Eina ferðina enn reynir á fjórða valdið, fjölmiðlana, í tengslum við Magma-málið. Og fjölmiðlafólk verður að átta sig á, að ekki nægir að hafa eitthvað eftir A, leita síðan álits B sem vísar orðum A á bug og málið er dautt – og láta þar við sitja. Sjálfstæð rannsóknarvinna, heimildaöflun og úrvinnsla er nauðsynleg – jafnvel þótt viðkomandi blaða- eða fréttamaður þurfi kannski að klípa nokkra klukkutíma af frítíma sínum til að klára verkið og setja sig inn í flókin mál. Auðlindamálin eru bara of mikilvæg framtíð þjóðarinnar til að neinn láti sitt eftir liggja.
Til að auðvelda öllum sem vilja kynna sér feril Magma-málsins eða rifja hann upp gerði ég lista yfir pistlana mína um það ár aftur í tímann. Bað líka Agnar Kristján Þorsteinsson og Öldu Sigmundsdóttur að gera slíkt hið sama, en þau hafa verið iðin við að skrifa um málið. Hér eru listarnir okkar í tímaröð.
******************************
Ég vek athygli á, að nánast í hverjum einasta pistli mínum er ítarefni – ýmist sýnilegt eða falið. Á bak við feitletranir eru slóðir í pistla, greinar, myndir eða annað efni sem viðkemur hverjum pistli. Þar sem flutningi bloggsins yfir á Eyjuna er ekki nándar nærri lokið í öllum smáatriðum er ekki víst að allir linkarnir virki. Auk þess eru athugasemdir í þeim sem ég er ekki búin að laga alveg úti á túni – vantar ýmist alveg eða koma bara inn að hluta. Það er gríðarleg vinna að laga alla pistlana að nýju umhverfi og ég er langt í frá búin að því. Í þeim tilfellum vísa ég á gamla Moggabloggið mitt – þar er hægt að slá inn heiti pistils í leitarstrenginn ofarlega vinstra megin á síðunni og fá upprunalega pistilinn með öllum athugasemdum og slóðum virkum (nema þeirra fjölmiðla sem hafa tekið efni út eða efni horfið af öðrum ástæðum).
Eru auðlindirnar okkar ekki sexí? – 10. júlí 2009
VARÚÐ! – Nýtt REI-mál í uppsiglingu! – 11. júlí 2009
Svikamyllan á Suðurnesjum – 13. júlí 2009
Fjöregginu fórnað – 18. ágúst 2009
Auðlindir á tombólu – Björg Eva – 21. ágúst 2009
Salan á auðlindum Íslendinga er hafin – 25. ágúst 2009
Hafa ráðamenn ekkert lært? – 26. ágúst 2009
Landráð af vítaverðu gáleysi? – 31. ágúst 2009
Fáránlegur farsi – 2. september 2009
Innihaldið í sænsku skúffunni – 14. september 2009
Súrrealískur og sögulegur fundur – 15. september 2009
Landsala og hórmang – 10. mars 2010
Auðlindasalan og nefndin – 18. mars 2010
Mikil er ábyrgð þeirra – 16. maí 2010
Af auðlindasölu, Magma og Ross Beaty – 18. maí 2010
Ofnýting í orkuvinnslu – 18. maí 2010
Þau tíðkast hin breiðu brosin – 20. maí 2010
Auðvitað eru þetta vísvitandi blekkingar! – 23. maí 2010
Lært af glötuðum áratug – Sigrún Davíðs – 23. maí 2010
Fjármögnun Magma – 24. maí 2010
Þaulhugsað leynimakk – 25. maí 2010
Aðgát skal höfð þegar rán er í vinnslu – 4. júní 2010
Að kaupa og selja land – 21. júní 2010
Auðlindasalan, nefndin og mistökin – 8. júlí 2010
Magma og skúffan í Svíþjóð – 9. júlí 2010
Afhjúpun eða ekki afhjúpun – 10. júlí 2010
Lagahyggja og lærdómur af Skýrslunni – 12. júlí 2010
ATH: Þetta er líklega ekki tæmandi listi og auk þessara pistla hef ég skrifað fjölmarga aðra um einkavæðingu og sölu auðlinda íslensku þjóðarinnar, t.d. ferskvatnið.
******************************
Þá eru það pistlar Agnars Kristjáns Þorsteinssonar. Hann setur líka inn talsvert ítarefni og linkar í ýmiss konar efni sem tengist málefni hvers pistils.
Þegar Sjálfstæðisflokkurinn nýtir sér tækifæri kreppunnar: Einka(vina?)væðing HS – 28. júní 2009
Skuggaverk á Suðurnesjum: Enn meir um einka(vina)væðingu auðlinda í hendur GGE – 18. ágúst 2009
Skuggaverk á Suðurnesjum II: Nýtt REI eða hvað? – 25. ágúst 2009
Spurningar varðandi tilboð Magma og einnig ársreikning HS – 31. ágúst 2009
REI II: Hin „tæra snilld“ Magma-samningsins – 2. september 2009
Magmalof Moggans og útreikningar vegna Magma-samnings OR – 6. september 2009
Opið bréf til borgarfulltrúa vegna Magma-samnings – 14. september 2009
Svar borgarfulltrúa vegna Magma-bréfs og andsvar – 15. september 2009
Hin gamla útrás Glitnis og hin nýja útrás Íslandsbanka – 2. maí 2010
Sorgarsaga HS: Frá einkavæðingu til erlends eignarhalds – 17. maí 2010
Einkennileg viðskipti milli GGE og Magma – 18. maí 2010
Meira um Magma og „erlenda fjármagnið“ – 19. maí 2010
Bréf vegna sölu OR á hlut sínum í HS Orku til Magma (upprifjunarblogg) – 23. maí 2010
Vangavelta um Magma-söluna vegna slæmrar stöðu OR – 3. júní 2010
Magma og nefndin um erlenda fjárfestingu – 10. júlí 2010
Samfylkingin og Magma – 12. júlí 2010
******************************
Síðast en hreint ekki síst er það Alda Sigmundsdóttir sem bloggar á vefsetrinu www.icelandweatherreport.com. Hún hefur þá sérstöðu að skrifa á ensku og pistlarnir hennar eru lesnir víða um heim af fólki af ýmsu þjóðerni. Fyrir utan stórskemmtilegan stíl Öldu og leiftrandi frásagnargáfu er mjög áhugavert að lesa athugasemdir lesenda víða að úr heiminum. Alda linkar líka á allt mögulegt sem málunum við kemur hverju sinni.
More on the ludicrous Magma HS Orka deal – August 23, 2009
Magma Energy end the second coming on Kastljós – August 26, 2009
Lowest energy prices!! – or how to sell yourself Icelandic style – September 11, 2009
Of corruption, stupidity and the value of green energy – September 14, 2009
Protests today at Reykjaík City Hall! – September 15, 2009
Magma of Canada takes full control of HS Orka – May 17, 2010
Major fury over new allegations regarding Magma Energy and HS Orka – July 12, 2010
******************************
Fjárfesting Magma Energy í hnotskurn
Lára Hanna Einarsdóttir