetta eru ótrúlega vond viðskipti fyrir ykkur og þetta á að rannsaka. Það er tími til kominn að þið spornið við einkavæðingu auðlinda ykkar sem þið hafið ekkert upp úr heldur óþekktir aðilar með tengsl við þá sem sköpuðu þær aðstæður sem þið eruð í nú.“
Að lokum sagði Eva Joly þetta sem var eiginlega það eina sem fjölmiðlar tóku eftir: „Ef ég væri ríkissaksóknari hér myndi ég hefja sakamálarannsókn á þessum samningum.“ Mótmæli helsærðra GGE-manna birt daginn eftir og málið dautt. Hvað er að?
Enn og aftur minni ég á að Eva Joly er þrautreynd í að þefa uppi svik og spillingu – hún þekkir slíkt af löngu færi. Hún verður í ítarlegu viðtali í Silfri Egils á morgun, sunnudag. Ég hvet alla sem mögulega geta vettlingi valdið að hlusta vandlega á málflutning hennar þar.
Sjá ekki allir hvað er að gerast? Hvers konar sinnuleysi veldur því að ekkert er gert í þessum málum? Hvaða aumingjaskapur er það, að stimpla gjörning eins og skúffufyrirtækið í Svíþjóð sem löglega leið til að komast yfir auðlindir þjóðarinnar þegar meira að segja Magma-nefndin treysti sér ekki til að skera úr um lögmætið vegna þess hve lögin voru óljós og hve mjög þau stönguðust á? Lesið skýrslu nefndarinnar! Hvers vegna í ósköpunum er þetta mál ekki tekið fastari tökum í stjórnsýslunni og af kjörnum fulltrúum þjóðarinnar? Hvernig stendur á því að ríkisstjórnin hefur ekki ennþá hert löggjöfina og dregið skýrari línur? Auðlindirnar – orkan, vatnið og fiskurinn í sjónum – eru aleiga okkar. Gleymum því aldrei.
Og í öllum bænum – ekki svara með kjaftæðinu um að „þjóðin eigi auðlindirnar, það sé bara nýtingarrétturinn sem sé seldur“. Óskilgreindur nýtingarréttur til allt að 130 ára er ekkert annað en eignarhald.
Af hverju heykjast fjölmiðlar á að rannsaka þetta mál upp á eigin spýtur og upplýsa almenning um sannleikann? Hvers vegna er ekki er búið að kafa ofan í hluthafalista Magma Energy, heimsækja höfuðstöðvarnar í Toronto, kanna málflutning Ross Beaty, andmæla honum opinberlega og spyrja af hverju arðurinn af auðlindum íslensku þjóðarinnar ætti að enda í vösum andlitslausra fjárfesta sem geta braskað með fjöregg Íslendinga í erlendum kauphöllum? Hvers konar vesalingar erum við? Gerir fólk sér almennt ekki grein fyrir því hvað er í húfi? Hvað er fjórða valdið, fjölmiðlarnir, að hugsa? Þeir brugðust í aðdraganda Hrunsins og viðurkenndu það sjálfir. Bregðast þeir okkur aftur núna?
Ætla Íslendingar virkilega að fljóta sofandi að feigðarósi – enn og aftur?
*******************************************************************
Frá fréttamannafundi í Norræna húsinu 13. október 2010
1:4
2:4
3:4
4:4
Nýjasta viðtalið við Ross Beaty – Andstaðan mikla
Renewable Energy World 17. nóvember 2010
Lára Hanna Einarsdóttir

