Höfundur

    Lára Hanna Einarsdóttir

Viltu styrkja síðuhöfund?

Auglýsingar

Hvað skal kjósa?

Í því sambandi ætla ég aðeins að minna á tvennt. Ef fólk skilur ekki sneiðina er því ekki við bjargandi.

„Því hefur verið haldið fram að íslendingar beygi sig lítt fyrir skynsamlegum rökum, fjármunarökum varla heldur, og þó enn síður fyrir rökum trúarinnar, en leysi vandræði sín með þvi að stunda orðheingilshátt og deila um titlíngaskít sem ekki kemur málinu við; en verði skelfingu lostnir og setji hljóða hvenær sem komið er að kjarna máls.“
Halldór Laxness – Innansveitarkroníka.

Og síðan þetta:

„Það er álitið að fáar þjóðir hafi þolað kúgun og yfirgang af meiri kurteisi en Íslendingar. Um aldaraðir alt fram á þennan dag lifðu þeir í skilníngsríkri sáttfýsi við kúgun, án þess að gera nokkru sinni tilraun til uppreistar. Eingri þjóð var byltíngarhugtakið jafn hulið. Ævinlega voru Íslendingar reiðubúnir að kyssa þann vöndinn er sárast beit og trúa því að kaldrifjaðasti böðullinn væri sönnust hjálp þeirra og öruggast skjól.“
Halldór Laxness – Ósigur ítalska loftflotans í Reykjavík 1933 – Sjö töframenn.

Hanna Birna Kristjánsdóttir er skilgetið afkvæmi Sjálfstæðisflokksins eins og hann gerist verstur. Hún var hægri hönd Kjartans og þar með Davíðs árum saman og lærði sína pólitík af þeim. Hún gerði hrossakaup… fyrst við Ólaf F. og síðan Óskar Bergsson til að öðlast völd. Hún seldi sálu sína og heiðarleika fyrir völd – það vitum við. Hve lengi ætlar þjóð, sem hefur verið barin eins og harðfiskur um aldir að kyssa vöndinn og kjósa það sama yfir sig aftur? Hve lengi ætla kjósendur að láta blekkjast? Maður spyr sig…

Þeir sem setja sitt X við Sjálfstæðisflokkinn, sama hvar á landinu er, kjósa yfir sig hrunflokk og áframhaldandi spillingu í íslensku þjóðfélagi. Þannig er það nú bara. Viljum við það?

Viðbót: Ég var að lesa bloggpistil Illuga Jökulssonar, Hvað á ég að kjósa? sem er á svipuðum nótum og minn en mun ítarlegri, betri og kemur miklu víðar við. Mæli eindregið með lestri hans.

Lítum á stutt yfirlit kjörtímabilsins úr Kastljósi í gærkvöldi, 28. maí 2010

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is