Höfundur

    Lára Hanna Einarsdóttir

Viltu styrkja síðuhöfund?

Auglýsingar

Pólitískir svanasöngvar

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins

Sjálfstæðismenn virðast eiga bágt með að þola frjálsa fjölmiðlun og opna, gagnrýna umræðu. Ekki ber á öðru en að gagnsæi og hreinskiptni séu eitur í þeirra beinum. DV hefur verið að skrifa um meint brask formannsins, Bjarna Benediktssonar, og hvernig hann skuldbatt og veðsetti fyrirtæki fjölskyldunnar fyrir milljarða – sem síðan lentu í skuldasúpu almennings. Bjarni neitar öllu og ef ég skil þetta rétt hafði hafði hann ekki hugmynd um hvað hann var að gera. Makkaði rænulaus með milljarða. Treysta kjósendur leiðsögn hans eftir þessa uppljóstrun eða er Bjarni Benediktsson að syngja sína pólitísku svanasöngva þessa dagana og vikurnar?

Í kjölfarið greinir Bjarna og Hrein Loftsson, aðaleiganda DV, á um hver sagði hvað og hvernig þegar Bjarni hringdi í Hrein til að stöðva umfjöllun um sig og viðskipti sín – eða ekki. Hingað til hafa fjölmiðlar yfirleitt látið gott heita þegar stjórnmálamenn „vísa á bug“ og málið er dautt. Vonandi er að verða breyting á slíkri fjölmiðlun og stundum sér maður góða takta hjá fjölmiðlunum. Fjölmiðlar mega aldrei láta undan pólitískum eða annars konar þrýstingi. Því eins og Óðinn Jónsson, fréttastjóri RÚV, skrifaði í þessum pistli fyrir kosningar eru fréttamenn hliðverðir lýðræðisins. Þeir mega aldrei bregðast þjóðinni, hagsmunum hennar og sannleikanum.

Fyrir utan frekju og yfirgang stjórnmálamanna eru tæknivandamál líka leiðindamál á netmiðlum. Þegar hrunið varð hafði ég um nokkurt skeið tekið upp ýmislegt efni úr netútsendingum RÚV og var að verða sköllótt. Ég reytti hár mitt nær daglega yfir ýmiss konar göllum í útsendingum, jafnt beinum sem eftir á. Fréttir og þættir voru ýmist hauslausir eða halaklipptir og undir hælinn lagt hvort efnið var lagað á netinu. Stundum var bara hljóð en ekki mynd – stundum öfugt. Svo komst þetta í alveg þokkalegt lag í fyrravetur, smátt og smátt, og gekk nokkuð vel þar til nýverið. Nú hefur Silfur Egils t.d. ekki sést á netinu í beinni útsendingu í tvígang og þegar þetta er skrifað er enn ekki búið að laga Silfrið frá í gær. Það vantar fyrsta kaflann – Vettvang dagsins. Hvort ástæðan er mannekla og sparnaður veit ég ekki, en þetta er ákaflega hvimleitt.

Það er hins vegar fátítt, ef ekki einsdæmi, að heilu fréttatímarnir glatist og skrifuðu fréttirnar sem tilheyra ýmist útvarps- eða sjónvarpsfréttum á RÚV-vefnum hverfi eins og kom fyrir með fréttina sem sagt er frá hér fyrir neðan. Þetta er tæknivandamál sem ég hef ekki rekist á fyrr en nú. En það er huggun harmi gegn að aðeins ein frétt úr fréttatímanum hvarf af vefnum eins og sjá má ef flett er aftur til 2. desember hér.

Fréttin sem hvarf er viðtal við sjálfstæðiskonuna Jórunni Frímannsdóttir í Tíufréttum RÚV 2. desember. Framganga hennar var slík að fréttin vakti gríðarlega athygli og umræðu og sumir töldu þetta viðtal pólitískt harakírí Jórunnar. Nú gæti hún pakkað saman, enda afhjúpaði Jórunn  vanþekkingu sína og getuleysi á afar neyðarlegan hátt. Gullfiskaminni hefur hrjáð Íslendinga og verið til ama þegar rifja á upp menn og málefni fyrir kosningar og engin leið að fletta upp með góðu móti og hressa upp á minnið. Nú er öldin önnur. Hægt er að geyma allt mögulegt efni á handhægu formi í tölvum og kalla fram upplýsingar með mismikilli fyrirhöfn þó.

Allir stjórnmálamenn með alvörumetnað og pólitíska framtíðarsýn hljóta að safna fjölmiðlaefni með sjálfum sér til að vitna og vísa í gullkornin og spekina. Ég vil því hugga Jórunni Frímannsdóttur og flokkssystkin hennar með því að ég á áðurnefndan fréttatíma á tölvudiski, sem og skjámynd af fréttinni af RÚV-vefnum. Auk þess birti ég fréttina 3. des. í svolitlu samkrulli við aðra frétt. Fréttatímar eru opinber samtímasagnfræði og það væri illa gert gagnvart kjósendum í borgarstjórnarkosningunum í vor að beita sögufölsun og breiða yfir snilldina. Tala stjórnmálamenn ekki alltaf um að þeir vilji vera metnir af orðum sínum og verkum? Þá er líka eins gott að halda öllu til haga – líka svanasöngvunum. Jórunn getur því haldið áfram að pakka saman eins og ekkert hafi í skorist.

Úr Tíufréttum RÚV 2. desember 2009

Af fréttavef RÚV 2. desember 2009

Hjálparstofnanir

Facebook ummæli

Vinsamlegast athugið:
Ummæli eru á ábyrgð þeirra sem þau skrifa. Eyjan áskilur sér þó rétt til að fjarlægja óviðeigandi og meiðandi ummæli.
Tilkynna má óviðeigandi ummæli í netfangið ritstjorn@eyjan.is