Björk Guðmundsdóttir spurði ríkisstjórnina einfaldrar spurningar í þættinum Návígi á þriðjudagskvöldið: Ætlið þið að rifta sölunni á HS Orku til Magma Energy – eða ekki? Ekkert svar hefur borist við spurningunni og engir fjölmiðlar spyrja ráðherra eða ríkisstjórn hvort þeir ætli að leggja blessun sína yfir það, að þriðja stærsta orkufyrirtæki Íslendinga gangi kaupum og sölum í kauphöllinni í Toronto – og það meira að segja á fölskum forsendum ef marka má söluræður Ross Beaty hér að neðan.
Björk Guðmundsdóttir í Návígi 9. nóvember 2010
Hér fyrir neðan má sjá og heyra nokkrar söluræður Ross Beaty og viðhorf kanadískra fjölmiðla til hans. Hann er kallaður „sérfræðingur í jarðhitaorku“ þótt hann hafi ekki stofnað Magma Energy fyrr en í ársbyrjun 2008 og lítið sem ekkert vitað um hana fyrir þann tíma – a.m.k. aldrei unnið með slíka orku. Eftir því sem ég best veit hefur hann þó aldrei hlustað á til dæmis einn af reyndustu sérfræðingum Íslendinga á þeim vettvangi, Stefán Arnórsson, prófessor í jarðefnafræði, sem hefur 50 ára reynslu jarðorkuvísindum heima og heiman. Skýt inn einu viðtali við Katrínu Júlíusdóttur sem vísað er í í síðasta viðtalinu við Beaty. Í síðasta viðtalinu kemur einmitt fram viðhorf Beatys til sölu á auðlindum Kanada sem Björk og Þórhallur nefna í Návíginu.
10. september 2009
23. mars 2010
16. ágúst 2010
Katrín Júlíusdóttir – 14. september 2010
20. september 2010
Ætlar ríkisstjórn Íslands að láta viðgangast að íslenskum auðlindum sé prangað inn á erlenda fjárfesta með fölskum fagurgala og ósannindum? Að grímulaust sé logið til um möguleg megavött og fyrirhafnarlítinn stórgróða í þúsundir ára? Minnir þetta ekki einum of mikið á árin fyrir hrun þegar veruleikinn var í stöðugri andlitslyftingu þar til gríman féll? Er íslenska þjóðin sátt við þetta? Munum, að þetta er bara eitt orkufyrirtæki af mörgum.
Á meðan er þetta lagt fram á Alþingi.
Hver verða viðbrögð grænu, vænu ríkisstjórnarinnar? Ofan í hvaða skúffu var niðurstöðum Neista stungið?
Lára Hanna Einarsdóttir